Tölvumál - 01.03.1996, Síða 13

Tölvumál - 01.03.1996, Síða 13
Mars 1996 Staðarnet Landsbókasafns Islands - Háskólabókasafns Geisladiskar Aðrir STARFSWIENN SAFNGESTIR VERKEFNAÞ ROUN TÓN- OG MYNDDEILD Mynd 1. herbergi sem fræðimenn fá afnot af í lengri eða skemmri tíma. Upplýsingakerfið Upplýsingakerfi Lbs. er að sjálfsögðu byggt upp miðað við þarfír safnsins og markmiðið er að tryggja að safnið geti sinnt skyld- um sínum sem þjóðbókasafn og háskólabókasafn, uppfyllt þarfir starfsmanna og gesta um greiðan aðgang að upplýsingum og verið hjálpartæki við dagleg störf. Netkerfi Staðamet safnsins er sá grunn- ur sem upplýsingakerfið byggir á. Um húsið liggja „10Base-T“ samhæfðir strengir, 8 víra með óskermuðum snúnum vírapörum. Gæðin miðast við „Category 5“ þannig að strengirnir geta flutt a.m.k. 100 Mbit/s. Ýmsar stofn- lagnir eru annaðhvort um ljósleið- ara eða samása (coaxial) strengi. Ljósleiðari tengir staðamet safns- ins við staðamet HÍ. Staðarnetið er nú 10 Mbit/s Ethemet en hægt er að auka flutn- ingsgetuna á hluta þess eða á því öllu í 100 Mbit/s þegar þörf krefur. Uppbygging staðametsins sést á mynd 1. Megin hönnunarfor- sendur eru að: • skilja að tölvur starfsmanna og notenda til þess að skapa sem mest öryggi, auðvelda stjómun og viðhald hugbúnaðar og jafna álag á tölvunetið • koma þjónum, gáttum og öðrum sameiginlegum tölvum fyrir þannig að greiður aðgangur sé að þeim • geta aukið flutningsgetu á hluta kerfisins. Tveir leiðstjórar með 8 útgöng- um eru á netinu og 32 endurvakar eru í tengiskápum á öllum hæðum hússins. Þessi búnaður er frá Opnum Kerfum hf. Tölvukerfi Landsbókasafns (hugbúnaöurog vélbúnaður) Tölvuvæðing gamla Lands- bókasafnsins og Háskólabóka- safnsins hófst mjög seint. Notkun tölva hófst árið 1980 þegar íslensk bókaskrá sem Lbs. gefur út var fyrst tölvuvædd. Fyrsta einmenn- ingstölvan var keypt 1983 og upp frá því fór smám saman í vöxt að slíkar tölvur væru notaðar við skráningu á söfnunum. Fyrsti CD- ROM diskurinn var keyptur 1986. Arið 1989 var tekin ákvörðun um að yfirfæra spjaldskrár safnanna á tölvutækt form og setja upp nútíma bókasafnskerfi þar sem hægt væri að skrá safnkostinn, hafa eftirlit með útlánum o. fl. Fyrir valinu Tölvumál - 13

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.