Tölvumál - 01.03.1996, Qupperneq 15
Mars 1996
Mynd 2.
gangi um símakerfið en ekki er
boðið upp á hann ennþá. Vélbún-
aður samanstendur af einni HP
einkatölvu með 1 Gb föstum diski,
28 geisladiskadrifum og tveimur
gáttum fyrir íjarvinnslu. Opin
Kerfihf. sá um uppsetningu á kerf-
inu.
Búnaður fyrir sjónskerta og
hreyfihamlaða
Sérstök ástæða er til að nefna
að í Lbs. er mjög fullkominn bún-
aður íyrir fatlaða. Þessi búnaður
hefur því miður verið of illa nýttur
en vonandi tekst að vekja meiri
athygli á honum og ná betur til
þessa hóps safngesta. I aðal-
atriðum er búnaðurinn eftirfarandi:
• 3 vinnustöðvar fyrir hreyfi-
hamlaða með sérstökum lykla-
borðum auk tenginga fyrir sér-
hæfðan búnað ásamt sam-
skiptahugbúnaði (til að auð-
velda innslátt og stjórnun).
• 2 vinnustöðvar fyrir sj ónskerta
með tveimur talgervlum,
blindraletursskjá og blindra-
letursprentara, stækkunarbún-
aði bæði fyrir tölvuletur, rit og
myndefni ásamt tilheyrandi
hugbúnaði.
Þjónusta safnsins
Lbs. veitir að sjálfsögðu marg-
víslega þjónustu og hér verður
aðeins minnst á þá tölvuþjónustu
sem safngestir geta fengið. Hvað
þetta snertir skiptast safngestir í
tvo hópa, þ.e. almenna notendur
annars vegar og stúdenta, kennara
og aðra tengda Háskólanum hins-
vegar. Allir notendur fá að sjálf-
sögðu aðgang að bókasafnskerf-
unum Gegni og Greini en auk þess
að ritvinnslu, töflureikni, Orðabók
Aldamóta og Powerpoint. A nokkr-
unr tölvum er einnig aðgangur að
nettengdum geisladiskum. Al-
menningur hefur einnig takmark-
aðan aðgang að Alnetinu, þ.e.
eingöngu að Veraldarvefnum og er
það vegna þess að almenningur fær
ekki sérstök aðgangsheiti. Enn-
fremur er aðgangur að greinasafni
Morgunblaðsins og að bókasafns-
kerfmu Feng hjá Skýrr.
Stúdentar hafa aðgang að
meiri þjónustu og byggist það á því
að safnið er bókasafn Háskóla
íslands og að samkomulag er við
Reiknistofnun Háskólans (RHI)
um að þeir sem fengið hafa aðgang
(þ.e. heiti og aðgangsorð) hjá RHÍ
geta skráð sig í tölvukerfi Lbs. og
þamiig fengið aðgang að ýmsum
þjónurn RHÍ. Þetta gefur þeim kost
á að:
1 ná í þau gögn sem þeir eiga hjá
RHÍ, vinna með þau og
uppfæra
2 fá fullan aðgang að Alnetinu.
3 flytja skrár yfir netið
4 prenta á geislaprentara í Lbs.
Auk þessa er ástæða til að
nefna Kynni en þar er um að ræða
kerfi er veitir leiðbeiningar um
starfsemi og þjónustu safnsins.
Þetta kerfi er á einkatölvu með
snertiskjá sem staðsett er við aðal-
inngang safnsins. Lbs. hefur
heimasíðu á Veraldarvefnum og má
þar fá ýmsar upplýsingar um
starfsemi safnsins og einnig er
aðgangur að Kynni um síðuna.
Slóðin sem nota á er: http://
www.bok.hUs/
Tölvur safngesta eru dreifðar
um allar hæðir safnsins en flestar
eru á almennu lesrými á 3. og 4.
hæð. Einnig eru tölvur í lestrarsal
þjóðdeildar og á 2. hæð eru tölvur
fyrir ýmis sérforrit svo sem
Alnetið, Feng o. fl.
I 20 af 26 lesherbergjum sem
leigð eru út eru tölvur.
Aðgangi að tölvum safngesta er
Tölvumál - 15