Tölvumál - 01.03.1996, Blaðsíða 21
Mars 1996
1996 - fundargerð
hæð í Húsi verslunarinnar
Aðalfundur
Aðalfundur var haldinn á 14.
31.janúar 1996, kl. 15:00
Formaður setti fimd og stakk
upp á Jóhanni Gunnarssyni sem
fundarstjóra. Var það samþykkt
einróma.
1. Skýrsla formanns fyrir árið
1995
Haukur Oddsson, formaður hóf
mál sitt á þessum orðum: „Enn er
liðið viðburðaríkt ár í sögu
Skýrslutæknifélags Islands.“ Kvað
hann stjómina í upphafi árs hafa
sett fram eftirfarandi yfirmarkmið
eða leiðarljós: „Skýrslutæknifélag
íslands - félag fólks í upplýsinga-
tækni - er málsvari fagsins á öllum
sviðum. Félagið er vettvangur
umræðna og skoðanaskipta um
upplýsingatækni í því skyni að gera
veg hennar sem mestan og stuðla
að skynsamlegri notkun hennar.“
Til að sinna hlutverkinu voru sett
fram nokkur áhersluatriði sem for-
maður fór yfir í skýrslu sinni sem
og störf stjómar á kjörtímabilinu.
Að lokum þakkaði formaður
félagsmönnum í trúnaðarstörfum
vel unnin störf á árinu, einkum var
þeim þakkað sem nú voru að
hverfa úr stjóm. Sjá nánar - fskj.
#1.
Viðauki við skýrslu formanns
með ýmsum tölulegum upplýsing-
um um starfið á árinu fylgir hér
með - fskj.#2.
2. Skýrslur nefnda og faghópa
2.1.Ritnefnd
Svanhildur Jóhannesdóttir og
Gísli Ragnarsson fómm nokkrum
orðum um það gífurlega starf sem
afar fámennri ritnefnd er ætlað að
vinna og óskuðu efitir almennum
umræðum undir liðnum “Önnur
mál”. Tölulegar upplýsingar -
fskj.#2.
2.2. Orðanefnd
Sigrún Helgadóttir, formaður
flutti skýrslu um störf nefndarinnar
á árinu - fskj. #3. Stefán Briem,
ritstjóri skýrði frá framkvæmda-
áætlun fyrir 3. útgáfu tölvuorða-
safns - fskj. #4, og svaraði fyrir-
spurnum áhugasamra fundar-
manna.
2.3. Faghópur um hlutbundna
hugbúnaðargerð
Hópurinn hefur ekkert starfað
og liggur fyrir að leggja hann niður.
2.4. Faghópur um öryggi og
endurskoðun tölvukerfa
Fulltrúar hópsins og stjómar
SÍ em að undirbúa ráðstefnu um
öryggi í viðskiptum á Intemeti sem
halda á 16. febrúar 1996.
2.5. Faghópur um greiningu og
hönnun hugbúnaðarkerfa
Laufey Asa Bjamadóttir skýrði
frá starfmu, sem var blómlegt fyrri
hluta ársins - fskj. #5.
2.6. Fagráð í upplýsingatækni
Halldór Kristjánsson skýrði
fundarmönnum frá væntanlegu
stjómarkjöri þar.
2.7. Tölvunefnd
Haukur Oddsson kvað áhuga-
vert að starfa í Tölvunefnd fyrir
hönd félagsins, þar væri starfað
faglega, enda starfið umfangs-
mikið, fjöldi mála á árinu var 350.
í undirbúningi er norrænt þing
tölvunefnda sem halda á næsta
sumar á Höfn í Homafirði.
3. Reikningar félagsins fyrir
árið 1995
Bjami Ómar Jónsson, féhirðir
stjómar, lagði fram endurskoðaða
reikninga félagsins, las áritanir og
fór yfir reksturs- og efnahags-
reikning. Tekjur umfram gjöld á
árinu voru kr. 745.894. Reikning-
amir voru samþykktir samhljóða.
Fylgja þeir hér með sem fskj.#6.
4. Ákvörðun félagsgjalda fyrir
árið 1996
Fyrir fundinum lá tillaga frá
stjóm um að hækka félagsgjöld um
2,5% frá því sem verið hefur und-
anfarin þrjú ár. Tillagan byggði á
íjárhagsáætlun sem dreift var á
fundinum og fylgir hér með - fskj.
#7. Var tillagan samþykkt einróma
og verða því félagsgjöld 1996:
Fullt gjald kr. 12.500, hálfit gjald
kr. 6.250, ljórðungsgjald kr. 3.125.
4.1. Aðrar tillögur
Lagðar voru fram tillögur frá
Bimi Gunnarssyni og Hauki Odds-
syni um að félagsmenn á eftirlaun-
um greiði fjórðungsgjald til félags-
ins og að stofnfélagar verði undan-
þegnir félagsgjöldum þegar þeir
fara á efitirlaun. Vom þessar tillög-
ur samþykktar einróma.
5. Stjórnarkjör
Skv. samþykktum félagsins átti
að kjósa í embætti varaformanns,
féhirðis og skjalavarðar. Tillögur
lágu fyrir um eitt nafn í hvert þess-
ara embætta og voru þær sam-
þykktar samhljóða. Var Douglas
Brotchie kjörinn varaformaður til
tveggja ára, Laufey Erla Jóhannes-
dóttir kjörin féhirðir til tveggja ára
og Hulda Guðmundsdóttir kjörin
skjalavörður til tveggja ára. Þá
þurfiti að kjósa í embætti ritara og
meðstjómanda til loka kjörtíma-
bils. Þórður Kristjánsson var sam-
hljóða kjörinn ritari til eins árs og
Heimir Sigurðsson samhljóða kjör-
Tölvumál - 21