Tölvumál - 01.03.1996, Page 22
Mars 1996
inn meðstjómandi til eins ár. Vara-
menn til eins árs vom samhljóða
kjörnir Oskar B. Hauksson og
Sæmundur Sæmundsson.
6. Kosning tveggja endur-
skoðenda
Jakob Sigurðsson og Sigurjón
Pétursson voru einróma endur-
kjömir.
7. Önnur mál
7.1. Tölvumál
Gísli Ragnarsson kvað ritnefiid
vilja heyra í félagsmönnum um
blaðið, hvemig þeim þætti til hafa
tekist. Haukur Oddsson lýsti vilja
á að hefja stefnumörkunammræð-
ur um blaðið. Douglas Brotchie
vildi halda sömu stefnu í útgáfu-
málum og halda sömu dreifmgu.
Sérstaða okkar er að vera hlutlaus
og við eigum ekki að láta sam-
keppni hafa áhrif. Jóhann Gunn-
arsson kvað blaðið gott, í því væri
fagleg umfjöllun. Hann kvað þó
ekki skaða að hafa það til sölu á
stöku stað. Heimir Sigurðsson
stakk upp á að ein síða verði
helguð starfsemi félagsins, það
væri söguleg heimild. Laufey Asa
Bjamadóttir stakk upp á að bóka-
söfn fengju Tölvumál á tölvutæku
formi. Douglas Brotchie taldi að
við ættum að stefna að því að allt
efni sem félagið gefur út verði að-
gengilegt á Intemeti. Öm Kalda-
lóns kvað félagið ekki þurfa að ótt-
ast samkeppni. Nýtt blað á mark-
aðnum höfðaði til miklu þrengri
hóps en Tölvumál og benti á fjölda
stórtölvunotenda hér á landi sem
dæmi. Fundurinn lýsti þannig al-
mennri velþóknun með störf
ritnefndar og vill að hún haldi
áfram á sömu braut þó sú braut
megi þróast nokkuð.
7.2. Tölvuorðasafn
Laufey Ása Bjamadóttir benti
á nauðsyn þess að gefa 3. útgáfu
tölvuorðasafns á tölvutæku formi.
7.3. Stefnumörkun ríkisstjórnar
Jóhann Gunnarssonbenti stjóm
á að athuga með hvaða hætti mætti
virkja félagið í tengslum við stefnu-
mörkun sem verið er að vinna að á
vegum ríkisstjómarinnar. Má t.d.
halda firnd eða ráðstefnu um málið
þar sem fulltrúi félagsins í stefnu-
mörkunamefhdinni gæti gert grein
fýrir störfum hennar. Félagsmenn
hefðu að líkindum sitthvað ff am að
færa. Sigrún Helgadóttir sagði að
tilraunir hefðu verið gerðar til að
fá stjómvöld til að taka eitthvað af
starfsemi orðanefndar upp á sína
arma. Ef verið er að móta stefnu
þarf að sjá til þess að til sé íslensk-
ur orðaforði og skilgreiningar.
Haukur Oddsson kvað félagið
halda á lofti þerri skoðun að
menntun sé meginundirstaða skyn-
samlegrar stefhu í upplýsingatækni
og minnti á ráðstefnuna
„Skólastarf og upplýsingatækni“
sem félagið mun halda næsta
sumar í samstarfi við Kennarahá-
skóla íslands og Félag tölvu-
kennara.
Fleira var ekki rætt.
Fundarstjóri þakkaði fundar-
mönnum góða þátttöku í fundar-
störfúm og sleit fúndi.
Ritarar voru Svanhild-
ur Jóhannesdóttir og
Douglas Brotchie
Fjárhagsáætlun
Tekjur áætlun '96 1995
Félagsgjöld 3.922.000 3.607.845
Ráðstefnur og fundir 2.834.000 3.774.540
Auglýsingatekjur 2.180.000 1.901.250
Vaxtatekjur 150.000 96.413
Alls 9.086.000 9.380.048
Gjöld
Skrifstofu- og stjómunarkostnaður 2.141.000 1.943.412
Laun og launatengd gjöld 2.686.000 2.477.258
Ráðstefnur og fundir 1.436.000 2.122.239
Útgáfúkostnaður 2.547.000 2.091.245
AUs 8.810.000 8.634.154
Tekjur umfram gjöld 276.000 745.894
Áætlun þessi miðar við að
- haldnir verði fjórir hádegisverðarfundir á árinu
- haldnar verði fj órar ráðstefnur með hefðbundnum hætti
- haldin verði ein ráðstefna fyrir kennara og skólafólk
- gefin verði út sex tölublöð af Tölvumálum
- félagsgjöldhækkium2,5%
22 - Tölvumál