Vísir - 16.04.1963, Blaðsíða 2
2
V í SIR . Þriðjudagur 16. apríl 1963.
Ströng embættisferð biskups
Kom heim í nótt
Biskupshjónin, hcrra Sigur-
bjöm Einarsson og frú Magnea
Þorkelsdóttir, komu heim kl. 4
f nótt úr einhverri erfiöustu og
jafnframt ánægjulegustu em-
bættisferð, sem biskup hefur
farlð til þessa, en hann vfgði
nýiu kirkju i Súðavik á páska-
dag. Sóknarpresturinn í Súða-
vik, séra Bernharður Guð-
mundsson, er kvæntur Rann-
veigu, dóttur biskupshjónanna.
Embættisferö þessa p6ru bisk-
upshjónin á sjó og landi og i
lofti i veðrahamnum undan-
fama viku og var útlitið eigi
ávallt sem bezt, en allt fór vel
að lokum.
Biskupshjónin lögðu af stað
í þetta ferðalag með varðskip-
inu Öðni á miðvikudag fyrir
skfrdag og var á móti veðri að
sækja I miklu frosti og hríð.
Komið var við á Patreksfirði
einvörðungu til þess að berja
klaka af skipinu og til ísafjarð-
ar var komið á skírdagskvöld
eftir sólarhringsferð úr Reykja-
vík. Á Isafirði voru biskups-
hjónin veðurteppt yfir bæna-
dagana, en ætlunin var að vígja
kirkjuna á laugardag fyrir páska
og var byrjað að ryðja snjó af
veginum frá lsafirði til Súða-
víkur er veðrinu fór að slota
síðdegis á föstudag. Þegar ætla
mátti að ýtan væri komin til
Súðavikur, lögðu biskupshjón-
in af stað frá Isafirði, en snjór
var þá miklu meiri á þessari
leið en menn höfðu gert ráð
fyrir og var ýtan ekki komin
nema hálfa leið er bíllinn með
biskupshjónunum náði henni og
mjakaðist síðan á eftir henni
til Súðavíkur, en þá var klukk-
an hálffjögur á laugardags-
morguninn er þangað kom. —
Vígslunni varð að fresta vegna
veðurs á laugardag og vígði
biskup kirkjuna I Súðavík kl.
5 á páskadag I sæmilegu veðri
að viðstöddu miklu fjölmenni,
sem beðið hafði þessarar há-
tíðlegu stundar með óþreyju.
Sóknarpresturinn prédikaði og
héraðsprófasturinn, séra Sig-
urður Kristjánsson, var meðal
kirkjugesta. Kirkja hefur eigi
áður verið í Súðavík og eru
viðir í henni úr gömlu kirkj-
unni á Hesteyri. Nýja kirkjan
rúmar um 100 manns í sæti, en
um 140 manns eru í Súðavík.
Biskupinn sagði í viðtali við
Visi í morgun að kirkjan væri
óvenjuvel búin að góðum grip-
um og hefðu íbúar staðarins
sýnt sérstakan áhuga og fóm-
fýsi við að koma henni upp,
unnið mikið í sjálfboðavinnu,
gefið dagkaup við vinnu í frysti
húsinu á staðnum og fleira og
fleira. Hefur formaður sóknar-
nefndar, Kristján Sveinbjörns-
son, varið öllum sínum tóm-
stundum við kirkjubygginguna
og marga fleiri mætti nefna.
Það var hátíðleg stund þeg-
ar þessi kirkja var vígð og í
gær var fermt í kirkjunni. Sama
dag sneru biskupshjónin heim
á leið og sótti Björn Pálsson
þau í flugvél til ísafjarðar. En
þegar til Reykjavíkur kom var
ólendandi þar vegna slæmra
veðurskilyrða og flaug Bjorn þá
vestur til Stykkishólms og lenti
þar í gærkvöldi. Þaðan héldu
biskupshjónin þegar í bíl áleiðis
til Reykjavíkur, en hrepptu kaf-
hrfð í Borgarfirðinum og hélzt
það veður unz til Reykjavíkur
kom kl. 4 í morgun. Svo dimmt
var af veðri og nóttu að oft
var mjög erfitt að greina veg-
arbrúnirnar og halda bflnum á
veginum. En heilu og höldnu
náðu biskupshjónin heim úr
þessari ströngu embættisferð.
Happdrætti
Háskólans
Miðvikudaginn 10. apríl var dreg-
ið í 4. flokki Happdrættis Háskóla
íslands. Dregnir voru 1.050 vinn-
ingar að fjárhæð 1.960.000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 200.000 kr.,
kom á fjórðungsmiða númer 18,166.
Tveir fjórðungar voru seldir í um-
boði Jóns Arnórssonar, Bankastr.
11, einn fjórðungur hjá Frímanni
Frímannssyni í Hafnarhúsinu og sá
fjórði á Hnífsdal.
100,000 krónur komu á hálfmiða
númer 27,175. Annar helmingurinn
var seldur í Keflavík en hinn á Þórs
höfn.
10,000 krónur:
3992 9507 10254 12556 13581 13899
16706 17668 19328 22057 22746
29845 29879 32498 35479 36472
40877 40887 43100 49548 49789
50672 52086 56269 58425 59008.
(Birt án ábyrgðar).
Slæm færð nyrðrn
Þegar norður fyrir Akureyri kem-
ur er víða þungfært t. d. Vaðla-
heiði er ófær og til Dalvíkur kom-
ast ekki nema stærstu bílar. Jafn-
vel á Akureyrargötum er þungfært
víða, enda sums staðar allt að
2ja metra djúpir skaflar.
Alþýðubrauígerðin svæld
*
Frá Alþýðubrauðgerðinni
Vegfarendur, sem leið áttu um
Laugaveginn s.l. laugardag, veittu
því athygli, að fyrir framan Al-
þýðubrauðgerðina á Laugavegi 61
stóð lögreglumaður til þess að
meina fólki inngöngu í húsið.
Þegar betur var að gáð stóðu að-
vörunarmerki á húsinu, þar sem
skýrt var frá því að húsið væri
fullt af eiturlofti og að lífshættu-
legt væri að fara inn fyrir dyr þess,
enda stranglega bannað.
Þegar leitað var upplýsinga
hverju þetta sætti kom í ljós, að
þarna var verið að svæla inni urm-
ul skorkvikinda, sem gert höfðu
sig heimakomin í húsakynnum Al-
þýðubrauðgerðarinnar og 1 fullkom
inni óþökk heilbrigðiseftirlits borg-
arinnar.
Vísir hefur fregnað að þegar full-
trúi borgarlæknis var nýlega á eft-
irlitsferð í Alþýðubrauðgerðinni,
hafi hann orðið var skorkvikinda
í húsinu. Er hann hugaði betur að
var þarna kvikt af þessum dýrum
— og ekki aðeins ein tegund, held-
ur margar — og borgarlæknir fyr-
irskipaði forstjóra Alþýðubauðgerð-
arinnar að stöðva allan reíistur fyr-
irfækisins unz róttækar aðgerðir
hefðu farið fram.
Að morgni föstudagsins langa
fékk forstjóri Alþýðubrauðgerðar-
innar Aðalstein Jóhannsson
meindýraeyði til að fram-
kvæma svælingu í húsinu. Áður
varð að loka öllum gluggum, hurð-
um og rifum og birgja eins vand-
lega og framast var unnt, en síð-
an hleypt á blásýrulofti, sem er
banvænt og ríður t. d. fullorðnum
manni að fullu á svo að segja svip-
stundu.
Á Iaugardagskvöldið var loftað
út að nýju, en öll vinna féll niður
í húsinu þar til í dag, og
engum manni leyft að dveljast inni
fyrr en fullséð er með nákvæmum
mælingum á blásýrumagninu í loft-
inu að það sé horfið að fullu og
hættulaust að taka upp starf.
stúdenta hækka
Lán til
Nýlega er lokið úthlut
un námslána til stúdenta
þeirra er stunda nám
hér við Háskólann. Út-
hlutað var 2,3 millj. kr.
til 221 stúdents, en það
er hæsta úthlutun sem
gerð hefur verið, til
þessa, og hefur f járhæð-
in hækkað um kr.
600.000,00 á einu ári og
kr. 400.000,00 frá því í
haust.
Fleiri stúdentar fá lán
en nokkru sinni fyrr.
Úthlutun námslána fer fram
tvisvar á hverju misseri, að
hausti og vori. Er það Lána-
sjóður íslenzkra námsmanna,
sem sér um þá úthlutun, en til
þeirrar stofnunar er varið fé
árlega á fjárlögum. Hiutur
stúdenta bæði hér heima og er-
lendis hefur batnað mjög hin
síðari ár í lánsmálum. Sem
dæmi þess má benda á, að 1960
fengu stúdentar hér við há-
skólann 1.4 millj. kr., en nú
árið 1963, er gert ráð fyrir
a.m.k. 4,1 millj. kr. Er hér um
verulega hækkanir að ræða,
sem mjög hafa komið stúdent-
um vel á langri og erfiðri náms-
braut. Er þar fyrst og fremst
að þakka velvild og skilningi
viðkomandi ráðherra, mennta-
málaráðherra og fjármálaráð-
herra.
Lán þessi eru frá kr. 7.500.00
upp í kr. 15.000.00 pr. mann,
tvisvar á 'ári hverju. Endur-
greiðslutfmi þeirra eru 15 ár,
frá því viðkomandi stúdent
hefur lokið prófi, og er Iánið
vaxtalaust fram að þeim tíma.
Sérstakar reglur gilda um út-
hlutun, en geta má þess að af
þeim 227, sem sóttu um lán
nú, fengu 221 umsækjandi lán,
en aðeins 6 var hafnað.
Að lokum skal þess getið að
áætiuð námslán til stúdenta
bæði hér heima og erlendis
nema kr. 11.1 millj. fyrir 1963.
Húsgögn skemm-
astafvatnioggufu
Hjá Slökkviliðinu í Reykjavík
var talsvert að gera um bænadag-
ana, enda þótt ekki væri um neina
stórbruna að ræða.
Á miðvikudaginn 10. þ. m. var
Slökkviliðið kvatt út fjórum sinn-
um, m. a. í tvo vinnuskúra snemma
á miðvikudagsmorgun. Fyrri kvaðn
ingin var kl. 6,37 að Karfavogi 32.
Undir vinnuskúrnum er kjallari og
hefur líklega verið af mannavöldum
kveikt í rusli sem þar var geymt.
Eldsins varð fljótlega vart og
Slökkviliðinu gert aðvart. Tókst því
að slökkva áður en teljandi tjón
hlauzt af. Tveim stundum seinna
var Slökkviliðið aftur kvatt að
vinnuskúr og i það skiptið að Kapla
skjólsvegi 37. Þar mun hafa kvikn-
að í út frá ofni að talið er og urðu
talsverðar brunaskemmdir á skúrn-
um áður en tókst að slökkva.
Um hádegisleytið á miðvikudag-
inn voru börn að leika sér með
eldspýtur í íbúð að Eskihlíð 20 og
kveiktu í. Urðu talsverðar skemmd
ir á húsgögnum og auk þess nokkr
ar á herberginu sjálfu.
Klúkkan 2 e. h. á miðvikudaginn
var Slökkviliðið kvatt að Hnitbjörg
um, listasafni Einars Jónssonar.
Menn voru að vinna með logsuðu-
tæki við útidyrahurð og óttuðust
þeir að neisti myndi hafa komizt
í einangrun, svo þeir kölluðu á
Slökkviliðið í öryggisskyni. Sem
betur fór hlauzt þó ekkert tjón af
þessu.
Aðfaranótt fimmtudagsins var
Slökkviliðinu gert aðvart frá tal-
stöðvarbíl, sem ekið hafði eftir Suð
urlandsbraut, að eldur hafi sézt við
húsið nr. 23 við Suðurlandsbraut
og sennilega myndi hafa kviknað í
því. Þegar Slökkviliðið kom á stað-
inn, fann það að vfsu eldinn, en hús
Petrosjan með
vinning yfir.
Sjöundu skákinni í einvígi Bot-
nniks og Petrosjans lauk með
gri Petrosjans. Hafði Petrosjan
/ítt. Standa leikar þannig, að
strosjan hefur fjóra vinninga
óti þremur vinningum Bot-
nniks.
ráðandi hafði sjálfur kveikt hann
I til að þíða olíu, sem storknað hafði
I í Ieiðslum frá olíugeymi, sem stóð
fyrir utan húsið.
I Á föstudaginn, um kl. 2 e. h.,
kviknaði í rusli í sorphólk í húsinu
nr. 54 við Kleppsveg. Ekki hlauzt
af þessu tjón svo orð væri á ger-
' andi.
Sama dag, kl. langt gengin 11
að kvöldi, sáu piltar sem áttu leið
um Skólavörðustfg, mökk mikinn
leggja frá húsinu nr. 16A þar við
götuna. Töldu þeir að kviknað væri
í og gerðu Slökkviliðinu aðvart.
Þegar á staðinn kom, hafði mið-
stöðvarofn sprungið og lagði gufu-
mökk mikinn frá vatninu. Vatnið
flæddi um kjallarann og er talið að
húsgögn, sem þar voru geymd, hafi
skemmzt verulega bæði af gufu og
vatni.
Á laugardaginn var Slökkviliðið
kvatt að Sjómannaskólanum vegna
elds í rusli utanhúss. Á sunnudag-
inn kom kvaðning gegnum bruna-
boða á Kárastíg 1. En þegar þangað
kom, var brunaboðinn óbrotinn og
hvergi eldur. Er talið að þarna hafi
verið um bilun á símaleiðslu
liálverksisýiiing
á Akranesi
Ungur Akurnesingur stofnaði til
málverkasýningar á Akranesi í vik-
unni fyrir páska og sýndi yfir 30
málverk. Þetta er í fyrsta skipti,
sem efnt er hér til sjálfstæðrar
málverkasýningar al' Akurneslngi.
Skagamaður þessi heitir Hreinn
j Elíasson, Hann hefir lagt stund á
j ýmis störf, en fengið æ meiri áhuga
fyrir að mála. Hann er • kvæntur
maður og er kona hans ættuð að
norðan. Tóku þau upp heimilið með
an hann fór utan til listnáms. Var
þá konan með börnin hjá foreldr-
um norðanlands, en Hreinn dvald-
ist um sinn í Hamborg, og í fyrra-
sumar í Glasgow, en fjölskyldah
sameinaðist svo s. 1. haust. Hefir
Hreinn komið sér upp húsi og
vinnuskáia og hyggst sinna málara-
listinni eftir því sem aðstæður
leyfa.