Tölvumál - 01.03.1996, Blaðsíða 3
Efnisyfirlit
5 Skýrsla formanns fyrir árið
1995
HaukurOddsson
8 Skýrsla formanns - viðauki
9 AMUSE
rannsóknarverkefnið
Ebba Þóra Hvannberg
12 Upplýsingakerfi
Landsbókasafns íslands -
Háskólabókasafns
Þorsteinn Hallgrímsson
17 íslenskar kröfur í
upplýsingatækni
Þorvarður Kári Ólafsson
21 Aðalfundur 1996
fundargerð, fjárhagsáætlun
24 Framkvæmdaáætlun fyrir 3.
útgáfu Tölvuorðasafns
26 Frá orðanefnd
Stefán Briem
28 Framtíðarsýn Pósts og
síma
Þór Jes Þórisson
32 Samantekt á birtum
greinum í 20. árgangi
Tölvumála
Ritstjórnarpistill
Margmiðlun er oft til umræðu nú um stundir. Það
er rætt um að nú sé ýmislegt hægt sem áður var lýst
í vísindaskáldsögum. Hægt að lesa dagblöðin af skjá
næstum um leið og þau verða til. Eða geta verið þátt-
takandi í bíómynd sem verið er að horfa á þá stundina.
Innkaup eru gerð heima í stofu og það er hægt að
skoða það sem verið er að kaupa frá ölium hliðum.
En fæðingin hefur verið erfið. Fyrri tíma bjartsýnis-
spár hafa ekki ræst nema að hluta til. Tæknin hefur
ekki getað uppfyllt óskir tæknilegra sinnaðra manna.
Kostnaður verið of mikill eða áhugi væntanlegra not-
enda takmarkaður.
Getur verið að margir hafi einfaldlega ekki áhuga
á svo tæknivæddri veröld? Það hafa verið skrifaðar
margar bækur sem eiga að gerast þegar tölvur hafa
tekið völdin. Fæstir sem starfa við upplýsingatækni
hafa trú á því að það muni nokkurn tíma gerast, að
minnsta kosti ekki á okkar tímum. Tölvurnar eru
einfaldlega of heimskar. Sé litið til nærtækari dæma
þá hafa verið gerðar kannanir sem sýna að meirihluti
símanotaenda kærir sig ekki um myndsíma. Kannski
er það vaninn sem veldur því. Ný tæknikynslóð alin
upp við skjáinn og fullkomna tölvuleiki og gervigreind
hefur líklega allt aðra skoðun.
í þessu blaði er meðal annars fjallað um hvað er
um að vera á þessu sviði. Fyllsta ástæða erfyrir okkur
íslendinga að tryggja að við verðum ekki eftirbátar
annarra þjóða á [Dessu sviði enda liggja þarna fjölmörg
atvinnutækifæri.
Auk þessa er allítarleg samantekt yfir starfsemi
félagsins á síðasta ári og fréttirfrá aðalfundi í blaðinu.
Magnús Hauksson
TÖLVUMÁL
TímaritSkýrslutæknifélag íslands
Tölvumál er vettvangur umræðna
og skoðanaskipta um upplýsinga-
tækni sem og fyrir málefni og
starfsemi Skýrslutæknifélagsins.
Óheimilt er að afrita á nokkurn
hátt efni blaðsins að hluta eða í
heild nema með leyfi viðkomandi
greinahöfunda og ritstjórnar.
Blaðið er gefið út 6 sinnum á ári í
1.100 eintökum.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingar:
ÁTÁ, sími 561 4100
Aðsetur:
Barónsstígur 5
101 Reykjavík
Sími: 551 8820
Bréfsími: 562 7767
Netfang: sky@skima.is
Ritstjóri og ábm.:
Magnús Hauksson
Aðrir ritnefndarmenn:
Bergþór Skúlason
Gísli R. Ragnarsson
Kristrún Arnardóttir
Umbrot: Svanhildur Jóhannesdóttir
Áskrift er innifalin í félagsaðild að
Skýrslutæknifélagi islands.
Tölvumál - 3