Tölvumál - 01.03.1996, Side 20
Mars 1996
rófið plús það enska.
Eitt af skyldubundnu atriðum
staðalsins er röðun, grein 4.1. Þetta
mál reyndist nokkuð erfitt við-
fangs, þrátt fyrir að nýlega hafí
starfað sérstök röðunamefnd til að
koma íslenskum kröfum á ffamfæri
í alþjóða - og Evrópustöðlum.
Meginástæðan fyrir vandanum var
sú að erlenda starfið er enn í fullum
gangi og því erfitt að festa hendur
á því hvemig best er að lýsa kröf-
um okkar, sérstaklega að því er
varðar svokölluð röðunarþrep.
Umræðan snerist því fremur um
framsetningu en röðunarreglumar
sjálfar. Ágætis lausn fannst á röðun
fomíslenskra stafa, en á tímabili
leit út fyrir að skilgreina þyrfti sér-
stakar röðunarreglur fyrir þá, sem
hefði þýtt tvær íslenskar færslur í
Evrópuskrána. Eina efnisatriðið
sem enn kann að orka tvímælis er
hvort við eigum að krefjast þess,
einir allra þjóða, að lágstafir skuli
raðast á undan hástöfum á öðru
röðunarþrepi.
Þegar kom að umritunarreglum
(grein 4.11) var ákveðið að stofna
sérstakan vinnuhóp til að skilgreina
umritun úr grísku, en reglur voru
til frá íslenskri málnefnd um
umritun úr kýrillísku letri. Nefndin
ákvað að lýsa einnig samræmdri
umritun úr íslensku stafrófi í enskt.
Þó grunnkrafa staðalsins sé ísl-
enskt stafróf plús enskt, kemur um-
ritun af þessu tagi að gagni við
sjálfvirkar þýðingar milli stafa-
taflna, t.d. í tölvupóstsamskiptum
við útlönd. Langar umræður urðu
um tilvitnunarmerki (gæsalappir),
sem enduðu með því að sérstökum
vinnuhóp var falið að skilgreina
umritun gæsalappa í Intemetpósti.
Komst hann að þeirri niðurstöðu
að nota bæri franskar gæsalappir
(»«) í slíkum tilvikum. Vonast er
til að sjálfvirk þýðing af því tagi
verði sett upp í öllum tölvupóst-
kerfum á Islandi.
Eitt einfalt atriði, sem sýnir vel
hver meginstefna nefhdarinnar var,
er ákvörðun hennar að leyfa ekki
Y eða y sem jákvætt svar í tölvu-
kerfum. Þetta kemur fram í grein
4.6.
Þegar aftar dró í atriðalistann
fór nefndin að fresta ákvörðunum
til síðari tíma. Þó er fjallað um
mannanöfn (4.16) og utanáskriftir
(4.25) í staðlinum. Að sjálfsögðu
er lýst íslenskum mannanafna-
hefðum, en nefndin treysti sér ekki
til að lýsa ávörpum og titlunum að
neinu marki. Ákveðið var að sfyðj-
ast við reglur Póst- og símamála-
stofnunarinnar um utanáskriftir
bréfa, en þó kann að orka tvímælis
í hvaða falli skuli hafa heiti gatna
og póststöðva.
Nefndin skilaði af sér frum-
varpi að forstaðli FS 130, rúmu ári
eftir stofnun hennar. Ljóst er að
mikil vinna er þar að baki og því
full ástæða til að þakka nefndar-
mönnum og þátttakendum í vinnu-
hópum fómfúst starf.
Hvað er framundan?
Fjöldinn allur af athugsemdum
barst við staðalfrumvarpið eftir
fundinn í janúar og skipta þær
tugum síðna. Athugasemdirnar
hafa verið teknar saman eftir efnis-
greinum og sérstakur vinnuhópur
er byrjaður að gera tillögur um af-
greiðslu þeirra. Erfíðastar viðfangs
em athugasemdir um utanáskriftir,
frönsk tilvitnunarmerki og
alþjóðlega ritun dagsetninga.
Tillögur vinnuhópsins verða
lagðar fyrir sjálfa tækninefndina,
niðurstöður hennar fara til stjómar
FUT og loks er það staðfestingar-
nefnd Staðlaráðs íslands sem
gengur úr skugga um að rétt hafí
verið staðið að gerð staðalsins og
staðfestir hann sem íslenskan
staðal ef svo er.
Ef einhver þessara aðila telur
að verulegar breytingar hafi orðið
á þeim texta sem var auglýstur til
umsagnar, þá er hægt að ákveða
að auglýsa staðalinn aftur til um-
sagnar.
Þegar búið er að staðfesta stað-
alinn er ekki annað eftir en að
kynna hann innanlands og utan eins
og fært verður. Ekki færi illa á því
að FS 130 yrði efstur á blaði í
Evrópuskrá um þjóðlegar þarfir, en
það er ekki útilokað. Þar verða
upplýsingarnar aðgengilegar á
tölvuneti hverjum sem hafa vill.
Framleiðendur geta þá auðveldlega
kennt kerfum sínum íslenskar
hefðir, að því marki sem þær em
tilgreindar í staðlinum og kerfm
leyfa.
Forstaðallinn gildir aðeins til
reynslu í 2 ár og þess vegna þarf
að hefjast handa við endurskoðun
hans sem allra fyrst, enda var
mörgum erfiðum málum ffestað til
síðari ákvörðunar, t.d.:
Greinarmerki og sérstafir
Auðkenning lögpersóna
Utanáskriftir
Tölvupóstföng
Samtal manns og vélar
íslenskt hnappaborð
(með stærra stafamengi)
Því er ljóst að framhald verður
á þessu starfí. Það er jafn ljóst að
það verður togast á um hlutina eins
og gert var í grísku umritunar-
nefndinni. Um útkomuna þýðir
lítið að spá, eins og stendur í
kvæðinu:
Hvað það verður veit nú enginn
vandi er um slíkt að spá.
En eitt er víst að alltaf verður
ákaflega gaman þá.
Þorvarður Kári Ólafs-
son erframkvœmdastjóri
Fagráðs í upplýsinga-
tækni og Evrópunefndar
um stafatækni
20 - Tölvumál