Vísir - 16.04.1963, Side 3
V í SIR . Þriðjudagur 16. apríl 1963,
3
MINNING:
Frú Anna Borg
TTin mikilhæfa leikkona Anna
1 Borg var meðal þeirra far-
þega sem fórust í hinu sviplega
flugslysi í Osló á páskadags-
morgun. Vísir hefir snúið sér
til Haraldar Bjömssonar leikara,
sem var náinn vinur og starfs-
bróðir hinnar látnu leikkonu, og
beðið hann að minnast hennar
nokkrum orðum. — Haraldur
Björnsson segir:
„Anna Borg var ein hin Ijúf-
asta og yndislegasta kona, sem
ég hefi þekkt á langri ævi. Mik-
ill persónuleiki, góður félagi,
sem öllum vildi hjálpa. Ágæt
listakona I þess orðs fyllstu og
beztu merkingu.
Kynni okkar voru löng, allt
fré þvf, er við hófum nám sam-
an I Konunglega leikskólanum
í Kaupmannahöfn árið 1925 og
til hins síðasta. Hún var mikill
íslandsvinur, unni mjög landi
sínu og þjóð og bar hag og
gengi listar íslendinga mjög fyr-
ir brjósti. Þótt örlögin höguðu
því svo að ævistarf hennar yrði
í öðru landi var hún alltíður
gestur á íslenzkum lciksviðum.
Þótti koma hennar jafnan mik-
ill viðburður.
Marga vini átti hún hér fyrr
og síðar.“
Norskur slökkviliðsmaður við lok slökkvistarfsins á Nesoy. — Símsend mynd NTB.
- FLUGSL YSIÐ VIÐ OSLÓ
Framhald af bls. 1.
um 8,4 km frá flugbrautinni. Þá
var flugvélin í eðlilegri hæð eða
1500 fetum og skýrði flugstjór-
inn frá því að allt væri í lagi.
SLVSSTAÐURINN
En 10 sekúndum síðar féll
flugvélin til jarðar á svokallaðri
Borg, hæsta stað landfastrar eyj-
ar sem heitir Nesoy, sem er um
6 km frá flugvellinum. Miðja
vegu milli Asker og Nesoy hefði
flugvélin átt að vera f 1300 feta
hæð, en það er vitað, að þar var
hún komin í 600 feta hæð eða
700 fetum of lágt.
Þegar vélin kom ekki fram
til flugbrautarinnar lét flugum-
ferðarstjórnin kalla harra þrisvar
upp og þegar ekki var svarað
var sent út neyðarkall.
Hvað gerðist á síðasta kaflan-
um að slysstaðnum er ekki vit-
að, en flugvélin hefur þá lækkað
Minningarorð í
danskn útvarpinu
I gærkvöldi flutti sendiherra
íslands í Kaupmannahöfn, Stef-
án Jóhann Stefánsson, minning-
arorð um frú Önnu Borg í
danska útvarpinu. — Minntist
sendiherrann á glæsilegan leik-
feril hennar, bæði hér heima og
í Danmörku þar sem Iífsstarf
hennar varð. Þá gat hann einnig
um ást hennar og manns hennar
Poul Reumerts á íslandi og
hinna mörgu heimsókna þeirra
hjóna hingað til Iands og leikaf-
reka þeirra beggja.
Sendiherrann tilkynnti Poul
Reumert lát konu hans síðdegis
á páskadag.
flugið mjög mikið, því að hæsti
staður eyjarinnar er um 120 fet.
SÁ
SKRÁSETNINGARMERKIÐ
Fréttamaður Vísis í Ósló, Mats
Wibe-Lund, skýrir svo frá því,
að hann hafi skyndilega heyrt
lesna upp í norska útvarpinu
tilkynningu, þar sem meðlimir
flugslysanefndarinnar voru beðn
ir að koma tafarlaust til Nesoy.
Ég varð áhyggjufullur, þegar
ég heyrði þetta, segir hann, því
að ég vissi að íslenzk flugvél
átti að vera á leiðinni um þetta
leyti. Ég ók þegar í stað til Nes-
oy og var kominn þangað um
klukkustund eftir að slysið varð.
Þarna á eynni er mikið af lág-
vöxnum skógi, sem byrgði sýn í
fyrstu, en allt í einu kom ég fyr-
ir grein á tré og sá þá blasa við
mér leifar af brunninni flugvéi,
tvö stykki voru heillegust, stélið
og hluti kringum útgöngudyr.
Og ég varð gripinn harmi og
skelfingu, þegar ég sá blasa við
mér á hurðarstykkinu skrásetn-
ingarmerkið TF-ISU. Þá varð
mér ljóst, að Hrímfaxi, vél sem
ég hafði oft ferðazt í til íslands
og á fslandi, hafði farizt.
Eyjan, sem flugvélin kom nið-
ur á, er allfjölbyggð, en hún
kom niður í skógarkjarri og er
skammt til húsa allt í kring. Er
mikil mildi að hún skyldi ekki
lenda á einhverju húsinu.
FRÁSAGNIR
SJÓNARVOTTA
Sjónarvottar skýra frá eftir-
farandi:
Haraid Maack yfirréttarmál-
flutningsmaður var á göngu á
Neseyju. Hann skýrir frá því,
að hann hafi allt í einu heyrt
miklar vélardrunur. Kveðst
hann hafa haldið í fyrstu, að
þetta væri Caravelle þota að
lenda, en í þeim er mikill há-
vaði. En þegar hann leit upp sá
hann allt í einu, að stór farþega-
flugvél steyptist með miklum
halla til jarðar. Telur hann að
það hafi verið með 70—80 gráðu
halla eða næstum lóðrétt niður.
Strax og hún snerti jörðina varð
mikil sprenging í henni.
Frú Mait Lehr býr í því húsi
sem er næst slysstaðnum aðeins
um 50 metra til hliðar. Hún skýr
ir frá því að lítil dóttir hennar,
11 ára, hafi litið út um gluggan
rétt í sama mund og sprenging-
in varð. Stúlkan hljóp til
mömmu sinnar, sem var annars
staðar í húsinu og sagði að flug-
slys hefði orðið og það þyrfti
að hringja strax í lögregluna.
STEFNDI Á HÚSIÐ
í öðru húsi, sem er nokkru
fjær slysstaðnum eða rúma 100
metra en í beinni línu framund-
an býr frú Mary Hassel. Henni
brá mjög í brún og trúði varla
sínum eigin augum, þegar henni
varð litið út um borðstofuglugg-
ann og sá að flugvél var að
steypast niður og stefndi beint
á húsið.
— Ég greip höndum fyrir aug
un, segir hún, og æpti til manns
míns. — Það stefnir flugvél
beint á húsið okkar. Síðan liðu
nokkrar hræðilegar sekúndur, en
flugvélin féll til jarðar efst á
Borginni.
í öðru nálægu húsi, á hlið við
stefnu flugvélarinnar býr maður
að nafni Per Grusdal. Hann var
að lesa í blaði inni í stofu hjá
sér, þegar hann heyrði allt í
einu miklar vélardunur. Hann
leit þá út um gluggann og sér
að flugvél steypist til jarðar með
45 gráðu halla. Hann segir, að
rétt áður en flugvélin snerti jörð
hafi hún breytt aðeins um
stefnu, líkt og flugmaðurinn
væri að reyna að rétta hana
upp.
Einn sjónarvottur heldur því
fram, að flugvélin hafi síðast,
áður en hún snerti jörð, hallazt
nokkuð.
LÍK ALLRA FUNDIN.
Lík allra þeirra tólf, sem voru
í flugvélinni, hafa fundizt.
Sem fyrr segir, varð spreng-
ing í flugvélinni og brann hún
síðan að mestu upp. Það eina,
sem fannst óbrunnið var salma-
bók, rugguhestur, smurt brauð
og sígarettupakkar. Á Borginni
stóð stórt furutré yfir kjarrskóg
inum. Flugvélin kom á tréð og
braut það og lá stélhlutinn ná-
lægt trénu. Hreyflarnír fjórir
lágu allir sér svartir af bruna.
RANNSÓKNARNEFNDIN.
Fulltrúar í hinni norsku rann-
sóknarnefnd voru ekki í bænum
þegar slysið varð, enda siður
Norðmanna að fara upp til fjalla
á páskadag. Það var því fyrst
og fremst lögreglan frá Asker,
sem framkvæmdi skoðun á
staðnum. Og þ'að var ekki fyrr
en I gærmorgun, sem rannsókn
arnefndin kom saman.
1 nefndinni eru þessir menn:
Gunnar Halle ofursti, Gulbran
Nyhus lögreglufulltrúi, Eivind
Tjensvol löjtenant, Ulv Aten
flugmálaráðunautur og Sigurð-
ur Jónsson frá íslenzka loftferða
eftirlitinu. Frá Flugfélagi ís-
lands eru einnig komnir til
Osló til að vera viðstaddir rann
sóknina þeir Jóhann Gíslason,
Birgir Þorleifsson og Skúli
Magnússon. I dag var og vænt-
anlegur til Osló fulltrúi brezku
Vickers verksmiðjanna.
ÝMSAR GETGÁTUR.
Nóttina áður en rannsóknar-
nefndin hóf störf sín, hafði ver
ið mikil snjókoma í Osló og ná-
grenni og var 20 cm. snjólag
yfir slysstað. Hefur þetta mjög
torveldað rannsóknina. Nefndin
hefur yfirheyrt vitni og lögreglu
og slökkviliðsmenn og rætt við
flugumferðarstjórnina á Oslóar-
flugvelli. Hún hefur ekki getað
enn komizt að niðurstöðu um
orsakir slyssins. Eru ýmsar get-
gátur á lofti um það, en enga
þeirra hægt að staðfesta. Ein
þeirra er sú, að um ísingu hafi
verið að ræða, þegar flugvélin
var að fara niður úr skýjunum.
Formaður rannsóknarnefndarinn
ar telur þann möguleika fremur
ólíklegan en ekki útilokaðan.
Uppdráttur þessi sýnir legu Fornebu-flugvallar við Osló og slys-
staðinn á Nesoy. Síðast var haft samband við flugvélina yfir bæn-
um Asker.