Tölvumál - 01.03.1996, Blaðsíða 25
Mars 1996
semja skilgreiningar á þeim hug-
tökum sem safnað hefur verið fram
til þess tíma.
Tími 10 mánuðir (01.03.96 -
31.12.96)
6. Söfnun nýrra hugtaka, heita
þeirra og skilgreininga á
tölvuneti
í þessum verkþætti verður
tölvutæku efni safnað skipulega
með þeim aðferðum og tólum sem
þróuð hafa verið í 2. verkþætti og
úr þeim unnið safn hugtaka sem
ekki hafa náð að komast í ISO-
staðla en þykir brýnt hafa með í
Tölvuorðasafninu með tilliti til
nýjustu þróunar í tölvutækni.
Tími 3 mánuðir (01.10.96 -
31.12.96)
7. Söfnun nýrra hugtaka, heita
þeirra og skilgreininga úr
bókum
Um áramótin 1996/1997 er
fyrirhugað að festa kaup á og/eða
fá lánaðar orðabækur og önnur rit
til að safna nýjum hugtökum og
heitum þeirra sem ekki hefur náðst
til í 6. verkþætti.
Tími 4 mánuðir (01.01.97 -
30.04.97)
8. Lokayílrlestur sérfræðinga
Gert er ráð fyrir að sérfræðing-
ar lesi yfír megnið af efni þeirra
íðorðaskráa sem liggja að baki
Tölvuorðasafninu og að þeim yfir-
lestri verði lokið fyrir 1. maí 1997
en nánar er þessi verkþáttur ekki
skipulagður að svo stöddu. Auk
lokayfirlestrar sérfræðinga verður
leitað eftir aðstoð þeirra allan
ffamkvæmdartímann eftir því sem
viðfangsefni orðanefndar hverju
sinni gefatilefnitil.
Tími 4 mánuðir (01.01.97 -
30.04.97)
9. Yfirlestur orðanefndar
Gert er ráð fyrir að orðanefnd
lesi yfir efni þeirra íðorðaskráa
sem liggja að baki Tölvuorðasafn-
inu að loknum yfírlestri sérfræð-
ings. Einnig er gert ráð fyrir að
orðanefndin lesi yfir prófork að
prentuðu Tölvuorðasafni.
Tími 5,5 mánuðir (01.03.97 -
15.08.97)
10. Undirbúningur fyrir prentun
og annars konar útgáfu ef til
kemur
Þessi verkþáttur tekur til um-
brots og útlits bókarinnar og einnig
til frágangs fyrir útgáfu eða aðgang
að Tölvuorðasafninu á tölvutæku
formi ef sá kostur verður tekinn.
Gert er ráð fyrir að handrit að bók-
inni liggi fyrir í byrjun maí 1997.
Tími 5,5 mánuðir (01.03.97 -
15.08.97)
11. Frágangur fyrir framtíðar-
endurskoðun eftir 3. útgáfu
Gengið verður frá gögnum
þannig að aðgengilegt verði fyrir
nýja menn að heija endurskoðun á
3. útgáfu Tölvuorðasafnsins þótt
nokkurt hlé verði gert.
Tími 0,5 mánuðir (16.08.97 -
31.08.97)
Verk- og tímaáætlun
Verkþáttur 19 9 5 19 9 6 19 9 7
s e P 0 k t n ó V d e s j a n f e b m a r a P r m a í j ú n j ú 1 á g ú s e P 0 k t n ó V d e s j a n f e b m a r a P r m a j ú n j ú 1 á g ú
1. Tölvuskráning á viðbótum frá 1986
2. Aðferðir og tól fyrir tölvunet og orðtöku
3. Aðferðir og tól fyrir skilgreiningar
4. Endurskoðun og þýðing skilgreininga
5. Samningnýrra skilgreininga
6. Söfnun nýrra hugtaka á tölvuneti
7. Söfnun nýrra hugtaka úr bókum
8. Lokayfirlestur sérfræðinga
9. Yfirlestur orðanefndar
10. Undirbúningur fyrir prentun og útgáfú
11. Frágangur fyrir framtíðina
Tölvumál - 25