Vísir - 20.06.1963, Blaðsíða 3
V í S I R . Fimmtudagur 20. juiií 1963,
3
Myndsjáin birtir £ dag nokkr-
ar myndir frá sumarfögrum stað
við Breiðafjörð, Stykkishólmi.
Vorið vestur við Breiðaf jörð var
að þessu sinni heldur kalt, en
hefur þó verið verra áður, t. d.
vorið 1949, þegar snjór var í
Stykkishólmi fram í júní, og
komust menn þá f heyþrot.
Eggjatekja í eyjunum er nú
byrjuð og hefur hún verið minni
en í fyrra. Stafar þetta ef til vill
að miklu leyti af kuldatið. Eftir
mestu kuldahrfðina um daginn
fundust nokkur egg, en þau
voru unguð, enda hefur fuglinn
þá setið þétt á þeim.
Sumarhótei verður starfrækt
hér í sumar eins og að undan-
fömu. Verður það staðsett í
heimavist miðskólans. — Mun
starfræksla hefjast eins fljótt i
júnf og unnt verður. Hótelið
var mikið sótt í fyrra og þótti
fyrsta flokks og er ekki að efa
að ferðamenn lcunna að meta
þessa þjónustu í Stykkishólmi.
-K
Áætlunarbifreiðir Bifreiða-
stöðvar Stykkishólms hafa í ali-
an vetur haldið áætlun, enda
veturinn mildur, og þannig, að
engin ferð féli niður, en þær
voru tvisvar í viku til og frá
Reykjavik. Nú um mánaðamót-
in breytast ferðirnar þannig að
þær verða þrjár. Frá Reykjavfk
mánudaga, miðvikudaga og laug
ardaga, en frá Stykkishólmi
sunnudaga, þriðjudaga og föstu
daga. Þá verður f viku hverri
aukaferð frá Reykjavfk föstu-
daga kl. 7 e. h. og Stykkishólmi
mánudaga kl. 1 e. h.
Björn Pálsson mun einnig
innan skamms byrja áætlunar-
ferðir hingað, svo ekki þarf þá
undan samgöngum að kvarta.
~K
Nýlega var stofnað hér félag
til kaupa og reksturs fiskibáts
og heitir það Otur h.f., og er
Ólafur Guðmundsson sveitar-
stjóri formaður þess. Hefur fé-
lagið samið um smíði á nýjum
bát, sem því mun afhentur fyrir
áramót. Skipstjóri á bátnum
verður Ásberg Lárentínusson.
Sjúkrahúsið í Stykkishólmi
starfrækir eins og undanfarin ár
barnaheimili í sumar. Aðsókn að
þessu heimili hefur verið mikil
og strax fyrir áramót hafa öll
pláss verið upppöntuð. Hefur
þetta heimili ágætasta orð á
sér, enda valið fólk, sem annast
það.
★
Sjúkrahúsið, sem kaþólskir starfrækja.