Vísir - 16.04.1963, Qupperneq 10
/0
VI S I R . Þriðjudagur 16. apríl 1963.
GERIÐ BETRI EAUP EF ÞIÐ GETiÐ
¥REDESTEIN HOLLENZKIHJÓLBARÐINN
Farortækin eru margvísleg, en ÚTSÖLUSTAÐIR: (jé/Srct'j UMBOÐIÐ
VREDESTEIN hjólbarðarnir KR. KRISTJÁNSSON H.F.
hæfa hvaða farartæki sem er SUÐURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 35300
Gerið betri kaup ef þið getið BÍLASALAN AKUREYRI • SÍMI 1749
sjr'sXle siððs ii3
Bezta og hentugasta
fermingargjöfin fæst í T Ý L I.
Vitið þér?
Höfum meira en 20
gerðir af Agfa-mynda
vélum fyrirliggjandi.
Verð frá kr. 270,00.
— að yfir 200 fyrirtæki
framleiða myndavélar
— að AFGA á 28% af
heimsframleiðslunni.
Þér vitið
að það er vegna gæða
og útlits að Agfa-vél-
arnar skipa þennan sess.
Gleraugna- og ljósmyndaverzlun
TÝLI H.F.
Austurstræti 20.
Að uten —■
ramhcld af bls 8
-ieilur hafa staðið í Noregi um
tmíði þess. Þykir mörgum
ikipið of stórt, Það sé óþarfi
og óhóf að byggja 1200 tonna
varðskip. Samt var þessi tilraun
gerð og er ætlunin að fylgjast
vandlega með rekstri skipsins í
svo sem tvö ár og bera það
saman við rekstur minni skip-
anna. Skipherrann heitir Johan
Nydske og hefur starfað í ára-
tugi hjá landhelgisgæzlunni.
Hann er nú ákveðið á þeirri
skoðun, að Nornin sé sízt of
stór, en vildi gjarnan að hún
væri ennþá hraðskreiðari. Bezt
væri að varðskipin hefðu 22
sjómíina hraða, segir hann, en
viðurkennir þó um leið, að svo
mikill ganghraði yrði allkostn-
aðarsamur í rekstri skipanna.
]V[ú fyrir nokkru fór Nornin i
eftirlitsferð meðfram allri
strönd Noregs. Það kom í ljós
í þeirri ferð að um 150 erlendir
togarar voru að veiðum með-
fram ströndinni. Á sunnanverð-
um miðunum út af Andenes i
Þrændalögum voru enskir tog-
arar í meirihluta. Er eftirtakan-
legt hve brezki togaraflotinn
tekur miklum umbreytingum.
Þar er mikið um nýja, stóra og
glæsilega togara, en gömlu ryð-
kláfunum fækkar. Samfara
þessu hefur andinn um borð í
þeim breytzt. Það er alkunna
að mikið hefur verið um ölvun
á brezkum togurum, m. a. borið
talsvert á henni meðal skip-
stjóranna. Nú er þetta mikið
að breytast segir Nydske skip-
herra, nokkuð verður að vísu
vart enn við ölvun meðal há-
seta, en skipstjórarnir á þessu
stóru glæsilegu skipum eru
orðnir bindindjssamari og aginn
meiri. Sunnan til var einnig
mikið af þýzkum togurum,
slæðingur af frönskum og jafn-
vel italskir togarar.
þegar kom svo norður á
Finnmörk fóru rússneskir
togarar að koma í Ijós og þeg-
ar nálgaðist rússnesku landa-
færin urðu þeir í miklum meiri-
hluta.
Rússarnir veiða í flotum. Þar
mætti varðskipið risastóru
rússnesku móðurskipi, líklega
um 6 þúsund tonn og skammt
frá því var hópur 13 rússneskra
togara. Það var sundurleitur
hópur. í honum voru afgamlir
togarar með reykháfa næstum
eins háa og siglutrén, en þar
voru einnig nýtízkulegir mótor
togarar, en eitt var sameigin-
Iegt þeim öllum. Þeir voru ryð-
fallnir og illa útlítandi. Á þá
virtist ekki hafa komið málning
síðan þeir voru smíðaðir.
Veiðilag Rússanna var t. d.
mjög ólíkt veiðilagi Breta.
Brezku skipstjórarnir eru hinir
mestu einstaklingshyggjumenn,
vilja helzt vera hver út af fyrir
sig og Ieita uppi eigin mið. En
rússnesku togararnir þrettán
toguðu allir f einum skipulögð-
um hóp.
TVomin stóð sig vel í þessum
^ leiðangri. Hún hreppti oft
Rýmingarsala í Efstasundi
Seldar verða vefnaðarvörur, fatnaður, ýmsar smávörur
ieikföng, skartgripir, búsáhöld o. m. fl.
Verzlunin hættir.
VERZLUNIN EFSTASUNDI 11 . Sími 36695.
illviðri og þungan sjó, en reynd-
ist frábærlega gott sjóskip.
Undir lokin kvartaði Nydske
skipherra þó yfir tveimur göll-
um á skipinu. Sá fyrri var að
Nornin væri ekki styrkt fyrir
fyrir íssiglingu. Það gerir það
að verkum, að við getum ekki
farið selveiðibátum til aðstoðar
í ísnum við Grænland. Hinn
gallinn var sá að á skipið vant-
ar sérstök dráttartæki. Þetta
verður að lagfæra og hafa í
huga við smíði varðskipa í
framtíðinni, því að hjálparstarf
hlýtur að verða þýðingarmikill
þáttur í hlutverki þeirra.
íþróttir -
Framhald af bls. 7.
Flokkasvig.
1) Sveit ísfirðinga, 2) Sveit
Akureyringa, 3) Sveit Siglfirð-
inga, en sveit Ólafsfirðinga varð
að hætta.
í Alpatvíkeppni urðu meist-
arar Jóhann Vilbergsson og
Kristín Þorgeirsdóttir, bæði frá
Siglufirði.
Á ANNAN í PÁSKUM
Þá átti að keppa í tveimur
greinum, skíðastökki og 30 km
göngu. Var nú komið allgott veð
ur með sólskini en hins vegar
var svo hvasst að fella varð nið-
ur skíðastökkið.
Þó mun ekki ætlunin að fella
það algerlega niður, heldur hafa
Siglfirðingar sótt um Ieyfi til
Skíðasambandsins að mega
halda það einhvem næstu daga,
þó að keppendur verði þá ein-
göngu frá Siglufirði.
30 KM GANGA
Hún Varð síðasta grein móts-
ins. Lagt vár af stað frá Iþrótta-
vélli Siglufjarðar og gengið um
götur bæjarins og suður fyrir
bæinn. Var brautin 10 km löng
og skyldi gengið þrjá hringi. —
Keppendurnir lögðu af stað með
nokkru millibili og var fyrst beð
ið góða stund eftir að þeir kæmu
í Ijós úr fyrsta hringnum.
Þá þegar varð það ljóst, að
Birgir Þorvaldsson hinn , mikli
göngugarpur Siglfirðinga hafði
bezta tíma eða 39 mín 22 sek,
en annar Siglfirðingurinn Sveinn
Sveinsson hafði tímann 39.50.
Eftir aðra umferð var Birgir
svo kominn fram úr öllum keppi
nautum sínum og orðinn fremst-
ur í röðinni. Tími hans eftir
tvær umferðir var 78,39 svo
hann hefur haldið nokkuð jöfn-
um hraða.
Hann varð líka fyrstur í mark
og íslandsmeistari. Fór hann 30
kflómetrana á timanum 1 klst
59 mín 27 sek. 2) Sveinn Sveins-
- son Sigl. 2:05,27, 3) Guðmund-
ur Sveinsson, Sigl, 2:06,45, 4)
Gunnar Pétursson 2:07,55, 5)
Sigurður Sigurðsson, ísafirði,
2:12,06.
SIGLFIRÐINGUM
BER ÞAKKIR
Þar með var íslandsmótinu
lokið. Það mátti jafnvel heita
kraftaverk að takast skyldi að
ljúka því svo að aðeins einni
grein var sleppt, því að svo var
veðrið slæmt, mikinn hluta móts
ins. Var keppnin vissulega erfið
fyrir íþróttamennina, sem oft
þurftu að sækja móti hríðinni,
en þeir stóðu sig eins og hfetjur,
studdir af þeim almenna áhuga
fyrir skiðaíþróttinni, sem ríkir
á Siglufirði. /
Sjálfir stóðu Siglfirðingar sig
bezt allra og er það einsdæmi
að keppendur frá einum og sama
bæ hreppi alla f-'rndsmeistara-
titlana. Það eL '',’;r skildu
eftir öðrum v? '-eppni í
svigi.
Hann Mickey litli Rooney
hefur nú orðið að gera þrota-
yfirlýsingu fyrir réttinum í
Los Angeles.
Eignir sínar gaf hann upp
að væru vesælir 500 doHfcrar
— og hann bætti við og uid-
varpaði:
Mickey Rooney
— Það eru konur og hestar
sern hafa féflett mig.
— Það er auðvelt að athuga
viðskiptl hans og kvennanna:
Rooney litli verður að borga
fjórum fyrrverandi eiginkon-
um 10.000 dollara á mánuði,
hverri, — er. sú fimmta, Ava
Gardner, lýsir sem björt
stjama á himinhvolfinu. Hún
krefst ekki eyris.
En það er dálítið erfiðara
að gera upp reikningana við
hestana. Óheppni Rooneys í
hestaveðmálum hefur beinlínis
verið yfirnáttúrleg. Þess vegna
segja menn f Hollywood:
— Við skulum láta Mickey
veðja einum dollar á heimsins
bezta veðhlaupahest — og þá
er áreiðanlegt að þá kemur
hann síðastur í mark.
'k
Kvikmyndaleikkonan fagra,
Dawn Addams, hefur sætzt
við eiginmann sinn, ítalska
furstann Vittorio Massimo —
en þó aðeins ur fjarlægð.
Dawn dvelst í London en
furstinn í Róm. Gjafimar, sem
þau senda hvort öðru, eru eins
dæmi meðal kvikmyndafólks
og mættu fleiri taka þau til
fyrirmyndar í þeim efnum —
Dawn Addams
Vittorio sendi flugleiðis frá
Róm til London ekta ítalskan
spaghettirétt og til baka fékk
hann hitabrúsa og í honum
var „nice cup of tea“, tebolli,
lagcður sarnkvæmt ströngustu
reglum enskrar matreiðslu.
Ástin — finnur upp á öllu.
★
Um þessar mundir á ein
frægasta herrafataverzlun í
New Vork 100 ára afmæli. Og
verzlunin er „The Fat Man’s
Store“.
í heila öld hefur maður, sem
vegur minna en 95 kiló, aldrei
fengið afgreiðslu í verzluninni
— og yfir dyrum verzlunar-
innar er fallegt skilti og á þvi
stendur:
„Ef allir menn væru feitir,
yrði aldrei stríð“.