Tölvumál - 01.03.1996, Side 6
Mars 1996
ekkert á liðnu ári og er það miður.
Það er mat mitt að lítið erlent sam-
starf sé einn helsti veikleiki félags-
ins. Verulegar umræður urðu um í
hverju samstarf við erlend félaga-
samtök ætti að felast. A félagið að
styrkja félagsmenn til þátttöku í
hinum ýmsu faghópum sem starf-
andi eru á vegum erlendra félaga
eða á samstarfið að vera í því fólg-
ið að læra af öðrum félögum um
þeirra starf og miðla reynslu milli
félaga?
Niðurstaðan var að það gæti
ekki verið hlutverk félagsins að
styrkja félaga til þátttöku í faghóp-
um annarra félaga, nema í algerum
undantekningartilfellum og þá að
viðkomandi starfaði í hópnum fyrir
tilstuðlan Skýrslutæknifélagsins og
það hefði þannig skyldum að
gegna.
Á sviði erlends samstarf eigum
við að einbeita okkur að starfi að
sameiginlegum hagsmunum
Skýrslutæknifélagsins og systur-
félaganna í Evrópu og reyna eftir
fremsta megni að læra af reynslu
þeirra. Það er ásetningur minn að
á þessu ári verði gerð bragarbót á
og að komið verði formi á þetta
samstarf.
Ekkert varð úr því að haldin
yrði árshátíð á liðnu hausti eins og
stefnt var að. Ekki skal hér mikið
sagt um ástæður þess að svo varð
ekki en þó er það margra mat að
árshátíðir séu tímaskekkja sem
muni líða undir lok, allavega í því
formi sem þær hafa verið undan-
fama áratugi. Ég ætla því ekki að
lofa árshátíð að hausti heldur vísa
því til komandi stjómar að taka
ákvörðun þar um.
Félögum fjölgaði ekki nema um
tvo á liðnu ári. Reyndar hefur
félagatala svo gott sem staðið í stað
undanfarin 3 ár. Er þetta nokkuð
áhyggjefni sérstaklega í ljósi þess
að fjöldi þeirra sem starfa að
faginu vex stöðugt. Skýrslutækni-
félagið er ekkert einsdæmi að þessu
leyti því mörg önnur félög hafa
þurft að horfast í augu við fækkun
félaga. En samanburður við aðra
hjálpar lítið til. Það verður án efa
eitt af viðfangsefnum þessa árs að
stuðla að fjölgun félagsmanna. Til
þess eru margar leiðir sem ekki
verða raktar hér en þó má nefna
þá leið að auka mun á ráðstefnu-
gjöldum fyrir félagsmenn og utan-
félagsmenn. Hjá systurfélagi okkar
í Danmörku er þessi munur hafður
allt að því jafn hár og félagsgjöldin
sjálf.
Rekstur félagsins hefur verið
með miklum ágætum á árinu og
skilað hagnaði enn eitt árið.
Reyndar er afkoma félagsins betri
en um langt árabil, ef ekki sú besta
til þessa og er það vel. Þó það sé
ekki tilgangur félagsins að safna
fé er góð íjárhagsleg staða grunnur
að þróttmiklu starfi og gefur mögu-
leika á að ráðast í stærri verkefni
og taka áföllum sem upp kunna að
koma. Það hefur verið vilji stjómar
að gæta aðhaldssemi í ljármálum
og taka ekki stóra áhættu. Ég á von
á að svo verði enn um sinn.
Sú ætlan okkar að gera skrif-
stofuna að meiri miðpunkti í
starfmu hefúr ekki náðst nema að
því leiti að nú er hún tengd Inter-
netinu. Aðgengi að henni hefúr því
batnað til mikilla muna. Þess má
og geta að fyrir dyrum stendur að
setja upp heimasíðu fyrir félagið.
Síðastliðið haust var skipuð
nefnd á vegum ríkisstjómarinnar
um stefnumörkun á sviði upp-
lýsingatækni. Yfirskrift starfsins er
„ísland og Upplýsingasamfél-
agið“. Eftir mikið þóf tókst fél-
aginu að koma fulltrúa í nefndina,
en þar sit ég í yfimefnd. Ég tel það
okkur gott umhugsunarefni hvemig
það megi vera að það hafi þurft
mikið til að fulltrúi fagfólks fengi
sæti í nefnd sem þessari. Að mínu
mati sýnir það betur en margt
annað nauðsyn þess að félagið og
starf þess sé vel kynnt utan félags-
ins sem innan og kanski ekki síður
þörfrna á áð standa vörð um hags-
muni og áhrif fagfólks á framgang
mála.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð
um starfsemi síðasta árs og vísa í
viðauka við skýrslu mína sem
dreift hefúr verið.
Með mér í stjórn hafa setið
nokkrar úrvals konur og menn. Að
venju hverfa nokkrir úr stjóm. Að
þessu sinni eru það þau: Laufey
Ása Bjamadóttir, sem gengdi sæti
varaformanns, Bjami Ómar Jóns-
son, sem gengdi starfí gjaldkera og
Guðni B. Guðnason, sem sat í sæti
varamanns, sem hverfa á braut.
Þeim sem og öðrum stjómarmönn-
um vil ég fyrir hönd félagsins
þakka framlagið og fyrir mína
hönd þakka ég samstarfið.
Starfsemi félagsins hefúr farið
hægt vaxandi undanfarin ár. Þar
með hefúr álag á skrifstofú félags-
ins aukist. Þar situr kjölfestan,
framkvæmdastjórinn, Svanhildur
Jóhannesdóttir. Hún hefur sinnt
starfi sínu af mikilli kostgæfni og
vil ég fyrir mína hönd og annarra
stjómarmanna þakka henni kær-
lega fyrir gott starf.
Að lokum vil ég þakka öllum
þeim fjölmörgu sem lagt hafa hönd
á plóginn fyrir þeirra framlag.
Haukur Oddsson er
forstöðumaður tölvu-
og upplýsingadeildar
Islandsbanka
Punktar...
Þrívíddarskjáir
Hver kannást ekki við þri-
víddargleraugun sem nauðsyn-
leg em til að sjá myndir í þrí-
vídd. Nú eru loks komnir skjáir
sem sýna mvndir 1 þrívídd án
aðstoðar þartilgerðra gler-
augna. Varpað er samtímis
fjórum myndum af myndeíhinu
teknum frá mismunandi
sjönarhomi á LCD skjá.
Gallinn er sá að fyrir þessa
tækni þarf nýjar myndavélar.
6 - Tölvumál