Tölvumál - 01.03.1996, Qupperneq 31
Mars 1996
Á meðan á uppbyggingu breið-
bandsnetsins stendur verður það
aðskilið frá talsímakerfinu og
notað sem dreifikerfi fyrir sjón-
varp. Auðvelt verður þó að breyta
því í gagnvirkt kerfi síðar. Þá mun
aðeins þurfa að skipta út endabún-
aði eða uppfæra hann eftir atvikum
og þá verður hægt að nota það fyrir
talsímaþjónustu, til gagnaflutn-
ings, sjónvarpsdreifmgar, mynd-
bandamiðlunar og annarrar þjón-
ustu í framtíðinni sem krefst meiri
bandbreiddar en þeir kopar-
strengimir hafa sem nú em notaðir.
AMUSE verkefnið
AMUSE (Advanced Multime-
dia services for Residential Users)
er rannsóknarverkefni á sviði
margmiðlunar. Þetta er samstarfs-
verkefhi 23 evrópskra fyrirtæki og
stofnanna frá 7 löndum. ESB
sfyður þetta verkefni fjárhagslega.
Innlendir samstarfsaðilar Pósts og
síma, sem stjórnar verkinu á
íslandi, em Kerfísverkfræðistofa
HÍ og Nýherji.
AMUSE verkefnið gengur út á
að prófa margmiðlunarþjónustu á
ATM fjarskiptagrunni. Um er að
ræða 7 mismunandi tilraunagrunna
víðsvegar um Evrópu, sem hver um
sig prófar ákveðna kerfislausn og
hinar ýmsu tegundir margmiðlun-
arþjónustu.
Verkefninu er skipt í tvö skeið.
Á fyrra skeiðinu er verið að prófa
ATM flutningskerfið, einfalda
þjónustu, minni bandbreidd til
notenda, MPEG f þjöppunarstað-
allinn verður notaður og aðeins fO-
20 notendur eru tengdir við hvem
tilraunagrunn. Á seinna skeiðinu
verður notendum fjölgað, flutn-
ingsgetan aukin og MPEG 2 þjöpp-
unarstaðallinn notaður. Einnig er
hugsanlegt að tilraunagrunnamir
verði tengdir saman og notendur í
einu landi geti sótt margmiðlunar-
þjónustu til annars lands.
Tilraunagrunnurinn hér á
íslandi, sem mynd 2 sýnir, byggir
á svonefndri „Fiber To The Curb“,
FTTC, og „Fiber To The Build-
ing“, FTTB, lausn. FTTC lausnin
gengur út á það að ljósleiðari er
lagður í götuskáp, en í FTTB er
ljósleiðarinn lagður inn í fjölbýlis-
hús. Síðasti spölurinn inn í hús eða
íbúð notanda verður annaðhvort á
kóaxstreng eða á parstreng. Flutn-
ingshraðinn í stofnkerfinu þ.e. frá
miðlurum þjónustuveitenda að
ATM notendaskiptistöðinni, verð-
ur 155Mb/s. Frá notendaskipti-
stöðinni til hvers notanda verður
hraðinn 25,6 Mb/s, sem er nýr
staðall sem ATM Fomm gaf út í
byrjun nóvember 1995.
Heima hjá notendum verður
tengt svonefnt stafrænt endabox
(digital set top box) frá Online
Media. Með þessum búnaði verður
hægt að velja bíómyndir, fféttaefni
og stunda verslun og bankavið-
skipti í venjulegu sjónvarpi.
Miðlarar þjónustuveitenda
verða tengdir við ATM flutnings-
kerfið og öflugasta tölvan verður
fyrir myndmiðlunina, en hún verð-
ur frá Siemens Nixdorf.
ATM skiptistöðvarnar verða
þrjár. Stofnskiptistöð frá Fore sys-
tems, sem myndmiðlarinn og aðrar
tölvurerutengdarvið. Stofnskipti-
stöðin er síðan tengd við tvær ATM
notendaskiptistöðvar frá SJ Re-
search. Önnur skiptistöðin verður
í götuskáp og hin verður í fjölbýlis-
húsi. Ekki hefur enn verið ákveðið
hvaða hverfi verður valið fyrir
þennan tilraunagrunn.
Ákveðið hefur verið að bjóða
upp á fems konar þjónustu í þess-
ari tilraun. Fyrsta og mikilvægust
er myndmiðlun (movies on de-
mand), en sú þjónusta gerir mestu
kröfurnar til flutningskerfis og
tölvubúnaðar bæði hjá notanda og
þj ónustuveitanda.
Önnur þjónusta verða fréttir-
eftir-þörfum (news on demand)
sem gæti verið á textaformi eða
myndaformi; Þetta er háð þjón:
ustuveitanda og hversu ört er hægt
að uppfæra fréttir á því formi sem
valið verður. Ef um myndbönd er
að ræða verður að MPEG-kóða
allt efni.Aðrar tegundir þjónustu,
sem nú þegar hafa verið valdar, em
heimabanki og fjarverslun. Ekki er
búið að veljaþjónustuveitendur, en
rætt hefur verið við nokkra.
Verkefnið hófst 1. september
1995 og að því vinna fjórir sér-
fræðingar undir verkefnisstjórn
Ebbu Þóm Hvannberg. Tveir eru
á vegum Pósts og síma, einn frá
Háskólanum og einn frá Nýherja.
Áætlað er að þetta verkefni taki
þrjú ár.
Sarnantekt
Af þessari lauslegu samantekt
má ljóst vera að gróskan í fjar-
skiptaheiminum er mikil og erfitt
að hafa yfirsýn yfir allt það sem er
að gerast. Þó er líklegt að í náinni
framtíð muni möguleikar okkar til
að nálgast upplýsingar, skemmti-
efni og annað fólk, hvar sem er og
nánast hvaðan sem er, aukast vem-
lega.
ATM Breiðbandsnet Pósts og
síma mun sjá íslendingum fyrir
bandbreiðum brautum innanlands
sem utan. GSM kerfið og arftakar
þess munu sjá til þess að þeir sem
vilja alltaf vera í sambandi hvar
sem er og hvenær sem er, munu
geta það.
Þessi framtíð mun vissulega
hafa gríðarleg áhrif á líf okkar
allra. Hvemig við vinnum, hvar við
vinnum, frítíma okkar, fjölskyld-
una, fræðslu, heilsu og þjóðskipu-
lagið allt. Það em spennandi tímar
framundan.
Þór Jes Þórisson er
yfirverkfræðingur á
Fjarskiptasviði Pósts
og síma
Tölvumál - 31