Vísir - 07.11.1962, Blaðsíða 1
v r UÆSiLEGUR SIGUR DEMO
VISIR| KRATA ÍKOSNINGUNUM
52. árg. — Miðvikudagur 7. nóvember 1962. —_256. .tbl.
í fréttum frá Washing-
ton segir, að það sé álit
stjórnmálafréttaritara
blaða og útvarps og stjórn
málamanna yfirleitt, að
bandaríska þjóðin hafi vott
að Kennedy forseta og
stjórn hans traust sitt í
kosningunum og lýst sig
samþykka stefnu hans.
BISKUPSBRÉFIÐ OPNABI
.VOTTUNUM"ALLAR ÐYR
„Við höfum aldrei fengið aðra
eins auglýsingu og bækling bisk-
upsins, og það okkur að kostnað-
aríausu, þótt einhver hafi auðvitað
oiðið að greiða þá auglýsingu".
Þánnig fórust Laurits Rendeboe
örð, er hann leit inn hjá Vísi í
morgun, en Rendeboe er forstöðu-
maður Votta Jehova hér á landi. Og
hann hélt áfram: „Áður en biskup-
inn gaf út bækling sinn um okk-
ur vissu fáir um tilveru okkar hér
á landi og höfðu lítinn áhuga á boð
skap okkar. En nú veit hvert
mannsbarn í landinu af okkur og
tekur boðberum okkar með samúð
og forvitnilegum áhuga. Samúð
stafar ^af því að fólki finnst 'eigi
sanngjarnt af biskoupnum að taka
okkur eina fyrir svo sem hann
gerði, og það vekur sérstaka for-
vitni fólks hvernig biskupinn lýsir
okkur og starfsemi okkar. Það fýs-
ir sem sé,margan að kynnast þess-
um „hættulega“ trúflokki áf eigin
raun. 1 ...
vísa okkur á bug opna nú flestir
dyr sínar fyrir okkur, hvar sem við
förum um landið, og hlýða á okk-
ur með athygli. Menn sýna okkur
ekki lengur afskiptaleysi. Það
opnar okkur leiðir, sem áður voru
lokaðar, og við komum að útlist-
unum á boðskap okkar og starf-
semi.
Við erum nú 10 trúboðar Votta
Jehova hér á Iandi, 4 í Reykjavík,
1 á Akranesi, 1 á Isafirði, 2 á Ak-
ureyri og 2 í Keflavík, og við höf-
um tæpast undan að sinna öllu því
fólki sem æskir eftir fræðslu hjá
okkur. Sjö af þessum trúboðum
eru danskir, tveir þýzkir og einn
Finni, og er það takmark trúboða
okkar að læra mál þeirrar þjóðar,
sem þeir starfa hjá og tala á þvi.
(Sjálfur talar Rendeboe íslenzku
l mæta vel.)
Rendeboe kvað þá eina teljast
fullgilda meðlimi safnaðar Votta
Framh. á bls. 5.
Hvar er nú
svellið okkar?
Við hittum þetta ágæta unga
fólk vestur á Seltjarnamesi fyr-
ir nokkrum dögurn, þar sem það
var að hvíla sig eftir erfiði
skautalistarinnar. Svellið var
fyrir ofan fjörusteinana, en það
var svo indælt að hreykja sér
upp á þessa stóru steina og láta
goluna þurrka hitann burt úr
andlitinu. Þessir kunningjar
okkar heita Ema Jóhannsdóttir,
Markús Magnússon og Einar
Felixson. Nú er svellið horfið
upp f rigninguna, en vonandi
kemur það aftur á sinn stað,
áður en langt um líður. (Ljósm.
I. M.)
»ii i
Hemaðarþýðing landsins en ekki
herstöðvarnar skapar hættuna
t umræðunum um al-
mannavarnir á Alþingi í
gær tók Bjarni Bene-
diktsson dómsmálaráð-
herra til máls og skýrði
þar að nokkru skoðanir
sínar á stöðu íslands og
hlutverki meðal þjóða,
með tilliti til mögulegr-
ar styrjaldar. Sagði
þann m. a.:
Hernaðarþýðing landsins
vegna legu sinnar skapar fyrst
og fremst hættuna ef til stríðs
kemur, ekki herinn sem stað-
settur er hér. Ef herstöðvarnar
verða fjarlægðar minnkar ekki
tortímingarhættan, min sann-
færing er að hún aukist. Þá
verða meiri líkur til þess að
stríðsaðilarnir hreinlega berjist
um landið.
Herstöðvarnar hér eru og
verða okkar vörn, þær eru
hlekkur í varnarkeðju þeirra
frjálsu þjóða, sem við stöndum
með, við trúum á málstað þeirra
og til að varðveita hann verður
eitthvað að Ieggja af mörkum.
Ráðherrann benti á að sam-
kvæmt áliti sérfróðra manna
mundu árásaraðilar, ef til styrj-
aldar kæmi, í fyrstu gera til-
raun til að eyðileggja Keflavík-
urflugvöll og varpa þar kjarn-
orkusprengju. Hins vegar yrði
ekki varpað þar stærri
sprengju en nægði til þess að
eyðileggja völlinn sem slíkan,
Með tilliti til þessa yrði kraftur
sprengjunnar ekki meiri en svo
að með góðu mætti koma
nokkrum vörnum við, m. a. hér
í Reykjavík.
Engan veginn er þó fullsann-
að ennþá hvort um kjarnorku-
styrjöld yrði að ræða ef til
stríðs kæmi, a. m. k. ólíklegt
að strfð mundi hefjast með
notkun þeirra. Það væri skoðun
sem færi sifellt vaxandi og
mætti benda á Kóreustríðið og
innrás Kínverja í Indland þessu
til sönnunar.
Undir slíkum kringumstæð-
um þarf ekki að spyrja um þýð-
ingu varnarstöðva hér.
Lokaúrslit eru ekki enn kunn, en
þegar undir morgun sl. nótt var
augljóst, að demokratar myndu
ekki aðeins halda meirihluta sfn-
um í báðum þingdeildum, heldur
og að þeir ættu víða vaxandi fylgi
að fagna, og jafnvel þar, sem ekki
vaj; búizt við fylgisaukningu.
Sú fylgisaukning kom fram ekki
aðeins í kosningunum til öldunga-
deildar og fulltrúadeildar þjóð-
þingsins heldur og í ríkisstjóra-
kosningunum og öðrum kosning-
um embættismanna.
Hvarvetna var fylgzt með kosn-
ingunum af miklum áhuga, m.a.
vegna Kúbumálsins, sem án efa
hefur eflt aðstöðu forsetans, stjórn
arinnar og flokksins, en að því er
einstaklinga varðar beindist at-
hyglin aðallega að nokkrum mönn
Framh. á bls. 5.
.......—™ ii ■■■ '
Kæra!
Stjórn Bandalags starfsmanna
rikis og bæja hefir samþykkt
að kæra úrskurð Félagsdóms f
Iæknadeilunni til Hæstaréttar,
en svo sem kunnugt er synjaði
Félagsdómur að verða við kröfu
lögmanns (BSRB), Guðmundar
Inga Sigurðssonar, um að vísa
málinu frá Félagsdómi. Sam-
kvæmt lögum mun Hæstiréttur
fljótlega fjalla um þetta kæru-
mál.