Vísir - 07.11.1962, Qupperneq 5
VISIR . Miðvikudagur 7. nóvember 962.
5
VEGIR OPNAST
Bræðurnir Edward og John F. Kennedy forseti
Sigur —
Framhald af bls. 1.
um, og þá fyrst og fremst að þeim
Nelson Rockefeller ríkisstjóra í
New York, Edward Kennedy,
yngsta bróður forsetans, og Ric-
hard Nixon fyrrverandi varafor-
seta Bandaríkjanna.
hlustun á BBC eða aðrar stöðvar
og lítið hefur náðst af fréttum
NTB á „teleprenter". Um kl. 11,30
fékk blaðið UlS-frétt þess efnis
að kl. 10 árdegis hefðu tölur stað-
ið þannig í Kaliforníu: Brown
927.654 atkvæði, Nixon 787.648 at-
kvæði.
Nixon follinn?
Kl. 11 stóðu tölur þannig: Brown
1.081.000. Nixon 837.000. Búið var
að teija einn fimmta atkvæða.
Færð hefur mjög batnað á
þjóðvegum landsins við hlákuna
sem gerði eftir helgina.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerð ríkisins í morgun var
Öxnadalsheiðarvegur Iagður í gær
og er nú orðinn fær öllum bifreið-
um. Þá er og fært orðið, a. m. k.
vörubifreiðum og öðrum aflmiklum
bílum alla leið norður til Raufar-
hafnar. Svo sem frá var skýrt í
fréttum áður var mjög þungfært á
leiðinni milli Akureyrar og Húsa-
víkur og ófært með öllu norður
fyrir Húsavík. Nú hefur það allt
verið lagað og fært verður um alla
Norður-Þingeyjarsýslu. Þá var og
í gær fært orðið milli Þórshafnar
og Vopnafjarðar.
Samkvæmt fréttum sem Vega-
gerðinni bárust í gær af Austur-
landi, var enn þyngslafærð þar víða
í sveitum og flestir fjallvegir ó-
færir. Þó var í fyrrakvöld rudd leið
in um Fagradal frá Reyðarfirði
upp á Hérað, ennfremur fært orðið
til Eskifjarðar, fært á suma bæi í
Fljótsdal og eins upp að Grímsár-!
virkjuninni. Annars var enn víða ó- j
fært á innansveitarvegum þótt á
láglendi væru og hvarvetna mikil
snjóþyngsli.
j Á Vestfjörðum er unnið að þvi
' að ryðja ýmsa minni háttar fjall-
, vegi og búið er að gera leiðina
færa frá Barðaströnd og yfir í Arn
arfjörð. Er meiningin að halda
ruðningi áfram, bæði úr Arnarfirði
yfir í Dýrafjörð og eins úr Dýra-
firði yfir Gemlufjallsheiði til Ön-
undaríjarðar. Er þá aðeins Breiða-
dalsheiði eftir til að fært verði alla
Sakfelldur
Rockefeller
Hann var endurkjörinn ríkis-
stjóri í New York ríki og hefur nú
miklu sterkari aðstöðu en áður í
keppninni um að verða fyrir val-
inu sem forsetaefni republikana
1964.
Edward Kennedy.
Hann bauð sig fram sem þing-
mannsefni Massachusetts ríkis i
öldungadeildinni ,sigraði glæsilega
og skipar nú það sæti sem for-
setinn skipaði áður. — Kennedy
forseti brá sér til Boston í gær
flugleiðis til þess að greiða at-
kvæði með bróður sínum.
Nixon.
Hann bauð sig fram í Kaliforníu
gegn Brown ríkisstjóra og voru
sagðar minnkandi líkur fyrir því £
morgun, að Nixon sigraði, en þá
var talning atkvæða komin nokk-
uð á veg og Nixon nokkuð á eftir
Brown. Sú skoðun kom almennt
fram fyrir kosningar, að ef Nixon
biði ósigur í Kaliforníu, yrði senni
lega þar með lokið ferli hans sem
stjórnmálamanns.
regna slæmra skilyrða á stutt
bylgjusviðinu hafa vart nokkrar
fréttir náðst árdegis í dag með
Orð lifsins —
Framhald af bls. 16
nótt og var talað til mín, eins skýrt
og maður hefði taiað: Sendu orð
mitt út til Reykvíkinga í gegnum
síma. — í fyrstu skihii ég þetta
ekki, en þegar ég hafði íhugað
þetta, mundi ég eftir þjónustu eins
og þessari, sem ég hafði lesið um
á Norðurlöndum og orðið mjög
vinsæl.
„Ég hugsaði mér að ég skyldi
hafa það til marks, að ef þetta
væri frá Guði, fengi ég jákvæð
svör hjá símanum. Þegar ég hitti
þá að máli, tóku þeir mér mjög
vel, sögðust eiga aðeins einn sím-
svara, sem sjálfsagt væri að leigja
mér. F"nn var svo settur upp og
tók til starfa um síðustu helgi.
Virðist betta þegar vera orðið
1 mjög vinsælt.
F amhald at 16 síðu:
séð drenginn fyrr en í þeirri andrá
að slysið varð. Hann taldi sig því
á engan hátt hafa getað forðað
slysi. Ökumaður nam þegar staðar
og fór út, tók drenginn, sem að
einhverju leyti lá undir bifreiðinni,
mitt á milli framhjóls og aftur-
hjóls, í fang sér og hélt með hann
að húsi númer 78 við sömu götu,
en þar bjó móðir drengsins. Hún
kom á vettvang i sama mund, tók
við syni sínum og fór með hann
í slysavarðstofuna í bifreið þeirri,
sem hann hafði hlaupið framund-
an þegar slysið varð.
Ökumaðurinn hvarf einnig
skömmu síðar af staðnum, og það
án þe að kveðja lögregluna á
vettvang. En morguninn eftir
mætti hann hjá rannsóknarlögregl-
unni og gaf skýrslu um slysið.
Mál var höfðað á hendur öku-
manninum fyrir að hafa ekki sýnt
nægilega aðgæzlu í akstri og hafa
þannig orðið valdur að meiðslum
drengsins. Einnig var mál höfðað
á hann fyrir að hverfa af slysstað
án þess að tilkynna lögreglunni áð-
ur um slysið og kalla hana á stað-
inn.
1 gær kvað Gunnlaugur Briem,
sakadómari upp dóm í máli þessu
í Sakadómi Reykjavíkur. Þar segir
að ekki sé ljóst samkvæmt gögn-
um málsins að ökumaðurinn hefði
sýnt af sér gáleysi í akstri og með
þvi orðið valdur að slysinu. Var
hann sýknaður af þeim lið ákær-
unnar. Hins vegar var ökumaður
dæmdur í 1000 króna sekt og gert
að greiða allan sakarkostnað fyrir
það að hafa ekki kvatt lögreglu
á staðinn, en með því hafði hann
spillt sönnunargögnum.
Framangreint hefur að því
leyti mikla þýðingu fyrir ökumenn
að þeim verði það ljóst að á þeim
hvílir skylda að kveðja lögreglu á
vettvang þegar slys ber að höri-
um. Sama gegnir og um árekstra
þar sem skemmdir hljótast á farar
tækjum.
leið til ísafjarðar, en ekki nein á-
kvörðun tekin ennþá hvort hún
verður líka rudd. Þar má búast við
að snjór sér mjög mikill.
Áður var búið að skýra frá því
hér £ blaðinu að Barðastrandarleið
hafi verið rudd, þannig að nú
greiðist að nýju úr samgöngum til
Tvö göbb
Slökkviliðið var gabbað tvivegis
með fárra mfnútna millibili f nótt
með þvi að brotnir voru bruna-
boðar.
Var annar brunaboðinn á Lauga
vegi 28, hinn f Þingholtsstræti 12.
Benda líkur til að um einn og
sama mann hafi verið að ræða,
sem valdur sé að hvoru tveggja
gabbinu og hafi hann gengið rak-
leitt frá öðrum brunaboðanum til
hins. En eins og áður hefur verið
skýrt frá hafa verið mikil brögð
að því undanfarið að slökkviliðið
hafi verið gabbáð hér í borg. Eru
borgarbúar vinsamlegast beðnir að
hafa vakandi augu á slíkum óþokk
um, þar sem þeirra kann að verða
vart.
Auk gabbs var slökkviliðið kvatt
tvisvar á vettvang í gær. I fyrra
skiptið um hádegisleytið að Bæjar-
sjúkrahúsinu f Fossvogi. Þar komst
eldur í eins konar skilrúmimilliaðal
byggingarinnar og timburbygging-
arinnar, en þær eru aðskildar með
tvöfpldum veggjum. Skilrúm milli
þeirra var klætt með trétexi og
korki og komst í það eldur. Var
mjög erfitt að komast að þessu
fyrir slökkviliðsmennina og tók
langan tíma unz eldurinn var að
fullu kæfður.
I gærkveldi kviknaði í geymslu
kjallar f bakhúsinu að Laugavegi
3. Þar urðu nokkrar skemmdir á
einhverju dóti, en þó ekki tilfinn-
anlegar að því er slökkviliðsmenn
töldu.
Vottar
Framh. af 1. síðu.
Jehova, sem tækju að sér að
boða kenningar þeirra. Væru þeir
nefndir boðberar, sem verðu til
þess tómstundum sínum að fara út
á meðal fólks og flytja boðskap-
inn. Boðberarnir eru taldir 40 í
Reykjavík og a. m. k. 10 úti á
landi. Þar að auki eru hinir 10
trúboðar, sem áður voru nefndir,
sem hafa það sem fullt starf að
útbreiða boðskap vottanna, Þannig
eru samtals 60 fullgildir starfandi
Vottar hér á landi og margir
fleiri sækja biblíufræðslu hjá Vott-
unum og samkomur þeirra, sem
haldnar eru reglulega tvisvar í
viku í Edduhúsinu hér í Reykja-
vík.
En hlutverk safnaðarmanns eða
konu í söfnuði Votta Jehova felst
eigi aðeins í því að hlýða á guðs
orð, sagði Rendeboe, heldur og í
því að verja öllum sínum frístund-
um til að boða það öðrum af ein-
skærum áhuga á útbreiðslu þess,
eins og Iærisveinar Krists gerðu
upphaflega. Rendeboe sagði f við-
talinu við blaðið að hann héldi að
það væri einkum þessi mikli áhugi
Vottanna á boðun orðsins, kost-
gæfni þeirra og dugnaður, sem
væri hin raunverulega orsök þess
að þeir yrðu fyrir aðkasti kirkju-
yfirvalda. ekki sízt kaþólsku kirkj-
unnar. Starfsemi beirra væri bönn-
uð á Spáni og í kOmrnúnistaríkiun-
um, en þeir störfuðu þar á Iaun
engu að síður.
Merking orða.
Það er stundum vandi að um-
gangast orð. Við vitum það öll,
að orðin geyma f fórum sér
merkilegt líf, sem enginn getur
í rauninni skilgreint. Þau geyma
hita og kulda, ást og hatur, þau
spanna alla þá himinvídd, sem
rúmast innan hugsanatakmarka
mannsins. Það er orðið, sem hef
ur á dularfullan hátt lyft af
manninum fjötrum dýrsins. Sá
er munurinn, að hugsun dýrsins
fæðist andvana, af því hún á
sér ekki birtingarform. Ef menn
gerðu sér alltaf ljósan mátt orðs
ins, sýndu þeir kannski ekki
sama kæruleysið í umgengni
sinni við það.
Eitthvert skemmtilegasta orð
í íslenzkri tungu er orðið örygg-
isleysi. Það sýnir nefnilega á-
þreifanlega, hve maðurinn er
mikill klaufi að umgangast orð.
Upprunalegasti hluti orðsins er
yggi, myndað með i-hljóðvarpi
af orðinu uggur, sem merkir
ótti. Síðan er sett framan við
orðið neitandi forskeyti ör-, og
þá merkir orðið í rauninni ótta-
leysi. Loks er svo bæt við neit-
andi viðskeyti -leysi. Þessar
tvær neitanir upphefja hvor
aðra, og merking orðsins er aft
ur orðin hin sama og í upphafi,
áður en nokkuð var við orðinu
hreyft.
Fyrir kemur, að menn breyti
merkingu orða af þekkingar-
leysi eða af því að þeir mis-
skilja orðið. Einnig gerist þetta
stundum ósjálfrátt. Orðið sið-
gæði hefur til dæmis annað hug
tak á bak við sig nú en fyrir
30 árum. Við þessu er lítið að
gera. Hitt er verra, þegar orð-
um er breytt vegna vanþekk-
ingar. Dæmi þess er orðið ártfð
sem merkir dánardægur. Blaða-
menn skrifuðu f fyrra að nú
væri 100 ára ártíð Jóns Sig-
urðssonar,' þegar átt var við
fæðingarár. Þetta er slæmt og
hefur óheppileg áhrif á þróun
tungunnar.
Við skulum sýna aðgát og
virðingu í umgengni við orð.
Harður
órekstur
Næsta harður árekstur varð i
fyrrakvöld, laust eftir kl. 10 á
gatnamótum Skúlagötu og Vita-
stígs.
Farþegi í annarri bifreiðinni
meiddist og miklar skemmdir urðu
a. m. k. á öðru farartækinu
Þetta skeði með þeim hætti að
utanbæjarbifreið beygði af Skúla-
götunni og upp á Vitastíg, en náði
ekki réttri beygju að því er öku-
maður sagði sjálfur og lenti þá á
annarri utanbæjarbifreið sem var
að koma niður Vitastíginn. Varð
þetta harður árekstur þannig: að
hlið síðarnefndrar bifreiðar dæld-
aðist meira og minna, auk fleiri
skemmda se. á henni urðu, en
farþegi f bílnum meiddist við það
að hljóta högg á hægri sfðu.
I fyrrakvöld veitti Ieigubílstjóri
nokkur, sem leið átti um Klepps-
veg, drukknum ökumanni eftir-
tekt, og slapp enda naumlega við
árekstur við hann. Leigubílstjór-
inn, sem hafði talstöð f bifreið
sinni, gerði lögreglunni aðvart.
Kom hún þegar á vettvang og tók
hinn drukkna ökuþór í vörzlu sína.