Tölvumál - 01.03.1996, Side 8

Tölvumál - 01.03.1996, Side 8
Mars 1996 Skýrsla formanns - viðauki Árið 1995 var 27. starfsár fél- agsins. Fullgildir félagsmenn eru 707. Aukafélagar, nemendur í Háskóla Islands og Tölvuháskóla Verslunarskóla Islands, eru 266. Á félagaskrá eru alls 973. Stjórn Aðalfundur var haldinn 31. janúar 1995. Fyrsti fundur nýkjör- innar stjómar var 6. febrúar. Istjórn Skýrslutœknifélags Islands sátu 1995: Haukur Oddsson, formaður, Laufey Ása Bjama- dóttir, varaformaður, Douglas A. Brotchie, ritari,Bjami Ómar Jónsson, féhirðir, Laufey Erla Jóhannesdóttir, skjalavörður, Þórður Kristjánsson, með- stjómandi,Heimir Sigurðsson, varamaður og Guðni B. Guðnason, varamaður. Haldinn hefur verið 21 hefð- bundinn stjómarfundur á starfsár- inu, auk ijölda nefndafunda sem stjómarmenn hafa sótt. Fjármál Tekjur umífam gjöld á árinu em kr. 745.894, og er það 16% tekju- aukning frá fyrra ári. Endurskoðun hf. hefur endurskoðað bókhald SI en félagskjömir endurskoðendur eru Jakob Sigurðsson og Sigurjón Pétursson. Útgáfumál Ritnefnd hefur haldið 33 fundi á starfsárinu og gefið út 6 tölublöð af 20. árgangi. Alls 220 blaðsíður með um 57 greinum um tölvur, hugbúnað og annað, auk veiga- minna efnis. Ritnefnd 1995 hafa skipað: Magnús Hauksson, ritstjóri, Bergþór Skúlason og Gísli Ragnarsson. Nýlega tók sæti í nefndinni: Kristrún Amarsdóttir. Nefndir Orðanefnd: Sigrún Helgadóttir, formaður, Örn Kaldalóns, Baldur Jónsson og Þorsteinn Sæmundsson. Verkefnisstjórn um endurskoðun Tölvuorðasafns: Douglas A. Brotchie, Heimir Sigurðsson, og Sigrún Helgadóttir. Á árinu var ráðinn ritstjóri Tölvu- orðasafns: StefánBriem. Siðanefnd: Oddur Benediktsson, formaður, Sigurjón Pétursson og Gunnar Linnet. Faghópur um hlutbundna hug- búnaðargerð, tengiliður: Sigurður Hjálmarsson. Faghópur um öryggi og endur- skoðun tölvukerfa, tengiliður: Jónas Sturla Sverrisson. Faghópur um greiningu og hönn- un hugbúnaðarkerfa, tengi- liðir:Laufey Ása Bjamadóttir, og Laufey Erla Jóhannesdóttir. Fagráð í upplýsingatœkni, fulltrúi SI: Douglas A. Brotchie, til vara Halldór Kristjánsson og er hann jafnframt stjómarmaður þar. Tölvunefnd, fulltrúi SI: Haukur Oddsson, til vara Guðbjörg Sigurðardóttir. Að auki hefur starfað fjöldi nefnda um einstök verkefni og atburði. Félagsfundir 1. Hádegisfundur, ÍST32, Ný útgáfa, haldinn 6. apríl, þátt- takendur 43, haldnir 3 fyrir- lestrar. 2. Hádegisfundur, Breytingar á rekstri Pósts og síma, haldinn 5.maí, þátttakendur 90, haldnir 2 fyrirlestrar. 3. Hádegisfundur, Valdsvið og verkefni tölvunefndar, haldinn 2. júní, þátttakendur 46, haldinn 1 fyrirlestur. 4. Hádegisfundur, Windows 95, við hverju máttu búastl, hald- inn 5. október, þátttakendur 112, haldnir 2 fyrirlestrar og pallborðsumræður. Ráðstefnur 1. Morgunráðstefna, Net í brennidepli, haldin 21. mars, þátttakendur 137, haldnir 6 fyrirlestrar. 2. Hálfsdagsráðstefna, Gerð not- endaskila og aðlögun kerfis- þróunarlíkana, haldin 11. maí, þátttakendur 100, haldnir 5 fyrirlestrar. 3. Heilsdagsráðstefna, Marg- miðlun - í alvörul, haldin 7. september, þátttakendur 80, haldnir 6 íyrirlestrar. 4. Hálfsdagsráðstefna, ET-dagur, Margmiðlun morgundagsins, haldinn 8. desember, þátttak- endur 168, haldnir 5 fyrir- lestrar. Samanlagt hafa því 776 sótt fundi og ráðstefnur á vegum fél- agsins á árinu, eða 97 að meðaltali. Unnið hefur verið að undir- búningi ráðstefnunnar Skólastarf og upplýsingatækni sem halda á 31. ágúst 1996. í tengslun við ráðstefnuna hefur verið efnt til samkeppni um a) hugmynd eða fullbúið forrit til notkunar í skóla- starfi og b) mjög gott kennsluferli. Félagið var með kynningarbás á sýningunni Tölvur og tækni, sem var haldin í Laugardalshöll 27. - 30. september. Svanhildur Jóhannes- dóttir tók saman 8 - Töivumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.