Tölvumál - 01.03.1996, Page 5

Tölvumál - 01.03.1996, Page 5
Mars 1996 Skýrsla formanns fyrir árið 1995 Eftir Hauk Oddsson Enn er liðið viðburðaríkt ár í sögu Skýrslutæknifélags íslands. Það var fyrsta verk stjómar sem tók við á síðasta aðalfundi að fara yfir stefnu félagsins og ákveða áherslur starfsins. Margt var spáð og spekulerað og eins og gerist og gengur fór umræðan út um víðan völl. Niðurstaða okkar var að setja fram eftirfarandi yfirmarkmið eða leiðarljós: „Skýrslutæknifélag Islands - félag fólks í upplýsingatækni - er málsvari fagsins á öllum sviðum. Félagið er vettvangur umræðna og skoðanaskipta um upplýsinga- tækni í því skyni að gera veg hennar sem mestan og stuðla að skynsamlegri notkun hennar.“ Til að sinna hlutverkinu voru sett fram nokkur áhersluatriði: - í fyrsta lagi að halda áfram á þeirri braut sem þegar hafði verið mörkuð og slá þar hvergi af. Hér var sérstaklega átt við blómlegt ráðstefnu- og funda- hald og útgáfu Tölvumála. - Þá var og talin ástæða til að gera félagið og hið góða starf þess sýnilegra og að á það verði litið sem sjálfsagðan málsvara upplýsingatækni á Islandi. - Öllum var og ljóst að fyrir dyrum stóð undirbúningur að útgáfu orðasafns og víst að það yrði fyrirferðarmikið í starfi ársins og næstu ára. Mikill ein- hugur ríkti innan stjómar um málefni orðanefndar. - Lögð skyldi áhersla á samstarf við innlenda aðila um stærri viðburði. Einnig skyldu kostir samstarfs við erlenda aðila skoðaðir sérstaklega. - Bætt nýting skrifstoíu félagsins var einnig talin brýn og ákveðið að stuðla að því að gera hana að enn ffekari miðpunkti starfs- ins. - Þá var ákveðið að stefnt skyldi að árshátíð að hausti ár hvert. - Áhersla skyldi lögð á fjölgun félagsmanna. Stefnt að ijölgun um a.m.k. 100 nýrra félaga á árinu. - Að lokum þótti einnig ástæða til að undirstrika ásetning um áframhaldandi uppbyggingu fjárhags félagsins. Eins og gerist og gengur í öllu starfi gengur misvel að fylgja eftir áherslum og ná þeim markmiðum sem sett em. Og í framhaldi af því deila menn um gagnsemi stefnu- mörkunar yfir höfuð. í mínum huga er stefnumörkim nauðsynleg hverju félagi bæði þegar litið er til langs og skamms tíma. Skýrslu- tæknifélagið er þar engin undan- tekning. Haldið var áfram því starfi sem þegar var í miklum blóma. Haldnar voru fjórar ráðstefnur, þar af ein heilsdagsráðstefha. Þávomhaldnir fjórir félagsfundir og var aðsókn góð. Samtals sóttu tæplega 800 manns þessa viðburði. Þá má nefna að tímarit félagsins, Tölvumál, hefur að mínu mati aldrei verið betra. Ritstjóm hélt hvorki meira né minna en 33 fundi á árinu og sýnir það glöggt umfang þessa starfs. Því vil ég að þessu tilefni þakka ritstjórn Tölvumála fyrir frábær störf á árinu. Sú stefna að auglýsa alla við- burði hjá félaginu rækilega hefur skilað því að félagið er nú sýni- legra og þekktara meðal almenn- ings en áður. Okkur hefur einnig tekist að vekja athygli á félaginu og starfi þess meðal Qölmiðla og hefur það skilað nokkm. Hér þarf að ganga lengra því fátt gefur starfi innan félagsins meira gildi en vitneskjan um að eftir því sé tekið, það einhvers metið og því sýndur áhugi. Það er mat mitt að ef okkur tekst vel til í kynningarstarfi muni það verða hvati á allt starf fél- agsins. Undirbúningur að útgáfu orða- safnsins var, eins og búist var við, fyrirferðamikill á árinu. Ekkert annað málefni var viðameira en það. Af hálfu stjómar voru það þeir Heimir Sigurðsson og Doug- las Brotchie sem þó báru hitann og þungann af þessu starfi. Ég ætla að láta formanni orðanefndar eftir að greina frá því í smáatriðum. Allt frá því ég tók sæti í stjóm félagsins hefur samstarf við bæði innlenda og erlenda aðila verið til umræðu. Liðið ár var enginn undantekning þar á. Innlent sam- starfjókst á árinu og má í því sam- bandi nefna samstarf við félag tölvukennara og Kennaraháskóla Islands við undirbúning að ráð- stefnu sem haldin verður í ágúst næstkomandi og ber yfirskriftina „Skólastarf og upplýsingatækni“. Það er hverjum manni ljóst að velgengni þjóða í allri framtíð mun að verulegu leyti byggjast á skyn- samlegri notkun upplýsingatækni. Mikilvægi góðrar menntunar verður því meiri en nokkru sinni fyrr og því sómi af þessu framlagi félgasins. Erlent samstarf var nánast Tölvumál - 5

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.