Tölvumál - 01.10.2004, Qupperneq 40
Eyöur
þjónusta, svo sem fæði og klæði, bifreið-
aumsýsla, þrif, viðhald fasteigna og þess
háttar. Þessi starfsemi ber heitið útvistun,
sem er ágætis tilraun til að íslenska hið
enska hugtak „outsourcing“.
Utvistun er sem sagt sú aðgerð að fyrir-
tæki kaupir til sín þjónustu frá sérhæfðum
þjónustuaðilum á ýmsum sviðum og losna
þannig við að byggja upp þekkingu og
ýmiskonar búnað til að geta veitt sér þessa
þjónustu sjálf.
Helstu ástæðumar fyrir því að fyrirtæki
leita til sérhæfðra fyrirtækja í útvistun er
annars vegar að losa sig við starfsemi sem
ekki flokkast undir lykilhæfni eða kjarna-
svið og hins vegar að ná fram aukinni hag-
kvæmni og styrk í rekstri. En fleiri ástæð-
ur en lækkun rekstrarkostnaðar og aukin
áhersla á lykilhæfni eru til staðar, eins og
til dæmis að skapa aðgengi að fólki og
lausnum og takmarka áhættu.
Sérfræðingar virðast almennt sammála
um að fýsilegt sé að útvista eftirfarandi
starfsemi:
• Starfsemi sem ekki skiptir viðskiptavini
fyrirtækisins miklu máli
• Starfsemi sem ekki skiptir fyrirtækið
sjálft miklu máli
• Starfsemi sem keppinautar eiga ekki
erfitt með að herma eftir
• Starfsemi sem önnur fyrirtæki leysa
hagkvæmar af hendi
Kerfisleiga - hagkvæm útvistun
Þegar kemur að því að tryggja viðunandi
arðsemi fjárfestinga í upplýsingatækni
með útvistun, þá hafa margir litið til kerf-
isleiguhögunar, sem stundum er nefnd
kerfisveita. Enska hugtakið yfir þetta fyr-
irbæri er Application Service Provider
(ASP).
Kerftsleiga felst nánar tiltekið í í samn-
ingsbundinni þjónustu á sviði hýsingar,
umsýslu og rekstrar á hugbúnaði fyrir við-
skiptavini frá miðlægu tölvuumhverfi.
Þjónustuaðilinn - kerfisleigan - ábyrgist
uppitíma, svartíma og öryggi gegn föstu
áskriftargjaldi. í dag er svo komið að
mögulegt er að reka nær allan hugbúnað í
kerfisleigu, allt frá Microsoft Office og
yfir í flestar tegundir fjárhags- og
mannauðskerfa.
Kerfisleiga gerir fyrirtækjum kleift að
ná niður kostnaði við notkun og rekstur
upplýsingatækni. Með kerfisleigu fá við-
skiptavinir aðgang að eigin vinnuumhverfi
(,,desktop“), gögnum og hugbúnaði gegn-
um öruggt umhverfi, sem er hýst og
vaktað á miðlægum búnaði - í sumum til-
vikum allan sólarhringinn. Viðskiptavinir
senda og sækja upplýsingar í viðskipta-
kerfi eftir hefðbundnum gagnaflutnings-
leiðum á hverjum stað, hvort heldur um er
að ræða fastlínusamband, upphringiteng-
ingu, þráðlaust net eða Internetið.
Kerfisleiga býður fastar mánaðar-
greiðslur og fyrirtæki þurfa í flestum til-
vikum ekki að leggja út í viðamiklar fjár-
festingar í vélbúnaði í upphafi og fjárfreks
reksturs í eigin umhverfi í kjölfarið.
Kostnaður við rekstur hugbúnaðar verður
með þeim hætti þekktur og fyrirsjáanleg-
ur. Hann verður mánaðarlegt gjald sem
tekur mið af fjölda notenda, raunverulegri
notkun og fleiri mælanlegum þáttum. Af
þessu leiðir að eftirlit með kostnaði af
upplýsingakerfum verður skilvirkara og
áætlanagerð auðveldari.
Rekstraröryggi eykst með því að allur
hugbúnaður (gagnagrunnar, notendahug-
búnaður og sérhæfður hugbúnaður) er
varðveittur miðlægt og afritataka og vökt-
un búnaðarins er í höndum þjónustuborðs.
Fagmenn sjá um allan rekstur kerfanna og
hafa öryggisumsjón með aðgangi og
gögnum. Þetta tryggir áfallalausan rekstur.
40
Tölvumál