Tölvumál - 01.10.1997, Side 6
TÖLVUMÁL
Frá orðanefnd
Eflir Slefón Btiem
Nú líður óðum að 3. útgáfu
Tölvuorðasafns. Orðanefnd er þó
enn ósátt við heiti á nokkrum mik-
ilvægum hugtökum og er alls óvíst
að góð niðurstaða um þau náist
áður en 3. útgáfan lítur dagsins
ljós. Menn verða að taka því, og
mega í rauninni vel við una, því
að íðorðastarf er þess eðlis að því
lýkur aldrei. Ný hugtök koma sí-
fellt til sögunnar og ný heiti skjóta
upp kollinum í stað eldri heita.
Internet eða Lýðnet
Gott íslenskt heiti hefur vantað
fyrir Intemet sem almenn sátt getur
orðið um. Intemet er erlent sémafn
sem hefur verið notað í íslensku
þannig að viðliðurinn -net er látinn
taka íslenskum beygingum. Þetta
þykir réttlætanlegt af því að
þannig vill til að íslenska orðið neí
hefur sömu merkingu og enska
orðið net. Forliðurinn Inter- er
hins vegar útlendur eftir sem áður.
Mörg dæmi eru um að erlend
sémöfn em þýdd yfir á íslensku og
þá rituð með stórum upphafsstaf.
Þetta á meðal annars við um heiti
á mörgum fjölþjóðlegum stofnun-
um. Internetinu svipar að ýmsu
leyti til fjölþjóðlegra stofnana þó
að annað sé ólíkt. Internetið er til
dæmis ekki lögaðili og hefur enga
yfirstjórn. Og enginn á Internetið.
Orðanefnd telur æskilegt að
Internetinu sé fengið íslenskt sér-
nafn og ekkert er því til fyrirstöðu
frá mállegu sjónarmiði að svo sé
gert. Vandinn er hins vegar að
finna gott heiti. Skömmu áður en
þessi pistill var skrifaður kom upp
hugmynd á fundi orðanefndar um
að nota heitið Lýðnet af því að
þetta er net sem almennur aðgang-
ur er að, sbr. til dæmis heitin
landslýður, lýðræði og lýðhylli. Til
glöggvunar fyrir lesendur má geta
þess að Internetið eða Lýðnetið
telst til neta sem á ensku nefnast
global area network. Slík net eru
skilgreind þannig í íslenskri þýð-
ingu: ‘Netsemsameinarólíkarteg-
undir tölvuneta’. Orðanefnd hefur
valið slíku neti heiúðfjölnet af því
að í því geta verið margai' tegundir
tölvuneta. Við val á íslensku heiti
fyrir Internet þarf að hafa í huga
að það nær ekki yfir öll net heldur
aðeins tölvunet og notar aðeins
eina tegund samskiptareglna, svo-
kallaðar TCP/IP-samskiptareglur.
Stiklumiðlun
Á Internetinu, einkum á ver-
aldarvefnum, er notuð aðferð við
að stökkva á milli upplýsinga sem
á ensku ber heitið hypermedia.
Orðanefnd hefur áður kynnt ís-
lenska heitið tengimiðlun fyrir
þetta hugtak, sjá pistil orðanefndar
í Tölvumálum, 3. tbl. júlí 1996.
Fjölmörg önnur skyld hugtök hafa
hjá orðanefnd fengið heiti með
forliðnum tengi- sem þýðingu á
enska forliðnumhyper-. Viðmæl-
endur orðanefndar hafa ekki allir
tekið þessum heitum fagnandi. Til
þess að endurbæta þessi heiti hefur
nýlega komið upp tillaga um að
nota forliðinn stiklu- í staðinn fyrir
tengi-. Nafnorðið gæti verið
heiti á því sem orðanefnd hefur
áður kallað tengimiðlunarhnút. Á
eftirfarandi lista sést hvernig heiti
ýmissa hugtaka gætu litið út með
henni:
hyperdocument stikluskjal
hyperlink, hypermedia link
stikluleggur
hypermediano. stiklumiðlun
hypermedialo. stiklu-,
stiklumiðlunar-
hypermedia database,
hyperbase stiklugagnasafn,
stiklugagnagrunnur
hypermedia library,
hyperlibrary stikluskjalasafn
hypermedia navigation stikl,
stikluráp
hypermedia structure
stikluskipan
hypermedia node stikla
hypermedia path stikluleið
hypermedia tool stiklutól
hypermedia web stikluvefur
hypermultimedia lo.
stiklumargmiðlunar-
hyperobject stikluhlutur
hypertext stiklutexti,
stiklutextakerfi
Stefán Briem er ritstjóri
Tölvuorðasafns og
starfsmaður orðanefndar
Skýrslutæknifélags Islands.
Netfang: stefan @ ismal. hi. is
Veffang Tölvuorðasafns:
http://www. ismal. hi. is/to/
6 - OKTÓBER 1997