Tölvumál - 01.10.2004, Page 37

Tölvumál - 01.10.2004, Page 37
Örmerkjatæknin RFID Almennt er því spáð að örmerkingar verði fyrst nýttar við merk- ingar á kössum og brettum í vöruhúsum og við flutninga. Tæknin verður inn- leidd þar sem not- endur sjá ávinning, hvað sem áhugasam- ir tækni- og sölumenn segja. Tíðnisvið Ymis tíðnisvið hafa verið notuð fram að þessu og hefur hvert þeirra sína kosti. Það tíðnisvið sem hefur verið valið fyrir ePC númerin er 860 - 930 MHz. Það bil virðist henta fyrir nánast öll lönd í heiminum, en mismunandi er á milli landa hvar á þessu bili lausnin verður leyfð. Liggur t.d. fyrir Evrópusambandinu tillaga um að leyfa tíðnisviðið 865,6-867,6 MHz með 2W eirp orku, sem þýðir lesfjarlægð allt að tveimur metrum. Núverandi reglur í Evr- ópu leyfa 869,4-869,65 með 500mW eirp orku, sem þýðir um 50 cm lesfjarlægð. Bandaríkin nota 902-928 MHz tíðni og 4W eirp orku. Væntingar eru til þess að eftir því sem tækninni fleygir fram muni lesfjarlægðin og öryggi í aflestrinum aukast. Tímarammi innleiðingar Strikamerki eru í dag hluti af umbúða- prentun flestra vara og því engin auka- kostnaður við að setja slík merki á vömr. Kostnaður við hvert örmerki hefur verið um 70 kr. (einn $) en virðist vera að lækka niður í um 30-40 kr. stykkið. Ekki er því raunhæft að ætla að setja örmerki á vöru nema virði hennar beri það. Samkvæmt upplýsingum frá GCI samtökunum verður innan tíðar hægt að fá merki sem kosta innan við 4 krónur (5 cent), sem þýðir að þá verður raunhæft að merkja mun ódýrari vörur en áður. Kostnaður við merkin er þó aðeins toppurinn á ísjakanum því ólíkt strikamerkjunum verður alltaf að setja ör- merkin á vörurnar í sérstakri aðgerð, ann- að hvort sjálfvirkt á færibandi eða hand- virkt. Auk þess verða allir þeir sem vilja nýta sér þessa nýju tækni að fjárfesta í búnaði sem ræður við að skanna upplýs- ingarnar af örmerkjunum. Vöntun á stöðl- un í þessum tilgangi eykur enn á kostnað- inn því ekki tryggt að mismunandi merki og búnaður vinni saman og verður það ekki fyrr en stöðlunarvinnu á þessu sviði verður lokið. Örmerkin verða einungis notuð þar sem fyrirtækin sjá viðbótar ávinning umfram strikamerkingar, t.d. varðandi vörurýrnun og rekjanleika á vörum. Almennt er því spáð að örmerkingar verði fyrst nýttar við merkingar á kössum og brettum í vöruhús- um og við flutninga. Þar er ávinningurinn augljós við að stytta ferla og flýta fyrir allri meðhöndlun auk þess sem virði ein- inganna er yfirleitt nægjanlegt til að rétt- læta kostnað við notkun merkjanna og stofnkostnað við fjárfestinguna. Það er ekki fyrr en verð merkjanna er komið nið- ur undir eina krónu sem ávinningur merkj- anna getur orðið meiri en tilkostnaðurinn við notkun þeirra á smásölueiningar. Samkvæmt fréttatilkynningum frá Wal*Mart vænta þeir ávinnings í auknum rekjanleika á vörum og að allar innkallanir verði auðveldari. Þeir hafa komið á fót til- raunaverkefnum í sjö verslunum á Dallas/ Fort Worth svæðinu þar sem átta framleið- endur merkja 21 vöru fyrir vöruhús þeirra þar. Frá janúar 2005 munu fleiri bætast við og munu á annað hundrað birgja taka þátt í að setja örmerki á kassa og bretti inn á áðurgreindu svæði. Samkvæmt áætlunum Wal*Mart er gert ráð fyrir að á árunurn 2005 - 2008 munu lykilaðilar tileinka sér tæknina og á næstu tveimur árum þar á eftir muni fleiri stórir aðilar fylgja á eftir. Þeir gera ennfremur ráð fyrir að á árunum upp úr 2010 muni síðustu birgjamir bætast í hóp þeirra sem nýta sér ávinning tækninnar. Framleiðandinn Gillette hefur gert áætl- anir af svipuðum toga og telja þeir að árið 2013 verði bretti og kassar almennt merkt- ir með örmerkjum og það sama gildi um smásölueiningar frá árinu 2015. Stærstur hluíi umfjöllunar um þessa tækni byggir á því að verð merkjanna muni lækka og að einhver ár munu líða þar til búnaðurinn til að lesa og vinna upp- lýsingar úr merkjum verður nægjanlega útbreiddur til að örmerkingar teljist leiðin til að merkja vörur. Tæknin verður inn- leidd þar sem notendur sjá ávinning, hvað sem áhugasamir tækni- og sölumenn segja. Þess vegna verður fyrsta innleiðing- in á brettum og kössurn þar sem þörf er á rekjanleika. I smásöluverslun virðist aug- ljóst að það er dagstimpluð vara sem fyrst verður merkt með örmerkjum. Sparnaður- inn þar felst í mögulega færri einingum sem renna út á tíma. í því sambandi má nefna að breskar kannanir sýna að 1 -2% af ferskvöru þar í landi endar sem landupp- fylling og er þar því eftir miklum ávinn- ingi að slægjast. Tölvumál 37

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.