Tölvumál - 01.03.1996, Side 11

Tölvumál - 01.03.1996, Side 11
Mars 1996 miðlara og notanda. Bandbreidd til hvers notanda verður 25Mbps, en hraðinn sem kvikmyndastraumur á MPEG-1 þjöppunarformikrefster 1.5Mbps. Ljósleiðarar eru notaðir til flytja upplýsingar í götuskáp, en kóax eða undið par (e. twisted pair) frá skápnum til notandans. Annars staðar hér í blaðinu er netinu lýst nánar með mynd. (sjá Framtíðarsýn Pósts og síma). Þjónusta Til að tilraunin þyki áhugaverð er mikilvægt að frnna skemmtilegt myndefni eða nytsamlega þjón- ustu. AMUSE á íslandi hefur und- anfama mánuði kannað undirtektir meðal efnis- og þjónustuveitatil að bjóða upp á sína þjónustu á til- raunanetinu. Nú þegar hefur verið haft samband við nokkra fjölmiðla og þá sem tengjast íjölmiðlun, heimaverslanir, banka, kvikmynda- dreifiaðila, upplýsingaveitur og leikjaframleiðendur. Margir hafa sýnt rannsóknarverkefninu áhuga og nokkrir hafa þegar ákveðið að vera með. Ljóst er að margir aðrir möguleikar koma til greina svo sem fasteignamiðlun, fræðsluefni, ferðaþjónusta og svo mætti lengi telja. Hugbúnaður Eftir að hafa skoðað nokkra valkosti í tólum til þróunar þjón- ustuhugbúnaðar, t.d. heimaverslun eða heimabankann, var ákveðið í AMUSE verkefninu að nota hug- búnað frá Oracle. Þróunarum- hverfið heitir Oracle Media Ob- jects, eða OMO og er keyrt á biðl- aranum eða STB; netsamskipta- hugbúnaðurinn heitir Oracle Me- dia Net og sér um að koma beiðn- um á milli biðlara og miðlara; gagnasafnskerfíð heitir Oracle Media Server og er sérgerður til að keyra á myndmiðlara. Aðrir möguleikar voru vissu- lega skoðaðir svo sem Macro- media, Sybase, Online Media, o.s.frv. en engir þessa þóttu henta að svo komnu máli, þó svo að tól frá þessum aðilum geti orðið fýsilegir kostir í framtíðinni. Nýting niðurstaðna og gagnsemi Við teljum að það sé afar gagn- legt fyrir íslensku þátttakenduma í að vera aðilar að AMUSE sam- starfsverkefninu. I fýrsta lagi öðl- ast þeir reynslu af því að vera í verkefni styrktu af rammaáætlun Evrópusambandsins, í öðru lagi mynda þeir tengsl við fyrirtæki og stofnanir á líkum sviðum í Evrópu, og síðast en ekki síst afla þeir sér reynslu í nýrra tækni á meðan hún er í þróun. Nýherji og Póstur og sími afla sér þekkingar og reynslu á sínu sérsviði sem mun vonandi nýtast þeim í framtíðinni í fram- leiðslu og þjónustu en Háskóli Islands aflar sér ekki síst þekkingar sem hægt er svo að miðla áfram til nemenda. Endanlegt markmið hlýtur að vera breiðara, þ.e. að reynslan úr þessu verkefni nýtist öðmm og er það aðallega gert í gegnum almenna kynningu og einnig í gegnum ýmis konar staðla- vinnueinsogt.d. DAVIC. DAVIC (Digital Audio Video Interoper- ability Council) er vettvangur þar sem þátttakendur deila þeirri sýn af stafrænum hljóð-mynd heimi, þar sem framleiðendur stafræns efnis geta náð til sem flestra, not- endur hafa óheftan aðgang, flutn- ingsmiðstöðvar bjóða upp á skil- virkan flutning og framleiðendur veita hug- og vélbúnað sem styður ótakmarkaða framleiðslu, streymi og notkun á upplýsingum. Sem leið að þessari sýn eru staðlar skilgreindir og fyrstu útgáfumar vorutilbúnar í desember 1995. Það er ekki takmark DAVIC að búa til neitt nýtt, heldur nota það sem er til, hvort sem það eru viðmót, sam- skiptahættir og arkitektúrar, en auðvitað eru ekki allir þættirnir fyrir hendi og suma verður að búa til. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir neytendur að búnaðurinn sé staðlaður að því marki að hann sé samræmdur. Ebba Þóra Hvannberg, er tölvunarfrœðingur, Háskóla Islands. Með henni vinna að verk- efninu: Örn Orrason, rafmagnsverkfrœðingur, Pósti og síma,Anita Björk Lund, tölvunar- fræðingur, Nýherja og Davíð Gunnarsson, rafmagnsverkjrœðingut; Pósti og síma Punktar... Enn meiri hraði Opinberir aðilar í Banda- ríkjunum hafa ákveðið að setja upp á þessu ári einkar hrað- virkt net um allt land byggt á ATM. Meðal annars á það að flytj a upplýsingar um veðurfar. Það sem áður tók níu tíma að flytja mun nú taka níu mín- útur. Gögn frá athugunar- stöðvum um allt land og frá gervihnöttum fara um fjórar vinnslumiðstöðvar og eiga meðal annars að veita flug- stjómendum og sjófarendum samfelldar upplýsingar um veðurfar og öruggari veður- spár. Tölvumál - 11

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.