Vísir - 07.11.1962, Blaðsíða 8
8
V í S I R . MiSvikudagur 7. nóvember 1962
Utgefandi: Blaðaútgatan VISIR
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson. Gunnar G Schram
AðstoSarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskrifstargjald er 55 krónur á mánuði.
f lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur)
Þrentsmiðja Vísis — Edda h.f
Deilan um sildveiðikjörin
Vetrarsíldveiðamar ættu að vera hafnar fyrir
löngu, og mikill afli og góður ætti að vera kominn á
land, en bátarnir liggja bundnir. Fyrir bragðið er út-
séð um það, að við getum ekki staðið við samninga
um síldarsölu til einnar Evrópuþjóðar, og samningar
við fleiri munu í hættu, ef ekkert verður að gert, bát-
arnir komast ekki fljótlega út.
Sjómenn og útgerðarmenn gerðu í fyrstu tilraun
til að jafna deilur sínar, en náðu ekki samkomulagi.
Síðan hafa sáttasemjarar ríkisins haft málið til með-
ferðar, og lögðu þeir fram sáttatillögu á sunnudag,
og eiga aðilar að hafa tekið afstöðu til hennar nú fyrir
kvöldið. Er því ekki enn vitað, hver orðið hafa örlög
tillögunnar, en Alþýðublaðið komst svo að orði í gær,
að ólíklegt væri, að sjómenn samþykktu tillöguna.
Reynist sú spá rétt, heldur deilan áfram um óákveðinn
tíma, ef ekki verður gripið til annarra ráða til að bindá
enda á hana.
Fyrir aðeins örfáum
dögum síðan bað einn af
embættismönnum Pek-
ingstjórnarinnar í sendi-
ráði hennar í Svíþjóð um
hæli sehi pólitískur
flóttamaður. Hann er
fyrsti embættismaður
Pekingst j órnar innar
sem biður um hæli sem
flóttamaður í Evrópu.
Það var hinn 27 ára
gamli öryggismálafull-
trúi sendiráðsins, Chao
Fu, sem hlut átti að
máli.
Þótt Chao Fu sé ungur að
árum hefur honum á þeim
skamma tíma, sem hann hefur
verið meðlimur kommúnista-
flokks Kína — 6 ár — tekizt að
marga eins og skepnur. Þessi
nauðungarvinna var skipulögð
í nánd við Hochiang, sem er
skammt frá landamærum Kína
og Ráðstjórnarríkjanna. En þeg
ar Chao Fu kom til Svíþjóðar
varð honum fyrst svo ljóst sem
verða mátti að frelsið mundi
aldrei eiga sér viðreisnarvon í
Kína, undir kommúnistiskri
stjórn.
Sem öryggismálafulltrúi var
Chao Fu einn þeirra þriggja,
sem mátti fara alveg frjáls
ferða sinna til og frá sendiráði
Rauða Kína í Stokkhólmi. Hinir
tveir voru sendiherrann og einn
af aðalembættismönnum sendi-
ráðsins. Chao Fu hefur sagt frá
því að tvisvar í viku hafi starfs
lið sendiráðsins orðið að setjast
á skólabekk og hlýða á póli-
tíska fyrirlestra, tilsendra Kín-
verja. Þetta var gert til að fá
mótvægi gegn „áróðri óvin-
anna“. I sendiráðinu var engum
þolað að láta nokkuð misjafnt
f ljós um ástandið í Kína. Þar
ríkti algjör skoðanakúgun. Og
allir njósnuðu um alla, eins og
venjulegast er hjá kommúnist-
um.
Chao Fu ræddi nokkuð við
blaðamenn um stefnu og skoð-
anir Pekingstjórnarinnar í al-
H''1rv: =j,- •. - ;
B|^Íœ|Íjíl:!r ■ ■ ;.’ w
HHfe ''yfá:-1' ff,; wWm
Chao Fu
stjórnin að Sovétbúar snúi baki
við stefnu Krúsjeffs og taki aft-
ur upp þráðinn þar sem honum
var sleppt með valdaafsali Mal-
enkovs. Hann kvað Peking-
stjórnina hafa verið grama yfir
vopnasendingum Sovétstjórnar-
innar til Indverja, og telja þeir
það brot á vináttusamningi
Kínverja og Rússa. Annars taldi
hann Kínverja aðeins hafa ráð-
izt inn í Indland til að koma
FYRSTI
Kínverjinn á fíóttn
Mönnum er í fersku minni, að ríkisstjórnin setti
lög um gerðardóm í deilu þeirri, sem upp kom um kjör
sjómanna á sumarsíldveiðum. Þá var komið í óefni,
og ekki horfur á öðru en að síldveiðar mundu engar
verða, þjóðarbúinu og einstaklingum til óbætanlegs
tjóns. Með aðgerðum sínum bjargaði stjórnin því síld-
veiðunum og ber henni heiður fyrir einurð sína í mál-
inu. Afli varð mikill og hlutur flestra sjómanna góður,
þótt' kommúnistar reyni vitanlega að slá ryki í aúgu
sjómanna og telja þeim trú um, að mikið gerræði hafi
verið á þeim unnið. En kommúnistar geta þess ekki,
að ef gerðardómurinn hefði ekki verið settur, hefði alls
ekki orðið um neinar sildveiðar að ræða.
Verði sáttatillagan, sem nú er um að ræða, felld,
virðist komið í sama óefni og á síðasta vori. Ekkert
blasir við nema að bátarnir liggi bundnir áfram og
síldin verði látin afskiptalaus í sjónum. Spurningin er
þá, hvort betra er, að sfldveiðar Ieggist niður eða deil-
an verði Ieyst með öðrum hætti. Engum blandast hug-
ur um, að þjóðin hefir ekki efni á að missa af sfldar-
aflanum.
Óskir kommúnista
Það er hins vegar von kommúnista, að ekki verði
um neinar vetrarsíldveiðar að ræða að þessu sinni.
Þeir vinna nú að því öllum árum að beita öllu afli sínu
að þessu marki. Það er alkunna, að þeir láta sig þjóð-
arhag engu skipta, og barátta þeirra í þessu máli eins
og öllum öðrum miðast við að vinna tjón og ekkert
annað. ... .
i§
li
m
vinna sér virðingu yfirmanna
sinna, en það hefur leitt til
þess að honum hafa verið fal-
in ábyrgðarmeiri störf á hend-
ur. En nú er framaferli hans
í þjónustu Pekingstjórnarinn-
ar lokið. Framundan bíða hans
uggvænlegir tímar. Auk þess
sem hann er sjálfur í lífshættu
eru kona hans og móðir I stöð-
ugri hættu, vegna þess að þær
urðu eftir bak við bambus-
tjaldið.
Chao Fu var lengi búinn að
hugsa málið, áður en hann
ákvað að leggja á flótta úr
sendiráðinu. Hann lét sér ekki
nægja að biðja um hæli í Sví-
þjóð heldur flúði hann alla leið
til V-Þýzkalands um Danmörku
og gaf sig á vald yfirvöldunum
1 Miinchen. „Ég var orðinn sann
færður um að kommúnismínn
gæti ekki bjargað Kína“, sagði
Chao Fu, í viðtali við blaða-
menn. Kjör verkamanna I Sví-
þjóðyopnuðu augu mín. Honum
varð einnig ljóst að endurtek-
inn uppskerubrestur í Kína var
ekki aðeins náttúruhamförum
að kenna, eins og kommúnista-
stjórnin lét í veðri vaka.
Skipulag uppskeruaflanna hafði
brugðizt. Kommúnisminn sjáif-
ur átti sckina. En það var fyrst
árið 1960 sem Chao " i tók að
efast um gildi kommúnismans.
Þá starfaði hann í sérstök-
um nauðungarvinnubúðum, sem
lágt settur embættismaður. Þar
var 300 þúsundum manns
pískað Ut og farið með þá
þjóðamálum. Hann taldi það
vera heitustu ósk Pekingstjórn-
arinnar að Sovétríkin biðu lægri
hlut í átökum við Vesturveldin.
Leiðtoga Pekingstjórnarinnar
dreymir um að verða Ieiðandi
meðal kommúnista í heiminum.
Jafnframt vonar kommúnista-
fram breytingum á landamær-
unum.
Chao Fu fór til Bandaríkj-
anna stuttu eftir að hann hafði
verið yfirheyrður í Hamborg.Þar
mun hann veita margvíslegar
upplýsingar um störf og stefnu
Pekingstjórnarinnar.
Stöðvast seðlapress-
urnar í Bretlandi?
Myndamótasmiðir þeir, sem
starfa við myntsláttu Breta-
drottningar, hóta nú að orsaka
seðlaskort í Bretlandi.
Menn þeir, sem hér er um að
ræða, eru aðeins sex að tölu, en
þeir gegna miklu trúnaðarstarfi,
því að þeir gera öll myndamót,
sem brezkir peningaseðlar eru
prentaðir eftir. Er þetta mjög
vandasöm vinna, því að engin
myndamótagerð krefst eins mik
illar vandvirkni og þessi, en
samt hafa myndamótasmiðir
þessir ekki fengið neina launa-
hækkun í tvö ár, þótt aðrir hafi
fengið Lækkanir. Hvernig sem
þeir hafa reynt, hefir þeim ekki
tekizt að fá rétt yfirvöld til að
taka kröfur sfnar til athugunar.
Er nú þolinmæði þeirra svo á
þrotum, að þeir háfa tilkynnt,
að þeir muni ekki vinna eftir-
vinnu. fvrri en kröfur þeirra
hafa verið teknar til athugunar.
Venjuleg vinnuvika er 47 stund
ir, en þeir hafa verið beðnir að
bæta við sig 8 stundum í yfir-
vinnu á viku. Þessu neita þeir,
og eru nú ekki framleidd eins
mörg myndamót til seðlaprent-
unar og nauðsynlegt er. Þykjast
menn í Bretlandi sjá fram á, að
skortur kunni að verða á pen-
ingaseðlum, ef engin breyting
verður á þessu bráðlega.
V.-Þjóðverjar
fjölmennir
Samkvæmt áætlunum hag-
fræðideildar Sameinuðu þjóð-
anna munu Vestur-Þjóðverjar
verða orðnir 62 milljónir að
tölu árið 1975.
Eins og nú standa sakir eru
íbúar Vestur-Þýzkalands og
Vestur-Berlínar 57 milljónir, og
eru þeir þar með fleiri en nokk
ur þjóð önnur f Vestur-Evrópu,
því að jafnvel Bretar eru færri.
Þeir voru við manntal á síðasta
ári 52,7 milljónir. ítalir eru
næstir þeim eða 51, 3 milljónir
og síðan koma Frakkar með 46
milljónir manna.
f aðeins átta ríkjum heims
eru íbúar fleiri en í Vestur-
Þýzkalandi, og eru þau þessi:
Kína 673 milljónir manna, Ind-
land 432 milljónir, Sovétríkin
218 milljónir, Indónesía 95,9
milljónir, Bandaríkin 183 millj.,
Pakistan 94,6 millj., Japan 94,1
milljón og Brazilía 70.5 millj.
11
l I i
'I'LT
1 V fI I ■ ú.v' I ' I : í