Vísir - 16.04.1963, Blaðsíða 6
6
V1SIR . Þriðjudagur 16. aprll 1963.
Þeir sem fórust voru:
Þórhallur Ellertsson, 1. vél-
stjóri, Akureyri, 30 ára, lætur
eftir sig konu og tvö ung böm.
Hörður Ósvaldsson, háseti,
Akureyri, 34 ára, ókvæntur.
Kristján Stefánsson háseti, 42
ára, lætur eftir sig konu og 3
ung börn og 1 uppkomið bam
Mynd þessi var tekin i Keflavfkurhöfn, þegar Sigurkarfi kom i
höfn i Keflavik. Á þilfarinu er gúmmíbáturinn, sem sex menn af
Súlunni komust á og var þeim bjargað af honum.
Við breytum bílum í peninga
og peningum í bíla.
Komið - Skoðið - Seljið - Kaupið
Höfum kaupendur að nýjum og nýlegum
Evrópskum bílum t. d. Taunus, Ford
Anglia, VW, Opel, Volvo, einnig 6 manna
bílum t. d. Ford ’60 Opel Capitan ’60—61
og Benz ’61—’62.
Hringið í síma 23900 og 20788.
SÚLAN FEKK A SK HNUJ
0G SÖKK Á 3 MÍNUTUM
Fimm mcsnns nf áhöfn hennar fórust
\
Það slys varð síðast
af hinum miklu sjóslys-
um í storminum í páska-
vikunni, að vélskipið Súl
an frá Akureyri fórst
skyndilega út af Garð-
skaga og með henni
fimm menn af áhöfninni.
Sex af áhöfninni kom-
ust I gúmmíbát og var
bjargað af vélbátnum
Sigurkarfa frá Keflavík,
sem var þar nærstadd-
af fyrra hjónabandi.
Kristbjörn Jónsson, háseti,
Akureyri, 36 ára, ókvæntur.
Viðar Sveinsson, háseti, Ak-
ureyri, ókvæntur.
Súlan var eitt af þeim mörgu
skipum, sem hafði fengið mjög
góða síldveiði við Vestmanna-
eyjar aðfaranótt þriðjudagsins,
en þeir urðu að liggja í vari
fyrir suðurströnd Reykjaness
þegar stormurinn skall yfir á
þriðjudaginn. Er þeir höfðu leg-
ið þar £ einn sólarhring hafði
veðrið lægt nokkuð og ákváðu
þeir þá að reyna að sigla inn
á Faxaflóann.
Þeir voru með um 700 tunn-
ur af síld innanborðs, en mikil
ísing hafði safnazt á skipið í
þvl skyndilega frosti sem kom,
enda var þá 10 stiga frost. Mun
það hafa valdið þvf að þegar
þeir voru komnir út af Garð-
skaga og voru að beygja inn
á Flóann, skall hnútur á stjórn-
borðshlið skipsins og þá hvolfdi
skipinu allt I einu. Sex menn,
þeir sem björguðúst, komust í
gúmmlbát, en annar gúmmíbát-
ur fannst á hvolfi þarna
skammt frá og er ekki vitað
hvort hinir fimm höfðu komizt
I hann. Þeir sem af komust
vissu það slðast til þessara fé-
laga sinna, að þrír voru I lúk-
arnum, en tveir þeirra voru
komnir úr lúkarnum og aftur
að stýrishúsi.
Enginn tími vannst til að
senda neyðarskeyti út, enda
munu vart hafa liðið meira en
3 mínútur frá því hnúturinn
skall yfir og þar til skipið var
sokkið. Sjómennirnir sex urðu
að svamla um stund I sjónum
áður en gúmmíbáturinn blés sig
upp.
Annað síldveiðiskip, Sigur-
karfi frá Keflavik, var þarna
líka á leiðinni heim af síldar-
miðum við Suðurland. Allt I
einu sáu menn þaðan að neyðar
blysi var skotið upp og er þeir
nálguðust staðinn urðu þeir
varir við gúmmfbátana og þá
sem af komust I öðrum þeirra.
Það var heldur ömurlegt,
þegar Sigurkarfi lagðist að
bryggju I Keflavík um kl. átta
á miðvikudagskvöldið. Sigur-
karfi var þakinn ísingu á þil-
fari, rá og reiða, þar sem hann
kom utan úr rokinu. Mennirnir
sex sem af komust voru fámál-
ugir, er þeir stigu á land og
minntust félaga sinna, sem
höfðu farizt með svo svipleg-
um hætti.
Eftir þetta slys höfðu sextán
sjómenn farizt I hinu skyndi-
lega norðanáhlaupi, sem reið
yfir landið.
Tveir bílar ultu
Tvær bifreiðir lentu út af þjóð-
Ívegum I nágrenni Reykjavíkur á
páskadaginn. önnur þeirra stór-
skemmdist og ökumaður hennar
slasaðist illa á höfði.
Óhapp þetta vildi til um klukkan
2 eftir hádegið á sunnudaginn
skammt fyrir neðan skíðaskálann
I Hveradölum. Fólksbifreiðin R
1065 var á leið austur, en lenti ein-
hverra hluta vegna út af veginum,
fór heila veltu og staðnæmdist á
hjólunum. Þrír menn voru I bifreið-
inni og sakaði tvo þeirra ekki svo
lyjfað sé, en ökumaðurinn slasaðist
plla á‘ hofði. rf'ánn heitír Kjartan
Gústafsson, til heímiliá að Brim-
nesi. Hann var fluttur I slysavarð-
stofuna I sjúkrabifreið og þaðan
var hann síðar fluttur I sjúkrahús.
Bifreiðin er talin stórskemmd ef
ekki gerónýt.
Á 6. tímanum eftir hádegi I gær
var hringt til lögreglunnar ofan úr
Mosfellsdal og tilkynnt að bifreið
hafi farið út af veginum fyrir neðan
Hraðastaði og oltið. Þetta var Volks
wagenbifreið, R 14207, sem er frá
ibflaleigu I Reykjavík. 1 henni voru
tveir menn og var leigutakinn ölv-
aður, þegar lögreglan kom á vett-
vang, en hann taldi sig ekki hafa
verið við stýrið, þegar óhappið
skeði. Hvorugur mannanna slasað-
ist. Þeir voru fluttir til Reykjavfk-
ur og mál þeirra var f rannsókn,
þegar blaðið vissi síðast.
Á páskadag varð árekstur og
slys á Hringbraut gegnt Gamla
Garði. Þar hafði strætisvagn num-
ið staðar um hádegisleytið en á eft-
ir kom sendiferðabíll og ók aftan
á strætisvagninn.
ANNA
ANNA
Lykkjuföstu suumluusu netnylonsokkurnir
heitu AIIN A — Fóst víðu
HEILDSÖLUBIRGÐIR
Ísleiuk-Erlenda Verzlunnrfélngið h.f.
Tjamargötu 18 — Símar: 20400 og 15333
Þetta var harður árekstur og a.
m. k. sendiferðabíllinn var grátt
leikinn á eftir, allur klesstur að
framan og stórskemmdur. Fram-
rúða hans brotnaði og á glerjun-
um skarst krakki, sem sat við hlið
bílstjórans, illa f andliti. Aðrir en
þeir tveir voru ekki f bflnum og
voru báðir fluttir í slysavarðstof-
una. Enn fremur hafði drengur, sem
var f strætisvagninum, dottið við
höggið og kvartaði úndan eymslum
f baki. Hann var líka fluttur f slysa-
varðstofuna, en meiðsli hans voru
ekki talin mikil.
Tvö önnur umferðarslys urðu í
Reykjavík um páskahelgina. Hjól-
ríðandi drengur, 6 ára gamall, varð
fyrir bifreið á mótum Snekkjuvog-
ar og Nökkvavogar á föstudags-
kvöldið. Litlu munaði að þar færi
illa þvf að reiðhjólið lá undir bíln-
um þegar hann staðnæmdist, en
drengurinn kastaðist af því og
slapp við meiri háttar meiðsli. Hann
skrámaðist samt nokkuð á höfði
og var fluttur í slysavarðstofuna til
aðgerðar.
Hitt slysið varð á sunnudags-
kvöldið gegnt Laugavegi 178, þar
Framhald á bls. 4.
VW—’62 115 þús.
VW—’57 70 þús.
VW-rúgbrauð ’62 120 þús.
Opel Capitan ’60 180 þús.
Chevrolet ’55 100 þús.
Chevrolet ’57 100 þús.
Ford ’60 Galai 200 þús.
Skipti
Ennfremur hundruð ann-
arra bifreiða með ýmis-
konar greiðsluskilmálum.
SKUI.AGATA 55 — SIMI I5M*
.vO^°OLFUR S,C^ö
SELUR ■
Willys jeppi '55.
Saab Station ’67.
Opel Capitan ’56.
Citroen ’63, kr. 146.6 þús.
Óskráður.
Ford Consul 55.
Jeppar ’42—’46.
Ford St. Taunus ’55.
Buick St. ’52.
Austin A ’49.
Scoda Octavia ’61.
Scoda Octavia ’59.
Opel Caravan ’55.
Comet ’61.
Morris ’60.
Ford '58.
Opel Record ’59, vill skipta á
Ford Taunus.
Henry J. ’55, 2 dyra.
Moskvitsh '61.
Moskvitsh ’55.
Fiat 600 ’58, vill skipta á yngri
bíl.
Chevrolet ’55, mjög fallegur
6 cyl. beinskiptur.
Gjörið svo vel, skoðið bflana.
Simar 18085 og 19615.
SSI!