Tölvumál - 01.10.1997, Blaðsíða 21
TÖLVUMÁL
The Business Software
Alliance - á íslandi
Eflir Hróbiait Jónatansson
Það hefur vakið nokkra athygli
á undanförnum vikurn að undir-
ritaður f.h. The Business Software
Alliance (BSA) hefur f.h. einstakra
meðlima samtakanna lagt fram
kærur til Ríkislögreglustjóra á
hendur aðilum sem grunur leikur
á um að stundi skipulögð brot gegn
lögvernduðum rétti hugbúnaðar-
framleiðenda. Slíkt er nýlunda á
íslandi en þarf þó ekki að koma á
óvart ef haft er í huga að Höfund-
arlög hafa frá árinu 1992 skilgreint
tölvuforrit með sambærilegum
hætti og bókmenntaverk með sam-
svarandi réttarvernd fyrir fram-
leiðendur tölvuforrita. Það felur í
sér þá meginreglu að meðferð
tölvuforrita, sem ekki er heimiluð
af rétthafa, er refsiverð og bóta-
skyld. Það er fyrst nú fimm árum
síðar að lögð er fram fyrsta kæran
af hálfu rétthafa vegna brota á
Höfundarlögum að þessu leyti.
Frumkvæði að þeim aðgerðum
sem gripið hefur verið til kemur
frá BSA, erlendum hugbúnaðar-
framleiðendum sem hafa u.þ.b.
50% hlutdeild af heimsmarkaði.
Það er því ástæða til þess að fjalla
stuttlega um BSA og hversvegna
talin er ástæða af hugbúnaðar-
framleiðendum, sem alla jafna eiga
í harðri samkeppni, að sameinast
í baráttu gegn forritastuldi (soft-
ware piracy).
Upplýsingatæknimarkaður er í
hröðum uppgangi í heiminum. Sá
hluti hans sem lýtur að stöðluðum
markaðsforritum er þar engin und-
antekning. í Evrópu hefur sá hluti
markaðarins vaxið um 250% frá
1988 til 1995. Árlegur vöxtur frá
þeim tíma er talinn vera u.þ.b.
15% á ári fram til aldamóta. í
kjölfar þessa vaxtar hafa efnahags-
leg áhrif verið gríðarleg, ekki síst
m.t.t. fjölgunar starfa og aukinna
skatttekna. Áhrifanna gætir því
nánast í öllum greinum þjóðlífsins.
Ætla mætti, með vísan til þessa,
að ekkert hamlaði auknum vexti
og framþróun í upplýsingaiðnaði.
En því miður er það svo að ein af
hindrunum þess að efnahagsleg
áhrif verði eins mikil og efni standa
til er stöðugur og vaxandi forrita-
stuldur í heiminum.
Meðaltalið í Evrópu yfir for-
ritastuld er álitið vera um 60%.
Ríflega annað hvert tölvuforrit er
því notað með ólöglegum hætti í
álfunni. í einstökum löndum er
hlutfallið verulega hærra s.s. í
Austur-Evrópu, en þar hleypur
hlutfallið frá 66% í Slóvakíu upp
í 95% í Rússlandi.
Ástæða þess að forritastuldur
er jafn mikill og raun ber vitni er
sú að markaðsforrit eru einföld í
meðförum, auðvelt og ódýrt er að
afrita forritin og dreifa.
Árið 1988 stofnuðu Autodesk,
Lotus Development, Microsoft,
Novell og fleiri stórir hugbúnaðar-
framleiðendur með sér félag sem
heitir the Business Software Alli-
ance. Markmið félagsins, sem er
ekki rekið í ágóðaskyni, er það eitt
að vinna að upprætingu á forrita-
stuldi í heiminum. Frá stofnun
hefur BSA staðið að yfir 600 refsi-
og skaðabótamálum gegn forrita-
þjófum og starfar nú í 77 löndum
heimsins. BSA vinnur að mark-
miði sínu með þríþættum hætti:
1) Með réttarvörsluaðgerðum.
Það er meginregla BSA að
opinbera öll refsi- og bótamál
sem beinast að brotum á hags-
munum BSA. Með opinberri
umfjöllun um lögbijóta er ætlað
að hafa varnaðaráhrif á aðra þá
sem stunda sambærilega ólög-
lega iðju.
2) Með upplýsingastarfi, þ.e.
auka fræðslu um löggjöfina,
hvað megi og hvað ekki og af-
leiðingar þess ef brotið er gegn
lögunum.
3) Með því að hafa áhrif á stjórn-
völd til þess að auka lagalega
vernd rétthafa.
Það er mikilvægt að hafa í huga
að brot á lögvemduðum réttindum
foiTÍtaframleiðenda snertir miklu
fleiri hagsmuni en. framleiðend-
anna sjálfra. Afleiðingarnar eru
m.a. þessar:
OKTÓBER 1997 - 21