Tölvumál - 01.10.1997, Síða 15
T Ö L V U M Á
ekki eru aldamótahæf.
2. Hugbúnaðarkerfi/forrit sem
eru aldamótahæf.
3. Hugbúnaðarkerfi /forrit
sem hætt er að nota.
2.3 Forgangsraða hugbúnaðar-
kerfunum/fonitunum sem ekki
eru aldamótahæf.
2.4 Forritin eru skoðuð gaumgæfi-
lega og notkun dagsetninga
kortlögð og metin. Þessi verk-
þáttur krefst þess að notuð séu
þau hjálpartól sem til staðar em
fyrir hvert umhverfi fyrir sig.
Verkþáttur 3 - hönnun
Hönnun hvers hugbúnaðar-
kerfis fyrir sig snýst m.a. um að
velja aðferð til að gera kerfið
aldamótahæft. Þá er átt við hvort
nota skuli gagnaleiðina, glugga-
leiðina eða sambland þessara
tveggja aðferða.
I lok hönnunnar á að vera ljóst
hvaða einingum á að breyta og
hverning. Einingarnar eru síðan
skráðar inn í hópvinnukerfið Lo-
tus Notes undir tilteknu útgáfu-
númeri og þegar því er lokið þá
hafa menn yfirlit yfir allar einingar
sem breyta þarf vegna ársins 2000.
Verkþáttur 4 - rýni/prófun á
hönnun
Til að tryggja að einhver
heildarumsjón sé með breytingum
skulu 1-2 menn fara yfir hönnun-
ina og gera athugasemdir ef þörf
þykir.
Verkþáttur 5 - breytingar
Hér eru sjálfar breytingarnar
framkvæmdar á forritunum og/eða
gagnaskránum í samræmi við það
sem ákveðið var í hönnuninni.
Verkþáttur 6 - samþætting
Prófa þarf allt umhverfi sem
hugbúnaðarkerfin vinna í og er þá
átt við vélbúnað, stýrikerfi og allan
aðkeyptan hugbúnað. Setja upp
verkefnið í aldamótahæfu um-
hverfi og fá fullvissu um að forritin
vinni eðlilega.
Verkþáttur 7 - kerfispróf
Áður en kerfispróf getur hafist
þá þarf að sjá til þess að til staðar
séu prófunargögn sem taka á öllum
þáttum vegna ársins 2000. Það er
mikil vinna fólgin í því að byggja
upp þessi prófunargögn. Mikil-
vægt er að gera sér grein fyrir því
að kerfisprófsþátturinn er lang-
viðamestur og er áætlað að 65%-
70 % vinnunnar við að gera tiltekið
hugbúnaðarkerfi aldamótahæft sé
innifalið í þessum verkþætti. Að
lágmarki þarf að prófa eftirfar-
andi:
• Núverandi dagsetningu
• Árið 1999, sem gæti gefið til
kynna „EOF“ eða að eitthvað
sé útrunnið („expiration date“)
• Árið 2000
• Árið 2001 til að tryggja
áframhaldandi virkni
verkefnisins á nýrri öld
• Árið 2004 sem er fyrsta
hlaupár eftir aldamótin.
Áætlað er að prófa kerfin að
hluta til á sérstakri tölvu sem sett
verður upp með árið 2000 í huga.
Verkþáttur 8 - viðtökupróf
Ef einhverjar breytingar eru
gerðar á viðmóti þá þurfa notendur
að fara yfir þær.
Verkþáttur 9 - yfirtaka
Færa fullprófaða kerfið úr
kerfisprófsumhverfi yfir í vinnslu-
umhverfi.
Einkatölvuheimurinn
og árið 2000
Ég get ekki látið hjá líða í þess-
ari grein minni að minnast á
einkatölvuheiminn og árið 2000.
L
Ef einhver hefur haldið að vanda-
mál vegna ársins 2000 séu einka-
mál stórtölvuheimsins þá er sá
hinn sami á miklum villigötum. Því
er víða haldið fram af sérfræðing-
um að umtalsverð vandamál muni
hrjá einkatölvunotendur um alla
heimsbyggðina um aldamótin og
jafnvel fyrr. Enn í dag er verið að
framleiða vélbúnað í einkatölvur
sem ekki er aldamótahæfur. Ég
keyrði um daginn sérstakt prófun-
arforrit sem athugar aldamóta-
hæfni vélbúnaðarins á einkatölv-
unni sem ég nota dags daglega. Sú
tölva er tiltölulega ný en það er
skemmst frá því að segja að hún
féll á öllum prófum sem fyrir hana
voru lögð. Þar má telja BIOS próf-
un, hlaupársprófun og hæfni stýri-
kerfisins til að ráða við aldamótin.
Forritið sem um ræðir heitir
„WILLIT“ og fæst án endurgjalds
(,,freeware“) á alnetinu (http://
www.sbhs.com/y2k/main.htm).
Ennfremur er ljóst að umtals-
verður hluti þess hugbúnaðar sem
í notkun er á einkatölvum í dag er
ekki aldamótahæfur.
Lokaorð
Víða erlendis hafa tölvufyrir-
tæki tekið höndum saman og
stofnað sérstakar samráðsnefndir
þar sem saman hafa komið t.a.m.
verkefnisstjórar fyrirtækjanna
vegna ársins 2000. Þar hafa menn
borið saman bækur sínar og lært
hver af öðrum. Það er ljóst að
vandamál vegna aldamótanna er
ekkert einkamál og því sjálfsagt að
fyrirtæki með svipaðan tölvu-
rekstur taki sig saman og stofni til
slíkra samráða.
Guðmundur Guðmundsson er
gagnastjóri Reiknistofu bank-
anna
OKTÓBER 1997 - 15