Vísir - 16.04.1963, Page 5
V í SIR . Þriðjudagur 16. apríl 1963.
5
Tveir hásetar
þýzkum togara viSELDEY
Þýzkur 530 tonna togari, Maria
von Jever varð fyrir áfalli í rokinu
við Suðvesturland aðfaranótt föstu
dagsins langa. Reið brotsjór yfir
hann um kl. 4 um nóttina, er hann
var að veiðum við Eldey. Hásetar
voru á þilfari að ganga frá veiðar-
færum, þar sem þeir voru að
hætta vegna veðurs.
Brotsjórinn þreif með sér fyrir
borð tvo menn og hafa þeir ekki
fundizt síðan. Þeir hétu Horst
Fischer, 28 ára, og Walther Kriig-
er, 54 ára.
Tveir hásetar aðrir sem voru á
þilfarinu, Klaus Klingler, 24 ára,
og Bruno Ahland, 26 ára, köstuð-
ust til með bárunni og slösuðust.
Kom togarinn til Vestmannaeyja
kl. 14.30 á föstudaginn langa og
lagði þá tvo á land. Liggja þeir nú
í sjúkrahúsinu i Vestmannaeyjum
og líður sæmilega eftir aðstæðum.
Togarinn fór aftur út um miðnætti
til veiða.
IKLAR UNDANÞAGUR
Á SKEMMTANASKATTI
Ríkisstjórnin hefur lagt
fram fram frumvarp á
Alþingi sem kveður
á um niðurfellingu
Góðir gestir
Um páskana komu frá Noregi
góðir gestir, sem líklegir eru til
þess að setja svip á andlegt líf
höfuðstaðarins næstu vikur. Munu
þeir hafa samkomur á kvöldin í
Fríkirkjunni frá 17.—30. þ. m. og
ef til vill lengur.
Menn þessir eru: Cand theol.
Erling Moe, sem mörgum hér í bæ
er að góðu kunnur frá tjaldsam-
komunum á Skólavörðuhæð sum-
arið 1961. Hann er fyrirliði og
frumkvöðull ferðarinnar hingað að
bessu sinni. I för með honum eru:
Stud. theol. Gunnar Bonsaksen,
kunnur æskulýðsleiðtogi og píanó-
leikari, og Odd Wannebo, ungur og
efnilegur söngvari, sem stundað
hefur nám í Vínarborg.
Allir eru velkomnir á samkomur
beirra félaga, sem síðar verða nán-
ar auglýstar í blöðum og útvarpi.
Þess er vænzt, að fólk noti þetta
einstæða tækifæri, í framhaldi af
páskahátíðinni, til þess að hlusta
á kunna prédikara og listamenn,
sem hafa mikilsverðan boðskap að
flytja.
skemmtanaskatts á
klassiskum tónleikum,
leiksýningum, sýningum
á íslenzkum kvikmynd-
um og dansskemmtun-
um einstakra félaga, ef
ekki er þar haft vín um
hönd. Til að vega upp
þann tekjumissi verður
vegna þessa, tekinn
skattur af gestum vín-
veitingahúsa, kr. 10.00
pr. mann.
Með frumvarpi þessu og nið-
urfellingu skemmtanaskatts á
áðurnefndum samkomum, vill
ríkisstjórnin í fyrsta lagi stuðla
að eflingu og örvun leiklistar-
og tónlistarstarfsemi í landinu.
í öðru lagi er tekið tillit til
þeirra virðingarverðu viðleitni
ýmissa áhugamannafélága til að
halda uppi þróttmiklu félags-
starfi. Á það ekki hvað sízt við
um íþrótta- og æskulýðsfélög,
menningar- og líknarfélög. Erf-
iðlega hefur þessum félögum
gengið að afla tekna ,og hljóta
þau því mjög að fagna því, að
þurfa ekki lengur að greiða
skemmtanaskatt.
Hér undir falla og vínlausir
skemmtistaðir fyrir æskufólk,
og verður því vart hætta á, að
slíkar skemmtanir þurfi að
Ieggjast niður f bráð.
Með ofannefndri niðurfell-
ingu og undanþágum er ljóst að
nokkur tekjumissir hlýzt af, en
tekjur af skemmtanaskatti
renna eins og kunnugt er að
helmingi til Þjóðleikhússins, og
að helmingi til félagsheimila-
sjóðs, auk 10% álags til Sin-
fóníuhljómsveitarinnar.
Til að bæta upp tekjumiss-
inn verður sá kostur tekinn, að
leggja nokkurn skatt á þá, sem
sækja vínveitingahúsin. Verður
það 1Q króna gjald. Auk þess
er gert \ ráð fyrir að veitinga-
húsin sjálf taki 5 kr. til greiðslu
á auknum kostnaði, sem af
þessu stafar. Er áætlað að skatt
ur þessi muni skila 4—5 millj.
kr. f aðra hönd, þannig að hann
ætti ekki aðeins að bæta upp
tekjumissinn, heldur og skila
nokkrum hagnaði. Sá hagnaður
gæti numið 3—4 milljónum
króna.
Andrés Þorláksson.
Kristján Ragnarsson.
Tók út aí Hring
Á þriðjudaglnn fyrir skírdag
var vélbáturinn Hringur frá
Siglufirði á leið inn til heima-
hafnar af miðunum. Var þá
skollið á óveðrið mikla fyrir
Norðurlandi og var mjög slæmt
í sjóinn. Hnútur reið undir bát-
inn og tók tvo skipverja út, þá
Andrés Þorláksson og Kristján
Ragnarsson. Náðist annar þeirra
en var þá látinn. Hinn náðist
ekki. Birtast hér myndir af hin-
um látnu sjómönnum.
Andrés Þorláksson var fædd-
ur 1927, búsettur á Siglufirði.
Hann var ókvæntur og bam-
laus. Kristján Ragnarsson, fædd
ur 1939, var frá Akureyri, en
búsettur á Siglufirði. Hann læt-
ur eftir sig unnustu.
Manns saknað
Rannsóknarlögreglan í Reykjavík
hefur beðið Vísi að lýsa eftir manni
sem saknað er og ekki hefur komið
heim til sín í hálfan mánuð.
Maðurinn heitir Finnbogi Græð-
Eiginmaður minn og faðir okkar,
KARL SCHRAM,
andaðist á páskadagsmorgun.
FÆRÐ Þ YNGIST
í morgun voru flestir vegir að
og frá Reýkjavík enn færir, en sums
staðar þó byrjað að myndast drög
á þeim og færð tekin að þyngjast.
Þannig var t. a. m. bæði með
Hvalfjarðarleið og Keflavíkurveg að
færðin var tekin að þyngjast fyrir
litla bíla. Þegar kom suður fyrir
Keflavík versnaði færðin til muna
og Garðsvegur til Sandgerðir var
ófær litlum bílum.
Hvalfjarðarleið var fær í morgun
en færð tekin að þyngjast beggja
vegna fjarðarins. Sendi Vegagerðin
tæki bæði þangað og eins á Reykja
víkurleiðina til að hreinsa veginn.
Leiðin um Þrengslaveg var fær
í morgun, en einnig þar var færð
tekin að þyngjast, auk þess sem
hríðarveður var þar uppi og erfitt
að aka sökum blindu.
Um Suðurlandsundirlendið var
fært a. m. k. austur að Hellu, en
þegar austar dregur er blindhríð og
austur í Mýrdal og þar fyrir aust-
an allt gesamlega ófært.
í Borgarfirði er færð tekin að
þyngjast eitthvað en þó ekki að
ráði ennþá. Á Holtavörðuheiði er
ekki mikill snjór ennþá og vegur-
inn fær, enda logn á heiðinni þótt
snjókoma sé nokkur. Úr því er
leiðin til Akureyrar mjög greiðfær
og í rauninni fær öllum bílum.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs held-
ur fund í Sjálfstæðishúsi Kópavogs
miðvikudaginn 17. apríl kl. 8,30.
Fundarefni: 1. Bjarni Bragi Jónsson
hagfræðingur flytur erindi um fram
kvæmdaáætlun ríkisstjómarinnar.
2. Kosnir fulltrúar á landsfund
Sjálfstæðisflokksins.
ir Pétursson og er múrari að at-
vinnu. Hann gengur oftast undir
nafninu Bogi frá Hrísdal ,og er
nokkuð þekktur maður undir því
heiti, m. a. fyrir málverk, sem hann
hefur málað.
Finnbogi átti áður heima á Suð-
urgötu 112 á Akranesi, en nú síð-
ast bjó hann hjá kunningjafólki
sínu að Suðurgötu 85 í Hafnarfirði
Þaðan fór hann 2. þ. m. og ætlaði
þá til Reykjavíkur að því er heim-
ilisfólkið þar taldi. Síðan hefur ekk-
ert til ferða hans spurzt og eru all-
ir þeir, sem vita eitthvað til ferða
hans eftir þann tíma vinsamlegast
beðhir að gera rannsóknarlögregl-
unni í Reykjavík aðvart.
Finnbogi Græðir er 50 ára að
aldri, meðalmaður að hæð, fremur
grannvaxinn, sköllóttur en með
brúnan hárkraga. Þegar hann fór
að heiman var hann klæddur ljós-
bláum fötum, frakkalaus, með grá-
grænan Týrólarhatt, grænt bindi os
í svörtum skóm.
Um páskana lýsti lögreglan í
Reykjavík eftir 14 ára gamalli reyk-
vískri stúlku í útvarpinu, sem far-
ið hafði heiman að frá sér og dvald-
ist næturlangt í burtu án þess að
koma heim. Var tekið að óttast um
hana og sneru aðstandendur henn-
ar sér til lögreglunnar og báðu
hana um aðstoð við eftirgrennsl
an. Lögreglan fann stúlkuna í veit
ingastofu að Laugavegi 72 í gær-
dag. Hafði hún komizt suður til
Grindavíkur og síðast hafzt við í
togara í Hafnarfirði í fyrrinótt.
Unnur Schram og böm.
Jarðarför bróður okkar,
AXELS M. ÞORBJÖRNSSONAR
verzlunarmanns,
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 17. apríl kl.
3 e. h. Blóm vinsamlega afþökkuð.
Ólöf Ólafsdóttir Sigurþóra Þorbjörnsdóttii
Hannesína Þorbjörnsdóttir.
Eimskipafélag íslands hefur tek- , ingur á ýmsu, m.a. til landbúnað-
ið á leigu 3 skip vegna mjö'g auk- ! arins, vélar, staurar, o.s.frv., auk
, inna flutninga nú undir vorið og
eru þau öil væntanleg fyrir tnán-
aðamótin.
ýmissar annarrar aukningar á flutn
ingum.
Tröllafoss átti upphaflega að
Það hefur ’önvum verið svo. að knma við i Hull i heimleið frá
htirft t-efur cfi tal<a 't leigu skir meí»’"''-nd''.höfnum >n kemur bar
til að nnnr plutningum * hessum ekki ' hnns stnð fór hangað leigu-
tfma, en bá eykst miöe innflutn- skipið Anne Nybel og tekur
stykkjavöru og eitthvað af bílunt.
Hún mun væntanleg þangað í dag.
Leiguskip þetta er danskt og það
eru líka hin tvö, Anne Bögelund,
sem lestar i Kaupmannahöfn og
Gautaborg, Forra. sem lestar i
Hanaö Finnlandí cðaiieea pappír
og Ventspils í Eistlandi, stál og
járn.
RraraBÉMMHiKBMBiíteu&á ias
^gtiaii3KJ6iaiaeaasBi!maiTWi