Vísir - 16.04.1963, Blaðsíða 8
8
V1SIR . Þriðjudagur 16. aprfl 1968.
VÍSIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði.
í lausasölu 4 kr. eint. - Sími 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vlsis. — Edda h.f.
Framkvæmdaáætlunin
Gerð hinnar nýju framkvæmdaáætlunar er eitt
merkilegasta sporið, sem stigið hefur verið í efna-
hagsmálum þjóðarinnar. Strax og ríkisstjóm Ólafs
Thors tók við völdum lýsti hún því yfir, að hún myndi
taka upp gerð þjóðhagsáætlana. Tilgangur þeirra er að
vera leiðarvísir banka og stjómvalda um markvissa
stefnu í efnahagsmálum þjóðarinnar. Sú áætlun, sem
nú hefur verið samin, gerir ýtarlega grein fyrir því,
hver þróun þjóðarbúskaparins geti orðið á næstu fjór-
um ámm ,hve mikið þjóðarfrámleiðslan geti vaxið á
þessu tímabili, hversu mikið neyzla landsmanna geti
aukizt og hversu miklu fjárfestingin geti numið.
Það er ómótmælanleg staðreynd að undirstaða
bættra lífskjara er ör vöxtur þjóðarframleiðslunnar.
Sú aukning hefur hins vegar ekki verið meiri hér á
landi en eins og hún er minnst hjá öðmm Evrópu-
löndum. Orsökin er sú, að í efnahagsmálum okkar
hefur ríkt jafnvægisleysi, halli á viðskiptum út á við
og verðbólga innanlands. Nú verður þjóðin að leggja
á það höfuðáherzlu að auka þjóðarframleiðsluna, en
það þýðir einnig að lækna verður þær meinsemdir,
sem hindra vöxt hennar. Sú læking hóf st þegar er nú-
verandi stjórn tók við völdum og er það staðfest með
rannsóknum Efnahagsstofnunarinnar og hinna norsku
hagfræðinga, sem unnu að samningu framkvæmda-
áætlunarinnar. Ríkisbúskapurinn er nú hallalaus út á
við og jafnvægi er að nást innanlands.
En vandamál verðbólgunnar er enn að mestu óleyst.
Það er höfuðverkefni næstu missera. 1 baráttunni við
það mein er mikilvægt að nákvæm áætlun um fjár-
festingu og neyzlu á næstu ámm hefur nú verið lögð
fram og við hana er unnt að styðjast, svo að þjóðin
geti séð það svart á hvítu, hve langt má ganga á því
sviði. En hið mikilvægasta er þó að næstu fjögur ár
sitji sú ríkisstjóm að völdum í landinu, sem fram-
kvæmi þá uppbyggingar- og jafnvægisstefnu, sem þeg-
ar hefur verið mörkuð.
Þungur tollur
Páskavikan hefur krafið hina fámennu íslenzku þjóð
um þungan toll. Tuttugu og fjögur mannslíf hafa tap-
azt þessa fáu daga, í lofti og á legi. Þau hörmulegu
slys minna á, hve oft er mjótt bilið milli lífs og dauða
hjá þjóð, sem sækir björg sína í skaut hins veðrasama
vetrarhafs. Og flugslysið mikla í Osló á páskadags-
morgun kom ekki síður sem reiðarslag, enda hefur
gæfan hingað til verið hinum íslenzku flugfélögum
hliðholl á utanlandsferðum þeirra. Vísir sendir öllum
aðstandendum og vinum þeirra sem létu llfið þessa
fáu vikudaga samúðarkveðjur.
Eina málið sem landhelgisbrjótar skilja til fulls, er sprengihvinur
fallbyssunnar. Hér sést fallbyssan um borð f Nominni.
JVorðmenn hafa smá saman
verið að feta sömu braut-
ina og íslendingar í stækkun
fiskveiðilandhelgi sinnar. Þeir
hafa þegar lýst yfir 12 mílna
landhelgi en síðan gert samn-
inga við þær þjóðir sem mest
hafa stundað sjó við Noregs-
strendur um nokkurn frest. Nú
eru í gildi reglur sem heimila
norskum togurum að veiða að
4 mílna mörkum. Þær þjóðir
sem hafa gert samning við
Norðmenn svo sem Bretar,
Þjóðverjar og Rússar mega
toga upp að 6 mflna mörkum og
loks koma svo aðrar þjóðir, sem
engan samning hafa og mega
ekki fara inn fyrir 12 mflna
mörkin. Innan skamms verða
allir erlendir togarar að fara út
fyrir 12 mflna mörkin og gera
Norðmenn sér vonir um að þar
með renni upp ný öld fyrir
sjávarútveg þeirra, en síðustu
árin hefur alvarlegur aflablest-
ur komið hart niður á norskum
fiskimönnum. Verður varla
dregið f efa að sú aflatregða
stafar að nokkru af ofveiði.
Camtímis þessu hafa Norð-
menn verið að efla land-
helgisgæzlu sfna. Þeir hafa að
vísu ekki farið ennþá inn á
þær brautir að nota flugvélar.
Á því sviði hefur íslenzka land-
helgisgæzlan haft forustuna, en
þeir hafa byggt á skömmum
Johan Nydske, skipherra
á Nominni.
tfma þrjú ný og glæsileg varð-
skip, sem eru nú þegar önnum
kafin við að gæta hinna nýju
fiskveiðimarka.
Eitt þessara skipa er miklu
stærst, einskonar flaggskip
flotans. Það heitir „Nornin“ og
er um 1200 tonn á stærð. Hin
tvö eru um 600 tonn á stærð
eða álíka og Þór og heita Fram
og Heimdal. Norska landhelgis-
gæzlan ræður og yfir fjölda
annarra varðskipa, en þau eru
þó heldur ófullkomin. Þrjú
þeirra eru gamlir hvalveiðibát-
ar og 15 lítil skip, fiskibátar
sem teknir hafa verið 1 notkun
við varðgæzlu.
Tilkoma hinna nýju varð-
skipa hefur haft mikla þýðingu
segja norskir fiskimenn og
skiptir þar mestu máli, hve
hraðskreið þau em, en Nomin
mun hafa allt upp undir 20
sjómflna hraða og minni skipin
um 15 sjómílna hraða. Fram
að þessu hafa norsku varðskip-
in verið svo hæggeng að það
hefur verið mjög algengt að
stórir erlendir togarar stingi
þau af. Nú er endir bundinn
á það og segja menn að stór
umskipti hafi orðið við þetta.
Fram af þessu hafi hinir út-
lendu togarar verið á veiðum
upp undir landssteinum, en nú
bregði svo við að þeim þyki
vissara að halda sig utan við
rétta Iínu.
millibilsástandinu sem núna
er, þegar segja má að þrjú
landhelgismörk séu f gildi er
landhelgisgæzlan all vandasöm,
þar sem fyrst verður að kanna
vel þjóðerni grunaðs togara, til
þess að vita hvar hann má
vera. Norsku togskipin eru að
vfsu flest auðþekkt þar sem
þau em miklu minni en útlendu
togaramir. Norðmennirnir mega
veiða upp að fjögurra mflna
mörkunum, en allmikið hefur
verið um tökur á norskum tog-
skipum, sem stafar e. L v. af
þvf að þau eru lakar útbúin
siglingatækjum, þau hafa t d.
fæst fengið sér radar.
Útlendu togararnir em hins
vegar margir nýtfzkuleg og full-
komin skip, búin öllum nýjustu
tækjum. Þeir era oft fljótir að
sjá varðskipin f radartækjum
sínum og bregða sér skjótlega
aftur út fyrir lfnuna, ef þeir
halda að varðskip séu að nálg-
ast.
rska varðskipið Norain er
glæsilegt skip, en nokkrar ■
Framhald á bls. 10.
y
' ' J J J J
ýijii'f ) •.», í ‘t'j'j-ji} j< í >-.<■<
• : < v • .’ t* ' " - - ■ • • • .■ ■ ■
B