Vísir - 16.04.1963, Side 16
Veit ekki hvort
Snjó-
koma
áfram
Vlö suðurströndina var i morg I
un austan hvassviðri og mikil |
snjókoma, en hiti um frostmark. |
Á Vestfjörðum var veður all-
hvasst af norðaustri með 5 stiga 1
frosti og dðlítilli snjókomu. Á |
Norðurlandi var yfirleitt hæg |
austanátt enn sem komið var,
en víðast hvar snjókoma, sums
staðar mikii, og 6—8 stiga frost. I
Jón Eyþórsson veðurfræðing-1
ur sagði i viðtali við blaðið, að ,
ekki væri í svipinn útlit fyrir
miklar veðurbreytingar til bóta, I
það væri orðið svo kalt fyrir |
sunnan land, að jafnvel þótt veð ,
uráttin væri austlæg og suð-
austlæg, myndi hiti komast i'
hæsta lagi upp undir frostmark |
syðst á Iandinu siðdegis i dag.
Lézt af
hjartaslagi
1 óveðrinu s.l. miðvikudagskvöld
barst hjálparbeiðni frá danska flutn
ingaskipinu „Elly Danielsen“, sem
lá uppi Í.Kollafirði vegna þess að
skipstjórinn mundi hafa fengið slag.
Hjálparbeiðnin barst til lögregl-
unnar laust fyrir kl» 8 um kvöldið
í gegnum loftskeytastöðina í Gufu-
nesi. Veður var þá svo hvasst að
skipverjar treystust ekki til að fara
í land, en óskuðu eftir því að lækn-
ir yrði sendur um borð ef þess
væru nokkur tök.
Aðstoðarlæknir borgarlæknis fór
við svo búið upp I Kollafjörð og
um borð í „Elly Danielsen", en þeg
ar þangað kom var skipstjórinn lát-
inn. Var lík hans flutt til Reykja-
víkur þá strax um kvöldið.
veitt meira á nýja skipið
sagði Eggert Gíslason er hann kom heim með Sigurpál
Á laugardaginn fyrir
páska sigldi Eggert
Gíslason í höfn í Sand-
gerði hinu nýja skipi, er
Guðmundur Jónsson á
Rafnkelsstöðum á. Var
fjöldi fólks saman kom-
inn á bryggjunni til að
taka á móti skipinu. —
Fréttamaður Vísis átti
stutt samtal við Eggert
um nýja skipið og spurði
hann m. a. hvort hann
byggist.við að geta orð-
ið aflakóngur áfram á
því, eins og á Víði II.
Eggert vildi nú helzt ekki
svara slíkri spurningu. En þó
mátti heyra á honum, að hann
var nokkuð efablandinn á það,
að hann myndi afla meira á
þettá nýja skip en sinn góða
Víði II. Víðir er mjög lipur,
sagði hann, og það hefur geysi-
lega þýðingu á veiðum, þegar
veitt er með asdic og hring-
nót. Sigurpáll er allmiklu
stærra skip, hann er 204 lestir
móti 150 lestum Víðis. Og svo
tekur það tíma að venjast nýju
skipi, sagði Eggert, aiveg eins
og það tekur tíma að venjast
nýjum bíl.
Þetta nýja skip er smíðað I
vélaverkstæðinu í Marstrand,
sem er eyja við vesturströnd
Svíþjóðar. Því var hleypt af
stokkunum I nóvember, en síð-
asta 2 y2 mánuð hefur Eggert
dvalizt þar ytra og haft eftirlit
með útbúnaði skipsins. Síðustu
dagana var farið í reynslusigl-
ingar á því. Skipið er útbúið
öllum sömu veiðitækjum og
önnur fiskiskip, svo sem kraft-
blökk og sjálfleitandi asdic,
dýptarmæli, miðunarstöð og
radar.
I heimsiglingunni voru 9
menn á skipinu, en með því
verður öll sama áhöfnin og var
með Eggerti á Víði II., nema
að Víðir Sveinsson stýrimaður
hefur tekið við skipstjórn á
Víði II., en Ásmundur Böðvars-
son úr Garði verður stýrimaður
á Sigurpáli.
Lagt var af stað frá Mar-
strand aðfaranótt þriðjudags.
Gekk heimsiglingin að óskum,
en þeir fengu fremur slæmt
veður á skírdag er þeir voru
fyrir sunnan Færeyjar. Þeir
höfðu samband heim daglega
í heimsiglingunni. Eggert skip-
stjóri ráðgerir að fara í fyrstu
veiðiferðina eftir nokkra daga.
Olíuskip strandar / SKERJAFIRÐI
Olíuskipið British Sports
tnan, 11 þúsund brúttólest
ir, gert út af BP í London,
strandaði í Skerjafirði um
níuleytið s.l. fimmtudags-
morgun, nýlagt frá olíu-
bryggju Skeljungs. Var
skipið að snúa sér þegar
það lenti upp á sandeyri
hinum megin í firðinum,
Álftanesmegin.
Skipið náðist út aftur á föstu-
dagskvöld, um kl. 12 á miðnætti,
tveim tímum fyrir flóð. Hafnsögu-
báturinn Magni aðstoðaði við að
losa skipið. Ekki kom leki að skip-
inu, og eru skemmdir taldar eng-
ar.
Sjópróf voru haldin á laugardag.
Óljóst er um raunverulega ástæðu
þess að skipið strandaði. En hrið-
arveður skall á um leið og skipið
fór frá olíubryggjunni. Er hugsan-
legt að ekki hafi séð til merkja.
Þarna er fremur þröngt svigrúm
fyrir skip að athafna sig.
Ekkert var reynt til að losa skip-
ið fyrr en á föstudagskvöld, þegar
veður hafði lægt. Fram að því stóð
all hvass vindur á hlið skipsins.
Ekki kom annað til greina en að
hafnsögubáturinn Magni aðstoðaði
við losun skipsins, þar sem ekki
var auðvelt að hafa stjórn á þvl
með öðru móti. Skipinu var siglt
upp I Kollafjörð og átti að fara
þaðan I gær.
British Sportsman var smíðað
1952, gert út af BP I London, eins
og fyrr segir. Var skipið að losa
olíu til Olíuverzlunar íslands og
Olíufélagsins Skeljungs. Umboðs-
maður skipsins er Gunnar Guðjóns-
son, skipamiðlari. Skipið hafði
komið hingað einu sinni áður.
Henti sér út
um glugga
Árla dags föstudaginn langa eða
rétt fyrir klukkan 8, barst lögregl-
unni tilkynning um að maður hafi
stokkið út um glugga á Farsóttar-
húsinu og slasazt.
Þarna reyndist um geðbilaðan
mann að ræða, sem hafði fleygt
sér út um glugga á þriðju hæð Far-
sóttarhússins við Þingholtsstræti.
Hann var þegar fluttur I slysavarð-
stofuna og kom 1 ljós að hann var
brotinn á vinstri handlegg og hægri
hæl, auk þess sem hann skrámað-
ist á andlit'