Tölvumál - 01.10.2004, Page 30
Rafrænt markaðstorg
Rafrænt markaðstorg
Skilvirkari og hagkvæmari viðskipti
Jóhanna E. Hilmarsdóttir
Rammasamningar
Ríkiskaupa eru mið-
lægir samningar fyrir
allar ríkisstofnanir og
getur umtalsverður
sparnaður náðst með
því að nýta samning-
ana.
/
Iumræðunni um rafræna stjómsýslu og
rafrænt samfélag hefur lítið farið fyrir
RM. Að frumkvæði fjármálaráðuneyt-
isins var ákveðið að ráðast í útboð á raf-
rænu markaðstorgi þar sem ríkið bauð sig
fram sem fyrsta stómotandann. Fjármála-
ráðuneytið gerði samning við fyrirtækið
Anza að undangengnu útboði Ríkiskaupa
um rekstur markaðstorgs hinn 18. mars
2002, fyrstu pöntunina gerði Geir H.
Haarde fjármálaráðherra í júní sama ár og
hafa viðskiptin stöðugt verið að aukast.
Torgið (RM) er ætlað fyrir atvinnulífíð í
heild sinni á íslandi og að viðskipti ríkis-
ins verði aðeins lítið brot af heildinni þeg-
ar það verður komið í fullan rekstur. Rík-
iskaup hafa séð um innleiðingu RM fyrir
hönd ráðuneytisins í samstarfi við Anza.
í dag er verið að vinna að fjölgun not-
enda og hefur vinna við fjölmörg áta-
kverkefni verið í gangi sem eiga að hvetja
menn til að skoða þennan viðskiptamáta.
Samstarfsverkefni Anza og nokkurra selj-
enda sem miðar að því að tengja RM við
ýmis upplýsingakerfi seljenda hefur verið
í gangi nú í nokkra mánuði og er gert ráð
fyrir að því ljúki fyrir árslok.
Einnig eru í gangi nokkur verkefni sem
tengjast upplýsingamiðlun milli kerfa t.d.
Oracle. Verkefni er í gangi vegna rafrænna
vörulista sem eru lífæðar allra kerfa sem
hafa með innkaup að gera. Mikill ávinn-
ingur er fólginn í því ef hægt er að
samnýta upplýsingar og er sá ávinningur
ekki síst fyrir seljendur sem þurfa þá að-
eins að búa til upplýsingar einu sinni. All-
ir vörulistar sem fara inn á torgið verða
flokkaðir skv. vöruflokkunarstaðli UN-
SPSC. Verkefni eru í gangi sem tengjast
flokkunarstaðlinum t.d. þýðing yfir á ís-
lensku. Þær stofnanir sem nota munu
vörustýringarhluta Oracle t.d. LSH munu
einnig nýta RM sem skeytamiðstöð til að
flytja pantanir til birgja. Það verkefni er á
lokastigum. Að lokum má nefna verkefni
varðandi miðlun rafrænna reikninga sem
er eitt af meginmálum þessa verkefnis og í
raun lokapunkturinn á innkaupaferlinu.
Til að brúa bilið á meðan vinnu við verk-
efni vegna rafrænna reikninga hafa kaup-
endur hjá ríkinu notað Innkaupakort ríkis-
ins og geta á þann hátt sent upplýsingamar
rafrænt beint í bókhaldið.
Markmiðið að spara 1100 milljónir ó
fjórum órum
Eins og fram kemur í innkaupastefnu rík-
isins er meginmarkmið með uppsetningu
RM er að auka sveigjanleika við innkaup
og draga úr kostnaði við innkaup á vörum
og þjónustu hjá opinberum aðilum þar
sem rammasamningar Ríkiskaupa eru not-
aðir. Innkaup ríkisins nema um 65 millj-
örðum króna og er markmiðið að ná að
spara um 2500 milljónir króna á fjórum
árum. Þar af er gert ráð fyrir að með sam-
ræmdum innkaupum og rafrænum við-
skiptum náist að spara um 1100 milljónir.
Sparnaðaráformin ganga út á nýtingu
samninga, ferlasparnað og stjórnunarlega
yfirsýn.
Ýmsar mælingar hafa verið gerðar á
mögulegum sparnaði með nýtingu á raf-
rænum markaðstorgum og ljóst að sparn-
aður getur verið gríðarlegur í mörgum til-
fellum. Þróun viðskipta á RM er enn stutt
á veg komin og því erfitt að reikna raun-
verulegan ferlaspamað en sem komið er
en útreikningar sýna mögulegan sparnað
upp á 1.500 - 1.750 krónur í styttri ferl-
Betri yfirsýn og aukin tryggð við
samninga
Stór fyrirtæki á Norðurlöndum sem eru að
nýta RM (IBX1) eru sammála að yfirsýn
og tryggð við samninga séu sá þáttur í
sparnaði sem þeir horfa mest til. Hjá ís-
lenska ríkinu eru að meðaltali um 30% af
útgjöldum stofnana sem fara í innkaup.
Góð yfirsýn yfir þessi útgjöld stofnana
eins og önnur útgjöld er því nauðsynleg en
nokkuð erfitt er að meta þessa yfirsýn í
krónum og aurum. Helst mætti nota lík-
ingu við bókhald, hversu hár er ávinning-
urinn í krónum talið að stjómendur fyrir-
tækja fái rauntíma upplýsingar um stöð-
una á móti þeim vinnubrögðum sem vom
30
lölvumál