Vísir - 07.11.1962, Qupperneq 7
v í SIR . Miðvikudagur 7. nóvember 1962.
-7
(
Þorskur í pottinn
Fyrstaútibú Varil-
marbankans
Verzlunarbankinn hefur nú leigt
húsnæði í húsi Heildverzlunarinnar
Til tilbreytingar frá soðna
fiskinum með bræddu út á eru
hér uppskriftir að nokkrum fisk
réttum.
3 — 4 þorskflök (um y2 kg.)
eru lögð í smurt eldfast fat.
Yfir fiskinn eru sett 30—40 gr.
af smjöri, 1—2 tesk. af karrý
og salt eftir smekk. 1—2 laukar
eru hakkaðir og settir yfir á-
samt gróft rifnu epli. Um það
bil 500 gr. af kartöflustöppu
er sett ofan á, fatið sett inn
í ofninn og innihald bakað við
190 gráðu hita unz það er orðið
ljósbrúnt (eftir um það bil hálfa
klst). Þegar fatið er borið á
borð fe rvel á því að skreyta
það tómötum og rifnu persille.
«■< < V lí'A1'
Tvíhneppt —
tvíhneppt!
3 — 4 þorskflökum er velt upp
úr sítrónusafa, þau síðan sett í
smurt eldfast form og salti, pip-
ar og papriku dreift yfir. Lauk-
sneiðar eru lagðar yfir og síðan
tómatar unz allur fiskurinn er
þakinn. Smjörklínur settar á víð
og dreif. Fatið er sett í ofn sem
skal vera um 190 gráðu heitur.
Bakað í 20—25 mín. Með þessu
er gott að bera á borð kartöflu
stöppu, gulrætur, grænar baun-
ir og blómkál.
8 rauðsprettuflök (2 rauð-
sprettur) eru rúlluð upp og sett
á botninn á smurðu eldföstu
fati. Lag af gufusoðnu smátt
skornu spínati er sett yfir. Jafn-
ingi af 30 gr. af liveiti, 3 dl. af
,\' 1 - ■ „ W. s \ ' " si
Svona segir einn tízkukóngur
inn í París að þið — og eigin-
maðurinn eigið að vera klædd-
ar, þegar þið farið í síðdegis-
boðið.
Dragtin er mjög látlaus, úr
svartri shetlandsull og með tvö-
faldri slaufuröð. /•— Herrafötin
eru úr ljósara efni, með dálítið
loðinni áferð og tvíhneppt!
Hverjir eiga sokka og
vettlinga hjá Tjörninni
mjólk og 40 gr. af smjöri er
hellt yfir spínatið og rifnum
osti og dálitlu af raspi síðan
stráð yfir. Litlar smjörklínur
settar hér og þar. Bakað við
góðan hita í y2 klst. Með holl-
enzkri sósu og hveitibrauði er
þetta herramannsmatur.
Niðurskodð grænmeti t. d.
púrrur eða gulrætur eru settar í
fat ásamt léttsöltuðu vatni og
dálitlu af smjöri. Soðið í tíu
mínútur. Hrá fiskstykki (hvaða
fiskur sem vera skal) eru lögð
yfir grænmetið og soðin unz j
þau eru orðin meyr. Skreytt
rrieð persille og borið rjúkandi
á borð — gott að hafa smjör
með. Úr soðinu má svo gera
sósu og hafa með.
Heklu, Laugaveg 172, fyrir útibú
frá bankanum. Verður það vænt-
anlega opnað á næstunni.
Útibú þetta er það fyrsta sem
bankinn stofnar og jafnframt það
fyrsta sem stofnsett er í þessu
hverfi bæjarins. Ekki er enn vitað
hvenær það verður opnað. Verður
það væntanlega opið á líkum tím-
um og útibú hinna bankanna, þeg-
ar til kemur. Höskuldur Ólafsson,
bankastjóri, skýrði blaðinu frá
þessu í morgun og sagði einnig
að ekki váeri að svo stöddu hægt
að segja neitt um hvort til stæði
að stofna fleiri útibú.
■
Undanfarið hefir verið mjög gott
skautasvell á Tjörninni í Rvík
og margir hafa lagt þangað leið
sína, bæði börn og fullorðnir. Flest
ir setja á sig skautana á tjarnar-
bakkanum fyrir utan Iðnó og
geyma þar skó sína og annan far-
angur á meðan þeir renna sér á
ísnum.
Nú er komin hláka og því búið
með skautaferðir í bili, en sá sem
gengur meðfram--Tjörninni kemst
ekki hjá því að reka augun í stóra
hrúgu af sokkum og vettlingum,
sem börn hafa skilið eftir fyrir ut-
an Iðnó. Foreldrum er því bent á,
að láta börn sín hið fyrsta sækja
það sem þau hafa skilið eftir við
j Tjörnina, áður en yfirvöld bæjarins
láta fjarl. gja hrúgurnar.
Alþjóðamá! og kjarnorkustyrjaldir — skoðanir
Einars Olgeirssonar hlutleysið gagnlaust — síld-
veiðideilan — afskipti ríkisstjórnarinnar sjálfsögð.
Umræður um almannavarnir
ætla að endast þingmönnum. I
gær hélt þeim áfram og lauk
ekki. Töluðu þeir Einar Olgeirs-
son og Bjarni Benediktsson og
leiddist tal þeirra út í alþjóða-
mál, möguleika til kjarnorku-
styrjaldar, hlutleysisstefnu og
gang þessara mála yfirleitt. Var
því ekki að undra þótt tíminn
yrði of skammur.
I efri deild voru umræðurn-
III ar ekki slður forvitnilegar, þar
||| var rætt um síldveiðideiluna og
III bráðabirgðalögin af miklu
||| kappi. Ekki var heldur sleginn
botn í þær umræður.
,| Eins og sjá má var líf í þing-
Isölum í gær, enda viðkvæm
hitamál á dagskrá. Rétt er að
víkja fyrst að umræðum í neðri
deild, almannavörnunum. Einar
Olgeirsson talaði fyrstur og var
æstur mjög í upphafi máls síns.
Líkti hann Gísla Jónssyni við
||| Hitler og Göbbels og kvað þá
|11 sem töluðu um vonda kommún-
ista vera fulla af sektarmeð-
Í|| vitund og ofsóknaráráttu, gegn-
umsýrða af ægilegu ábyrgðar-
> leysi, þekkingarskorti og fá-
* | fræði. Var hið mesta gaman af
tali hans. En skyndilega venti
hann sínu kvæði og ræddi
um kjarnorkustyrjöld og hina
ægilegu hættu mannkynsins.
Talaði hann nú æsingalaust,
kvaðst lýsa skoðun sinni sawi
sósialista á þessum málum og
Imátti með góðu móti sitja undir
ræðu hans. Fór líka svo að
Einar talaði yfir fleirum en
flokksbræðrum sínum í þinginu
í gær, en slíkur viðburðyr er
sjaldgæfur í seinni tíð.
Það helzt' sem kom fram í
||| ræðu hans var: 1) að meiri
eyðileggingarmáttur væri i
einni sprengju nú, en í öllum
þeim sprengjum samanlagt sem
varpað var í öllu síðasta stríði,
2) að hættan hér stafaði af
herstöðvunum og því þyrfti að
fjarlægja þær, 3) að engin
vörn væri i stríðsþátttöku, 4)
að ef herstöðvarnar yrðu fjar-
lægðar, þá misstu stríðsaðilar
||| áhuga á íslandi, 5) að
|| hræðslan við að Rússar tækju
ísland ef Bandaríkjamenn færu
væri ij-jrf því Rússar mundu
aldrei leggja það á sig að taka
land sem umkringt væri. her-
stöðvum Bandaríkjanna, 6) að
ísland ætti ekki að nota sem
skjöld fyrir Ameríku, 7) að
eyðileggja þyrfti báða flugvell-
ina, ef til styrjaldar kæmi, því
að af þeim stafaði hættan.
Bjarni Benediktsson gerði
ræður Einars og Hannibals að
umtalsefni. Hann byrjaði á því
að kippa stoðunum gjörsamlega
undan málflutningi Hannibals,
með því að benda á, að skv.
ummælum Ágústs Valfells al-
mannavarnastjóra, þá stafaði
hætta af sprenguárás hér, af
staðsetningu hins stóra Kefla-
víkurflugvallar, en ekki af
hemum. (Þetta birti Hannibal í
greinargerð sinni athugasemda-
laust, sem svar Ágústs við einni
spurningu hans). Þetta hefði
Einar raunar staðfest, sjá lið 7.
Það væri ljóst af þessu, að hætt-
an stafaði fyrst og fremst af
tilveru flugvallarins.
Tal Bjarna leiddist síðan út í,
að ef svo mikil hætta væri af
hernum, sem Hannibal vildi
vera láta, af hverju hefði hann
og flokkur hans, þá ekki rekið
heripn á brott þegar þeir höfðu
aðstöðu til þess í ráðherratíð
þeirra? Síðan ræddi hann
nokkuð um að alls ekki væri
fullvíst að ef til styrjaldar
ka/mi, að barizt yrði með kjarn-
orkuvopnum. Benti hann á
stríð Kínverja og Indverja í því
sambandi, og vakti athygli
manna um leið á því, að þar
væri nú ljósasti votturinn um
haldleysi hlutleysisstefnunnar
Það, að orsök tortímingarhættu
verði fjarlægð ef herinn hyrfi,
væri út í hött, bæði með tilliti
til haldieysis hlutleysisstefn-
unnar og þess, að það væri
hemaðarþýðing landsins sem
skapaði hættuna, en ekki stað-
setning hersins. Ef hann væri
á brott, ykjust aðeins líkurnar
fyrir því að um landið yrði bar-
izt.
Margt annað athyglisvert
kom fram í ræðunum sem ekki
vinnst rúm til að geta, m. a,
minnti Bjarni á, að 1939 í upp-
hafi heimsstyrjaldarinnar hefði
Einar Olgeirsson barizt ólmur
fyrir því að íslendingar afsöl
uðu sér hlutleysinu og leituðu
stuðnings annarra þjóða. Þá
lagði hann, þ. e, Einar, ekki
mikið upp úr hlutleysisstefnu
sinni.
I efri deild fylgdi Emil Jóns-
son úr hlaði bráðabirgðalögun-
um um lausn síldveiðideilunnar.
í stuttu máli sagði hann að ó-
bætanlegt tjón hefði orðið ef
yekki hefði verið gripið til ein-
hverra ráðstafana í sumar.
Deilan hafði staðið lengi yfir og
báðir aðilar höfðu að lokum
lýst því yfir, að þeir gætu ekki
komið sér saman. Afskipti rik-
isstjórnarinnar voru því óum-
flýjanleg og í þeirri vissu var
málinu vísað til gerðardóms.
Niðurstaða hans skiptir ekki
máli í umræðunni um, hvort
ráðstöfun ríkisstjórnarinnar
hafi verið rétt eða ekki. Hins
vegar gætu menn velt þvi fyrir
sér, hver hefði orðið hlutur
sjómanna ef ekki hefði komið
til aðgerðar ríkisvaldsins.
Björn Jónsson (K) kvað
bráðabirgðalögin stefna gegn
Iýðræðislegum rétti sjómanna
og það væri sögulegt augnablik,
þegar þau væru tekin fyrir á
Alþingi. (I þessu sambandi
væri það kapituli út af fyrir sig,
það augnablik þegar kommún-
isti lýsti andstöðu sinni gegn
þvi að ríkisvaldið hefði afskipti
af kaupgjaldsmálum þjóðarinnar
og hefði hönd í bagga með það.)
Björn hélt því fram að ríkis-
stjórnin hefði svipt sjómenn
sigri, því LÍU hefði verið að
gefa sig, og fjöldi báta hefði
verið kominn á sjó. Jön Þor-
steinsson (A) svaraði Birni, og
síðustu staðhæfingu hans með
því að benda á, að flestir þess-
ara báta hefðu farið af stað upp
á væntanlega samninga. Það
væri auðvitað engin lausn. Jón
kvað hins vegar erfitt að átta
sig á kröfum stjórnarandstæð-
inga, og erfitt að fara að ráð-
um þeirra, því ýmist vildu þeir
engin afskipti af hálfu ríkis-
stjórnarinnar eða aukin afskipti
hennar, eins og kom fram 1
ræðu Ólafs Jóhannessonar
(F). Ólafur vildi láta ríkisvald-
ið taka fyrr í taumana og síld-
veiðideilunni í sumar hefði átl
að láta hluta af gengisgróðan-
um frá 1961 ganga til útvegs
manna.
Nánar verður væntanlege
sagt frá umræðum ' þessum t
morgun.