Tölvumál - 01.09.2003, Page 14
Er fjarvinna að komast í tísku?
Samskipti milli starfs-
fólks geta t.d. farið
fram gegnum síma,
tölvupóst og mynd-
fundi á internetinu.
þar sem fólk fær aðgang að góðum
tengingum, tölvum o.fl. og umgengst
annað fólk sem einnig stundar fjar-
vinnu.
• Fjarvinna á ferð (e. mobile telework-
ing) þegar fólk nýtir ferðatíma til
vinnu.
• Flökkuvinna (e. Nomadic Teleworking)
starfsmaður með kjöltutölvu og GSM
síma, vinnur þar sem hann situr hverju
sinni, hefur engan fastan vinnustað.
Vinnan er óháð stað og stundum stund
Mynd 1. Nokkur form fjarvinnu.
Hvernig innleiða fyrirtæki fjarvinnu?
Aður en fjarvinna er innleidd þarf að hafa
marga þætti í huga. Hugsa þarf í þaula
hvernig vinnuumhverfið umbreytist við
innleiðingu fjarvinnunnar, t.d. er hætta á
því að samskipti milli starfsmanna
minnki. Fyrirfram þarf að finna aðferðir
til að upphefja slíka ágalla. Samskipti
milli starfsfólks geta t.d. farið fram gegn-
um síma, tölvupóst og myndfundi á inter-
netinu. I2 eru taldir nokkrir punktar til
íhugunar við innleiðingu fjarvinnu. Þeir
eru:
• Tryggja þarf að starfsmenn á vinnustað
og í fjarvinnu viti hvernig á að hafa
samskipti hver við annan
• Fólk í fjarvinnu þarf að hittast reglu-
lega. Þetta er gert með fundarhöldum í
fyrirtækinu og ýmsum félagslegum at-
burðum. Með þessu móti er komið í
veg fyrir einangrun fólks í fjarvinnu,
stuðlað að góðum anda meðal starfs-
manna og að útbreiðslu hugmynda og
þekkingar.
• Tryggja þarf að fjarvinnufólkið hafi
skýr markmið um vinnu sína. Þarna
kemur að þætti stjórnendanna, fjar-
vinna krefst meiri stjómunarhæfni en
hefðbundin vinna.
• Ganga þarf frá því að starfsmenn njóti
trygginga og góðrar aðstöðu þótt þeir
vinni ekki á eiginlegum vinnustað.
• Þeir sem ætla að vinna heima þurfa að
sýna fram á að þeir hafi til þess ásætt-
anlega aðstöðu og fái þann frið sem
nauðsynlegur er fólki að störfum. Ekki
er gefið að öll heimili bjóði nægjanlegt
rými fyrir vinnustað.
• Nýta skal þá kosti sem tæknin býður.
Halda skal uppi sem bestu sambandi
við starfsmenn í fjarvinnu t.d. með fjar-
fundasambandi.
• Ganga þarf úr skugga um að sá sem
ætlar í fjarvinnu sé til þess hæfur og
viljugur. Best er að frumkvæðið komi
frá starfsfókinu sjálfu. Fjarvinna krefst
að sjálfsögðu agaðra vinnubragða og
þess að menn sitji hvorki of stutt né of
lengi við.
Rannsóknir og staðreyndir
Mikið hefur verið rannsakað og ritað um
fjarvinnu og varla er til það stórfyrirtæki í
14
Tölvumál