Tölvumál

Ataaseq assigiiaat ilaat

Tölvumál - 01.10.2004, Qupperneq 10

Tölvumál - 01.10.2004, Qupperneq 10
Arðsemi fjárfestinga fjárfestingar í upplýsingatækni, um fjórðungur sagði að hún hefði aukist um 25% og 28% sögðu framleiðiaukning- una um 3-5%. Fjárfesting í upplýsingatækni í kjölfar bættrar stjórnunar Ekki er úr vegi að vitna í athugun sem ráð- gjafafyrirtækið McKinsey gerði í sam- vinnu við London School of Economics á meðal evrópskra fyrirtækja. Þar er ein meginniðurstaðan sú að framleiðniaukn- ing sé mest ef stjórnun fyrirtækja er bætt fyrst og síðan fjárfest í upplýsingatækni. Myndin hér að neðan sýnir samandregnar niðurstöður McKinsey. Sjá má að bættir stjórnunarhættir auka framleiðni um 8% á meðan aukin fjárfesting í upplýsingatækni (IT) ein og sér eykur hana um 2%. Ef hvort tveggja er gert má auka framleiðni um 20% samkvæmt rannsókninni. 4-* 4-* H sz v_ (0 c i— ;0 ■C’ </> 4- 4-4 « CQ Vp 00 20% 0% 2% Lægstu 25% Frá 75% og meir Fjárfesting í upplýsingatækni Að lokum Hér að ofan hefur aðferðum við mat á fjár- festingum verið lýst í grófum dráttum og því hvemig þessar aðferðir eru notaðar úti í hinum stóra heimi. Það sem rétt er að hafa í huga við mat á arðsemi fjárfestinga er að gera sér grein fyrir því í upphafi hvernig meta á arðsemi fjárfestingarinnar. Þá er ekki síður mikil- vægt að gera sér grein fyrir árangri eftir að fjárfest hefur verið, þ.e. hver raunveruleg arðsemi þeirra er. Árangursríkt arðsemismat felur í sér þrjá meginþætti: • Markmiðssetning - hver er tilgangur fjárfestingarinnar og hvernig mun hún auka verðmæti fyrirtækisins. • Aætlanagerð og framkvæmd - hver mun annast fjárfestinguna og hvernig mun innleiðingu hennar vera háttað til að markmiðum hennar verði náð. Áætl- aður er stofnkostnaður, rekstrarkostnað- ur, áhrif á annan rekstur félagsins og sett upp fjármögnunar- og greiðsluáætl- un. Loks eru gerðir samningar um fjár- festinguna. • Eftirfylgni og skilamat - hvemig hefur til tekist, hver var raunveruleg arðsemi, hvað tókst vel og hvað þarf að bæta til þess að upphaflegum markmiðum verði náð. Þröstur Sigurðsson, forstöðumaður fjármálaráðgjafar hjá ParX viðskiptaráðgjö IBM Tölvutækni á órinu 2004 10 Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.