Tölvumál - 01.03.1996, Side 29

Tölvumál - 01.03.1996, Side 29
Mars 1996 Mynd 1. Breiðbandskerfi Pósts og síma Koax 20 - 200 m ----------------------------------► og tíma. Með samnetstengingu öðlast símnotandinn stafrænt sam- band til næstu símstöðvar. Þetta samband gerir honum kleift að vera með ígildi tveggja símalína, sem hann getur t.d. notað fyrir síma og fax eða síma og gagnasamband. Samnetssamband hefur tvo 64kb/s strauma sem nefhast B rásir og eina D rás, sem er 16kb/s. Hverja B rás er hægt að nota fyrir eitt símasamband, en D rásin er notuð til að setja upp samband, einnig verður hugsanlega seinna hægt að nota hana fyrir X.25 gagnasendingar, þ.e. til að tengjast við Gagnanetið. Þeir sem vilja nota samnets- sambandið einungis til gagna- flutnings geta notað báðar B rásirnar til að flytja gögn og þá fæst 128kb/s flutningshraði. Tvær útgáfur eru af samnets- sambandi. Önnur útgáfan er frekar ætluð heimilum og litlum fyrir- tækjum og nefnist grunntenging. Hún samanstendur af tveimur B rásum og einni D rás, eins og lýst hefur verið hér að ofan. Hin út- gáfan er svonefnd stofntenging. Hún er frekar ætluð fyrirtækjum og verður sennilega mest notuð til að tengja einkasímstöðvar við almenna símakerfið á 2Mb/s samböndum. Þessi flutningur jafngildir 30 B rásum og einni D rás, en sú rás er 64kb/s. Til að nota samnetssambandið þarf aðgang að svonefndum net- markabúnaði (Network Termina- tion, NT), búnaði sem er innifalinn í samnetsgjaldinu. Netmarka- búnaðurinn er settur upp af Pósti og síma og er í eigu stofhunarinnar. Þetta tæki þarf að tengja við net- spennu og er því innanhúss hjá viðskiptavini. Viðskiptavinur getur síðan tengt þar til gerða samnetssíma við netmarkabúnaðinn, en þetta eru stafrænir símar og nokkuð dýrari en venjulegir símar. Með þessum símum er hægt að nýta sér ýmis konar sérþjónustu sem er innifalin í samnetsáskriftinni, eins og t.d. þjónustuna „Hver hingir?“, en þá er hægt að sjá símanúmers þess sem er að hringja til þín á skjá sam- netssímans. Einnig er hægt að tengja tölvu við netmarkabúnaðinn, en til þess þarf samnetskort í tölvuna sem gerir stafrænan gagnaflutning á 64kb/s mögulegan. Það er líka er hægt að tengja venjulega síma og mótald við netmarkabúnað, en til þess þarf að kaupa svokallað samnetsferjald (,,adaptor“), en þá nýtur viðskipta- vinur ekki fullra afkasta samnets- ins, t.d. getur hann ekki fullnýtt 64kb/s flutningshraðann eða sérþjónustu samnetsins. íslenska samnetið er samkvæmt Euro ISDN staðlinum sem ETSI (European Telecommunications Standards Institute) samþykkti í lok ársins 1993. Með tilkomu Euro ISDN var loks auðvelt að tengja samnetssambönd milli hinna ýmsu Evrópulanda. Þau lönd, sem tóku upp samnetsþjónustu fyrir þennan tíma, búa í dag við tvö samnets- kerfi en fyrra kerfið er aðeins hægt að nota innanlands. Áhugi á að nota samnetsteng- ingu til að komast í samband við Intemetið hefur verið að aukast á þessu ári og sem dæmi má nefna að France Télécom áætlar að 1% af öllum Intemet tenginum sé um grunntengingu, en gæti á næsta ári orðið allt að 5%. Hugmyndir evrópskra síma- fyrirtækja um hlutverk samnetsins í fjarskiptum hefur verið að færast í þá átt að sú þjónusta muni einkum fullnægja kröfum heimila og lítilla fyrirtækja, en stærri fyrirtæki muni flytja sig yfir í ATM (Asyncronous Transfer Mode), þegar sú tækni er orðin þróaðri og betri. í æ ríkara mæli er því litið á samnetið sem hluta af núverandi símakerfi en ekki viðbótarkerfi. Með samnetinu lýkur þróun síma- kerfisins úr hliðrænu kerfi í staf- rænt kerfi. ATM og breiðbandsnetið ATM er pakkastaðall sem býð- ur upp á mikla flutningsgetu og getur flutt tal, gögn og myndir. í ATM eru pakkamir 53 bæt, þar af Tölvumál - 29

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.