Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 22
Tungutækni: Hagkvæm lausn
hann hefði hringt í þjónustufulltrúa - nema
hann fær samband strax.
Tæknilegur bakgrunnur
Grunnurinn að því að tungutæknilausnir
með talviðmótum eru loksins famar að
skila arði eftir vægast sagt langar fæðing-
arhríðir eru stórbætt samskipti milli ólíkra
kerfa og stöðlun í samskiptum talþjóna.
Vefþjónustur (e. Web services) eru
orðnar nokkuð almennar og þar af leið-
andi eru samtengingar ólíkra kerfa með
Internettækni mun einfaldari en áður.
Gagnasamskipti um XML-viðmót á
HTTP-þjónum eru tiltölulega auðveld í
uppsetningu og meðförum.
Tungutækniþjónn Hex hugbúnaðar;
Hex Agent Server, nýtir einmitt slíkt við-
mót til að tengjast öðrum kerfum og sækja
þangað lifandi upplýsingar og gögn, með-
höndlar þau eftir þörfum og skilar þeim af
sér til talþjóns (e. Voice Server) á
VoiceXML 2.0 formi. Þess vegna heyra
notendur alltaf nýjustu fréttir í Fréttasíma
Morgunblaðsins á Netinu eða Fréttasíma
Skip.is.
VoiceXML er hinn þáttur þess að
tungutæknilausnir með talviðmóti hafa
sótt í sig veðrið. Þessi staðall, sem notaður
er fyrir samskipti milli lausnanna sjálfra
og talþjónanna, ásamt íhluta þeirra, hafa
gefið mönnum kost á að blanda saman því
rekstrarumhverfi sem best hentar hverju
sinni. Ekki þarf því að bjóða heildarlausn,
heldur geta menn einbeitt sér að þeim
hluta sem hentar best.
Talviðmót: „Velkomin í bankalínuna, hvað má bjóða þér að gera? Fá yfirlit eða millifæra?“
Viðskiptavinur: „Millifæra"
Talviðmót „Af tékkareikningi 123, tékkareikningi 456 eða sparireikningi?“
Viðskiptavinur „Af tékkareikningi 123“
Talviðmót „Yfir á tékkareikning 456 eða sparireikning?“
Viðskiptavinur „Sparireikning“
Talviðmót: „Hve mikið?“
Viðskiptavinur: „35.000 krónur“
Talviðmót: „Þú hefur valið að millifæra 35.000 krónur af tékkareikningi 123 yfir á sparireikning. Sláðu inn PIN kóðann þinn til að staðfesta eða segðu til ef þú vilt breyta eða hætta við.“
Viðskiptavinur slær inn PIN kóðann sinn. Talviðmótið kemur upplýsingunum til skila til gagnakerfis bankans sem gengur frá millifærsiunni.
Talviðmót „Millifærsla frágengin. Staða á sparireikningi nú 175.000 krónur.“
Bankaviðskipti hvar og
hvenær sem er. Við-
skiptavinir þurfa enga
þjálfun til að eiga í sam-
skiptum við kerfi sem
byggja á tungutækni.
Þeir einfaldlega hringja í
bankann sinn og talvið-
mótið leysir úr erindinu,
rétt eins og viðkomandi
hefði hringt í þjónustufull-
trúa.
í anddyrinu. Greitt væri fyrir miðana með
beintengingu símanúmers við greiðslu-
miðlun.
Eðlilegur samskiptaháttur
Það sem mestu máli skiptir er að fólk get-
ur notað eðlilegan samskiptahátt í gegnum
síma. Það getur talað. Að vera með einn
fingurinn stöðugt á lyklaborði símans og
fara í gegnum langar rullur af „ýttu á I..."
til að ná settu marki heyrir sögunni til.
Þess í stað gefur fólk einfaldlega talvið-
mótinu skipun:
Viðskiptavinurinn þarf enga þjálfun til
að vita hvernig hann á að eiga í samskipt-
um við svona kerfi. Hann einfaldlega
hringir í bankann sinn og talviðmótið
leysir úr erindinu fyrir hann rétt eins og
22
Tölvumál