Vísir - 16.04.1963, Síða 9
VlSIR . Þriðjudagur 16. apríl 1963.
9
Hún rýkur á
— sagðs Björn Pólsson um nýju flugvél-
/
inn er mun bæto sumgöngur dreifbýSisins
Björn stígur út úr vélinni.
Á páskadagskvöld kom
Björn Pálsson flugmað-
ur heim til Reykjavíkur
með 16 farþega flugvél,
sem hann hafði keypt í
Englandi af tegundinni
Twin Pioneer.
Mikill fjöldi manns,
sennilega yfir 300, hafði
safnazt saman á flug-
vellinum til að bjóða
hann velkominn, þeirra
á meðal flugmálaráð-
herra Ingólfur Jónsson,
sem var meðal þeirra
fyrstu, sem stigu um
borð í flugvélina til að
óska Bimi til hamingju
með hana.
STÓRIR VÆNGIR.
Flugvélin sem er mjög sér-
kennileg útlits, með stóra
vængi og þrefalt flatarmikið
stél, sást koma úr austurátt
yfir flugvöllinn og höfðu tvær
minni flugvélar Björns farið til
að taka á móti henni og fylgdu
henni í nokkrum hringjum
kringum flugvöllinn. Loks sett-
ist flugvélin á völlinn og ætlaði
fólk að hlaupa á móti henni,
en þá fór hún allt í einu af
stað aftur og sýndi áhorfend-
um nú þann furðulega hæfi-
leika sinn, hve stutta flugbraut
hún þarf, — það hjálpaði að
vísu til núi.d, að hún var létt
hlaðin, og góður mótvindur
var, en óhætt er að fullyrða, að
hún hafi tekið flugið eftir um
50 metra og hóf hún sig síðan
ákaflega bratt á loft.
14 STAÐIR
Vinir og vandamenn Bjöms
flykktust utan um hann, en síð-
an fékk fréttamaður Vísis stutt
samtal við hann. Hann skýrði
frá þvl, að hann byggist við
að geta hafið farþegaflug með
flugvélinni eftir um viku. Sagði
hann að flogið yrði til nokk-
urra staða, sem flugvélar Flug-
félags Islands gætu ekki lent á.
Þessir staðir koma helzt til
greina: Stykkishólmur, Hellis-
sandur, Búðardalur, Reykhólar,
Patreksfjörður, Þingeyri, ön-
undarfjörður, Bolungarvfk, Mel-
graseyri, Reykjanes við Isa-
fjarðardjúp, Gjögur, Hólmavík,
Blönduós og Vopnafjörður.
Ekki er enn afráðið, hvaða
staðir verða valdir, en Bjöm
mun taka upp reglubundið á-
ætlunarflug til þeirra og fljúga
einu sinni f viku til þeirra
flestra, tvisvar f viku til sumra.
Hann bjóst við að fargjaldið
yrði að vera nokkru hærra en
með Flugfélagsvélum.
Flugvélin er fallega blámáluð.
Hún hefur sem fyrr segir þá
eiginleika að geta hafið sig upp
á stuttu svæði, en í staðinn er
hún mjög hægfleyg, kemst
ekki nema um 150 mflur á
klst. Hún er fremur gamaldags
að útliti, hjólin eru ekki dregin
upp, en traustbyggð.
FYRIR LITLA FLUGVELLI
í samtalinu við Björn skýrði
hann frá því, að honum hefði
fyrst komið í hug að fá sér
slíka flugvél, þegar Flugfélag
íslands hætti við þá fyrirætlun
sína að fá sér litla flugvél til að
fljúga á litlu fugvellina, en
Douglas-flugvélar þess geta t.d.
aðeins lent á Isafirði af öllum
Vestfjörðum og hvergi á Snæ-
fellsnesi.
Þá óskuðu ýmsir þingmenn
og ráðherra eftir því, að Björn
gerði ráðstafanir ti að fá sér
einhverja slfka flugvél. Þar að
auki féll það vel saman við
annan rekstur hjá honum með
sjúkraflugvélarnar, þvf að við
þær verður hann að hafa fast-
ráðna flugmenn á háum launum
og kemur sér betur, að fá þeim
þá meiri verkefni, því að sjúkra
flugið eitt getur ekki borið
þann kostnað.
KOSTAR
65 ÞÚS. PUND NÝ
Fyrir nokkrum árum kvaðst
Björn hafa verið að velta fyrir
sér kaupum á slíkri flugvél og
komst hann þá að því að flug-
vélaverksmiðjan Scottish Avia-
tion í Prestvík framleiddi flug-
vélar af gerðinni Twin Pioneer,
sem lýst var sem miklum undra
tækjum, en þá kostuðu þær nýj-
ar um 65 þús. pund, sem var
alltof dýrt. En sfðan hefur tfm-
inn liðið og notaðar flugvélar
af þessari tegund eru nú komn-
ar á markaðinn.
AUGLÝSTAR NOTAÐAR
Fyrst kvaðst Björn hafa séð
auglýsingu f brezku blaði þar
sem flugvél af þessari tegund
var boðin til sölu í London á
23.700 pund. Fór hann út til
að athuga þessa vél. En á leið-
inni til Lundúna stanzaði hann
í Prestvfk. Þar komst hann að
því að verksmiðjurnar eru enn
að framleiða vélar af þessari
tegund, en höfðu einnig á bóð-
stólum gamiar vélar af þessari
tegund á 30—40 þús. pund.
Hann hélt nú áfram ferðinni
til London, en þá vildi svo til,
að hann sá í blaði á flugvell-
inum í Prestvik að fyrirtæki
eitt auglýsti slíkar flugvélar til
sölu á 12.500 pund. Fyrirtæki
þetta heitir Teegan Aviation.
Hafði hann samband við það
þegar til London kom og komst
þá að því að fyrirtæki þetta
hafði selt Persastjórn nokkrar
flugvélar og tekið upp f kaupin
þrjár flugvélar af tegundinni
Twin Pioneer og því var verðið
svo lágt.
Flugvélarnar voru enn austur
f Persíu, en eigandi fyrirtækis-
ins Mr. Teegan var að fljúga
einni þeirra að vestan og ætl-
aði að vera kominn til Túnis.
*
„ KAUP GERÐ f LOFTINU
Var nú ákveðið að fara á
móti eigandanum og hittu þeir
hann í Túnis. Þar kom í ljós,
að þessi flugvél hafði verið
einkaflugvél Persakeisara og
var útbúnaður í henni til að
setja í hana mjög glæsileg hús-
gögn, vínbar og hægindastóla,
en einnig hægt að koma fyrir
f henni 16 sætum.
Flaug Björn nú flugvélinni
frá Túnis til London ásamt eig-
andanum, en Lárus Óskarsson
kaupmaður var með í ferðinni
sem túlkur. Líkaði Birni strax
svo vel við flugvélina, að þarna
f loftinu milli Nissa og London
gerðu þeir út um kaupin. Var
verðið svo lágt, að Björn vildi
ekki prútta um það, en fékk
fyrirtækið í staðinn til að sjá
um betri innréttingu, setja 16
stoppaða stóla í hana, ný teppi
á gólfið o. s. frv.
REYNSLUFLUG
VIÐ LONDON
Björn kom svo heim meðan
fyrirtækið var að Iagfæra vélina.
en þann 27. marz s.l. fór hann
út ásamt Lárusi Óskarssyni til
að sækja flugvélina.
Flugvélin var þá á einkaflug-
velli, sem Peegan fyrirtækið á í
Essendon í Hertfordshire
skammt frá London Þegar flug-
vélin var tilbúin fór Björn í
nokkrar reynsluferðir á henni í
nágrenni Lundúna og lenti á
nokkrum öðrum flugvöllum, en
lendingar voru kostnaðarsamar,
kostuðu 6 pund í hvert skipti.
í þessu reynsluflugi kvaðst
Björn hafa fundið að flugvélin
skilaði fyllilega því sem sagt
var, sérstaklega hvað flugtaics-
eiginleika viðvíkur. — Hún rýk-
ur á loft á 50 mflna hraða, sagði
hann f samtali við fréttamann
Vfsis.
HEIMFERÐIN
Svo var haldið heim á leið og
bættist þá í hópinn enskur flug-
maður, Mr. Bright frá fyrir-
tækinu, sem seldi, en hann er
vanur flugmaður úr síðustu
heimsstyrjöld.
Vgr fyrst flogið til Prestvíkur,
en þar hafa verksmiðiurnar sem
smíða Twin Pioneer aðsetur. Var
vélin vigtuð þar, skoðuð og
þyngdarpunktar athugaðir. Engu
burfti að brevta, en barna tók
Björn nokkuð af nauðsynlegum
varahlutum.
Þeir í verksmiðjunni urðu
undrandi yfir því, hvað ég komst
að góðum kjörum. Sjálfir höfðu
þeir notaðar flugvélar af sömu
tegund til sölu, miklu verri vél-
ar, sem þeir vildu selja á 30—
40 þúsund pund. Ég hefði jafn-
vel getað grætt stórfé á að selja
hana aftur, sagði Björn í gamni.
i(i ' x
TÖF A ORKNEYJUM
í Prestvík vorum við í tvo
daga. Síðan flugum við á þriðju-
daginn f ljómandi veðri til
Stornoway í Orkneyjum. Ætluð-
um við að halda ferðinni áfram
til íslands, en veðurútlit var
slæmt svo af þvf varð ekki. Ég
hafði orðið var við svolitla olíu-
bilun og ákvað þvf að fljúga
aftur til Prestvfkur úr því veður-
útlit á íslandi var svo slæmt.
Sú ferð tók þó aðeins einn dag
og fékk ég gert við bilunina. Síð
an biðum við þrjá daga í Storno-
way meðan óveðrið geisaði
heima á íslandi. Þar er fremur
lítill en góður flugvöllur. Þar
var verið að steypa flugbrautir
með íslenzku sementi.
Það var ekki fyrr en á páska-
dag sem við komumst af stað.
Höfðum við allstrangan mótvind
sem setti okkur um 20 mílum
aftar á klst. og ákváðum við þvf
að lenda á flugvellinum f Vágum
í Færeyjum. Þar tókum við
benzín, sem gerði okkur síðan
kleift að fliúga f einum áfanga
til Reykjavíkur.
Koma þessarar nýju flugvélar
Björns Pálssonar hefur mikla
þýðingu fyrir dreifbýlið. Nú er
svo komið að fólk sættir sig
ekki við annað en að hafa flug-
samgöngur og íbúarnir í mörg-
um byggðarlögum geta ekki beð
ið eftir þvf að fullkomnir, stór-
ir flugvellir séu gerðir þar. f
þeim byggðarlögum mun þessi
flugvél leysa úr brýnni þörf.
☆
Mikill mannfjöldi var saman kominn að fagna Bimi og hinni nýju flugvél.