Tölvumál - 01.09.2003, Síða 12
Tilraunasamfélög fyrir rafræn viðskipti
Pegar liggur fyrir sam-
komulag um að Is-
lendingar halda
áfram að leiða verk-
efnið eftir að evrópsk-
ur vinnuhópur hefur
tekið til starfa
Upprunalega hug-
myndin snérist um að
velja stök hagkerfi
sem tilraunasamfélög
ópusambandsins sem óskuðu eftir að nefnd-
in yrði sett á laggirnar, þ.e. hjá DG Enter-
price. A sama tíma og hugmyndin var mót-
uð í skýrslunni fór því í gang vinna innan
Evrópusambandsins við að taka hana inn í
stefnumörkun þess á sviði rafrænna við-
skipta. Varð reyndin sú að áður en skýrsla
eBiz nefndarinnar var að fullu frá gengin og
kynnt á opnum fundi, eins og hér hefur ver-
ið nefnt, var hugmyndin orðin hluti af til-
lögum framkvæmdastjómar Evrópusam-
bandsins til ráðherraráðsins um leiðir til
framþróunar á sviði rafrænna viðskipta, þ.e.
í skjali sem fékk heitið: Adapting e-business
policies in a changing environment: The les-
sons ofthe Go Digital initiative and the
challenges ahead. Þann 13 maí s.l. sam-
þykkti ráðherraráðið tillögur framkvæmda-
stjómarinnar um, eins og segir í skjalinu og
þetta varðar:
„A national test-bed or, even better, a
network ofnational test-beds for e-
business, preferably based on open so-
urce software solutions, would provide
for a practical venue for SMEs to
develop their e-business processes. The
aim should be to create communities
withfully operational e-business
networks ofpublic and private business,
resulting in a modelfor other comm-
unities. Successfully carried out and
documentedfor learning purposes, such
an initiative would increase confidence
in e-business and provide a roadmap to
befollowed by others. “
Þeir samningar sem áður hafa verið
nefndir að verði gerðir milli Evrópusam-
bandsins og staðlasamtakanna, og byggja á
tilmælum eBiz nefndarinnar, munu að
mestu leiti varða innleiðingu staðla og sam-
ræmingu verklags við notkun þeirra. Hug-
myndin um tilraunasamfélagið er víðtækari
og mun verða að sjálfstæðu verkefni eða
verkefnum þeirra sem taka hana upp, að lík-
indum með stuðningi Evrópusambandsins í
formi fjármagns, þekkingar og tengsla.
Upprunalega hugmyndin snérist um að
velja stök hagkerfi sem tilraunasamfélög,
t.a.m. Island, en fljótlega breyttist það og
farið var að horfa til þess að tengja saman
fleiri samfélög sem gætu átt samleið og
myndað n.k. net samstarfslanda með sam-
eiginleg markmið og aðferðafræði. Sérstak-
lega var þá horft til þeirra sem væru með
svipaða eiginleika og áður hafa verið nefnd-
ir, en væru jafnframt það ólík landfræði- og
menningarlega, að gæfi verkefninu meiri
dýpt og breidd.
Að undanförnu hefur verið unnið að því
að kynna hugmyndina fyrir íslenskum hags-
munaaðilum og stjórnvöldum, fulltrúum
Evrópusambandsins, sem og þeim þjóðum
sem helst er talið að gætu haft áhuga og for-
sendur til að verða þátttakendur í slíku verk-
efni. Á ráðstefnu SARÍS 29. apríl s.l. var
hugmyndin sett í samhengi við önnur verk-
efni sem þegar eru í gangi innanlands og
kynnt fyrir fulltrúum tveggja landa sem þá
þegar hafði verið rætt við og höfðu sýnt
hugmyndinni áhuga, sem eru Finnland og
Rúmenía. Fulltrúar frá Hollandi og Eistlandi
gátu ekki tekið þátt í ráðstefnunni en stað-
festu áhuga á frekari viðræðum um sam-
starf.
Evrópskur samstarfshópur
Nú er verið að mynda evrópskan samstarfs-
hóps með þessum löndum og er honum ætl-
að að móta verkefnið frekar og veita því for-
stöðu gagnvart Evrópusambandinu og öðr-
um Evrópuþjóðum. Starfandi er íslenskur
stýrihópur fyrir verkefnið. I honum eiga
sæti fulltrúar frá eftirtöldum aðilum:
Byggðasamlagi Eyjafjarðar og Háskólanum
á Akureyri, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti,
verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið,
Útflutningsráði, Staðlaráði íslands og Sam-
tökum atvinnulífsins. Þegar liggur fyrir
samkomulag um að Islendingar halda áfram
að leiða verkefnið eftir að evrópskur vinnu-
hópur hefur tekið til starfa auk þess að sam-
ræma aðgerðir innanlands. Markmiðið er að
á því undirbúningsári sem nú stendur yfír
verði hugmyndin um evrópsk tilraunasam-
félög mótuð frekar, stuðningi aflað innan-
lands og í Evrópu, myndaður evrópskur
stýrihópur og fjármögnun verkefnisins
tryggð.
Á vef Tölvumála verður hugmyndin um
tilraunasamfélögin nánar skýrð í sérstökum
greinaflokki eftir því sem mótun hennar á
sér stað. Næsta grein mun fjalla um hvað
það þýði að byggja upp tilraunasamfélag í
rafrænum viðskiptum, hvernig hugmyndin
er að grunni til uppbyggð, hvernig reiknað
er með að hún verði útfærð og hver er lík-
legur ávinningur af framkvæmd hennar.
12
Tölvumál