Tölvumál - 01.09.2003, Page 19
FS-net
& Bíldudalur
. Tálknafiörð
J Él Sauðárkrókur Akurey
Blönduós ! ri í
Lauga#
Mývatn
immstangi
Framhaldsskóli
Höfuðstöðvar símenntunarmiðst. Egiisstaðíi
Útibú símenntunarmiðstöðva
jörður
■^rj^púðardalur
jörður
jrundarfjörð
—^reiðdalsvík
>júpivogur
htóavík (11) &
ic^iavogur (1) LaugavatnFlúð
■Habær (1) ir
latnafjörður
Höfn í
Hornafírði
Keflaví
Hvolsvöll
Mynd 1. Staðir sem tengjast FS-neti
Við skilgreiningu á tæknilegum kröfum
var leitast við að hafa þær fáar en skýrar.
Uppbygging FS-nets miðast við að net-
ið sé sjálfstætt net sem byggi alfarið á IP-
högun (e. Intemet Protocol), þ.e. allur
gagnaflutningur á sér stað með IP sam-
skiptareglum. Ennfremur skal netið tengj-
ast Internetinu og því beint (e. routed) sem
hluta af því.
Uppbygging netsins byggir á mjög öfl-
ugu miðjuneti ásamt aðgangslagi fyrir
tengingar. Við grunntengingar er ljósleið-
ari tekinn fram yfir aðrar gerðir tenginga.
Miðjunetið skal vera tilbúið til dreiftng-
ar á margvarpi (multicast enabled) og
styður viðeigandi staðla fyrir margvarp.
Til þess að tryggja greið tengsl við önn-
ur net hefur FS-netið beina tengingu við
sameiginlegan hnútpunkt íslenskra neta
(RIX Reykjavík Internet Exchange). Þar
fara fram samskipti við önnur innanlands-
net svo sem Rannsókna- og háskólanet.
Miðja netsins hefur tengingu við Inter-
netgátt vegna utanlands umferðar og leyfir
ótakmarkað niðurhal (download) á efni af
Interneti frá útlöndum í gegnum 10 Mbps
gátt.
Tilboð og samningar
Tilboð í FS-net voru opnuð þann 23. júlí
2002. Alls bárust 16 tilboð frá 10 aðilum
en fjögur tilboð voru dæmd ógild. Ráð-
gjafarfyrirtækið Sensa ehf. vann mat á
tæknilegum þjónustuþáttum tilboðanna en
Ríkiskaup gekk síðan frá heildarmati með
tilliti til verðs. I heildarmati á verði, þjón-
ustu og tæknilegri lausn fékk Skýrr h.f.
hæstu einkunn en samstarfsaðili fyrirtæk-
isins er Landssíminn hf.
Tilboð vegna FS-nets voru miðuð við
þjónustu í fjögur ár. Aðilar FS-netsins
munu ekki eignast búnað en skuldbinda
sig til að kaupa fjarskiptaþjónustu á netinu
í 4 ár. Öll tilboð sem stóðust kröfur út-
boðsins voru verulega yftr kostnaðaráætl-
un. Fyrir tilstuðlan menntamálaráðuneytis
fengust 45 m.kr. á ári í fjögur ár til að
greiða niður kostnað vegna verkefnisins
og í lok nóvember var gengið til samninga
við Skýrr um verkið. Samningar voru und-
irritaðir í byrjun desember og var miðað
við að netið yrði tilbúið til notkunar þann
1. febrúar.
Innleiðing
Ljóst var þegar gengið var frá samningum,
að tímafrestur fyrir uppsetningu netsins
var mjög skammur eða minna en 2 mán-
uðir. Skýrr og Landsíminn gengu rösklega
til verks. Það hjálpaði til að tíðarfar var
mjög gott og lítið frost í jörðu þannig að
jarðvinna gekk greiðlega.
Tölvumál
19