Vísir - 20.06.1963, Side 4
4
VÍSIR . Fimmtudagur 20. júní 1963.
ár vinnu aí kvöldi“
Á stúdentsprófi við Mennta-
skólann í Reykjavík í ár hlaut
hæstu einkunn Baldur Her-
mannsson, ág. eink 9,24. Baldur
var utanskólanemandi, og er
þetta því sérlega ve). af sér vik-
ið, enda fór rektor við skóla-
uppsögnina mjög lofsamlegum
orðum um frammistöðu Bald-
urs.
Er við náðum snöggvast tali
af Baldri, tók hann það skýrt
fram að hann hefði -ekkert að
segja, sem fólk hefði ekki heyrt
áður og að hann hefði ekki upp
lifað neitt, sem aðrir hefðu ekki
upplifað.
En hann slapp ekki með þetta,
varð að minnsta kosti að segja
hvaðan hann væri ættaður, því
að slíkt vilja allir sannir íslend-
ingar fá að vita.
,,Ég er kominn af austfirzk-
um bændum í föðurætt og af
vestfirzkum sjómönnum í móð-
urætt“, sagði Baldur, „svo að
ég veit ekki hvernig það gæti
betra verið. Faðir minn var
Hermann heitinn Gunnarsson
prestur og móðir mín er Jó-
hanna Gunnarsdóttir“.
„Hvernig stóð á því að þú
tókst próf utanskóla? Saztu
aldrei í menntaskóla?"
„Það er margflókin saga. Ég
byrjaði í 3. bekk Menntaskólans
í Reykjavík og var þar við góð-
an orðstlr einn vetur og endaði'
með því að falla. Las 3. bekk
utanskóla næsta vetur og settist
í 4. bekk á Laugarvatni. Þar var
ég tvo vetur og í haust sem leið
settist ég í 6. bekk í Reykjavík.
Þetta má þó alls ekki taka svo
að mér hafi ekki líkað vel á
Laugarvatni, því að þar þótti
mér sérstaklega gott að vera og
þykir mér mjög vænt um skól-
ann. Skólameistari er að mínu
áliti mesti skólamaður á Islandi
í dag. Það voru aðrar ástæður
fyrir því að ég fór til Reykja-
víkur“
„Hve léngi saztu svo í
Menntaskólanum í Reykjavík?"
„Ég var þar í tvo mánuði, en
mér fannst tímarnir nýtast svo
illa, að ég nennti ekki að standa
í þessu og sagði mig úr skðla.
Þessum 5 tímum, sem kennt var
daglega, var betur varið með
því að sofa á sitt græna eyra.
En það var alls ekki kennar-
anna sjálfra sök hve illa tím-
arnir nýttust. Kennararnir eru
flestir ágætismenn og vel að sér
á sínum sviðum, en námsefnið,
í Menntaskólanum í Reykjavik
frámunalega lélegt í alla staði
og stólar og borð slæm. I haust
ríkti hreint styrjaldarástand,
bekkir börðust um stóla.
Meðan ég sat í skólanum var
ég í 6. bekk Y og þar voru
mestu ágætisnáungar, sem ég
hef kynnzt í lengri tíma og þótt
ég læsi utanskóla, leit ég á mig
sem Y-bekking“.
„Hvernig fannst þér að „koma
upp“ sem utanskólamaður?"
„Mér hafði verið sagt að
kennarar væru oft næsta
svívirðilegir gagnvart utanskóla
nemendum, en ég kynntist
öðru, Þeir voru mér með af- ^
brigðum hjálpsamir og í allaj
staði sanngjarnir. Ég hef enga
trú á að þeir mismuni nemend-
um“.
„Hvað hyggstu nú fyrir?“
„Ég ætla að leggja stund á
segir dúxinn BaBdur HermannssoEr
sem fara á yfir á þeim 6 mán-
uðum sem kennsla stendur, er
allt of mikið, þannig að kenn-
ararnir verða að fara yfir það
á hundavaði, hafa ekki tíma til
að gera því góð skil. I öðru lagi
— og þar er komið inn á kjara-
mál kennara — verða kennar-
arnir að kenna svb miklum
fjölda nemenda, að þeir geta
ekki sinnt þeim sem skyldi og
í lok kennslu eru þeir orðnir
dauðuppgefnir. Svo er húsnæðið
Rannsóknir Krabba
meinsfélagsins
efna- og eðlisfræði og taka líf-
efnafræði sem sérgrein. Þetta er
nú samt ekki allt ákveðið ennþá,
þvi að ég á eftir að ráðgast við
menn, sem vit hafa á málun-
um“.
„Voru eðlis- og efnafræði þá
ekki þín eftirlætisfög í skóla?"
„Jú, ég hafði mestar mætur,,;'
á eðlisfræði, efnafræði ag stærð •
fræði, og frá því að ég hóf
menntaskóianám, hef ég ætlað
mér að leggja stund á lífefna-
fræði. í menntaskóla gat ég þvi
miður ekki sinnt stærðfræðinni
eins og ég hefði viljað. Það fór
of mikill tími í önnur fög, t. d.
íslenzku — og þarna er komið
að einu>i galla skólakerfisins,
Baldur Hermannsson.
þeim, að námsgreinarnar eru
allt of margar“.
„Hvað ætlarðu að gera í sum-
ar?“
„Ég veit það ekki ennþá, geri
iráð fyrir að fara norður á plan.
Ég þefði helzt viljað fara á sjó
eins og í fyrra, þá reri ég á
snurvoðarbát frá Vestmanna-
eyjum, en ég geri ekki ráð fyrir
að nokkur skipstjóri vilji ráða
mig fyrir skamman tíma, þvi að
fari ég til náms til Noregs, eins
og ég hef helzt hugsað um, verð
ég að fara utan í ágúst. Á
landi vildi ég helzt vera í Vest-
mannaeyjum, því að hvergi á
íslandi er eins dásamlegt og
þar“.
„Nú tilheyrir að spyrja ný-
stúdenta um líðan þeirra og til-
finnirigar að lokínni þessari þol-
raun — hvað segir þú af þér?“
„Mér líður alveg eins og vana
lega, get ekki sagt að ég sé i
sjöunda himni. Ég lít ekki á
stúdentspróf sem neitt takmark,
það er aðeins einn áfangi. Nú
er það léttasta búið, það, sem
eftir er, er stritið. Þetta er lík-
ast því að koma heim úr vinnu
að kvöldi".
Krabbameinsfélag íslands hef
ur nú keypt alla húseignina Suð
urgötu 22 og hefur þannig rætzt
úr húsnæðisvandræðum þess.
Efri hæð hússins er notuð fyrir
magakrabbameinsrannsóknir er
hófust í fyrra með styrk frá Nat
ional Institute of Health í
Washington. Við þær rannsókn-
ir vinna nú 7 manns.
Neðri hæð hússis er fyrir dag
legan skrifstofurekstur, en kjall
arinn er ætlaður fyrir leitarstöð
og fjöldarannsóknir í sambandi
við krabbamein í leghálsi, sem
félagið hefur ákveðið að hefja,
helzt á þessu ári. Er hugrriyndin
að rannsókn þessi nái til allra
kvenna á aldrinum 25—60 ára.
Þessar upplýsingar komu fram
í ræðu sem próf. Níels Dungal
flutti á aðalfundi Krabbameins-
félagsins, sem nýlega var hald-
inn. Þar minntist hann einnig
á það, að félagið hefði ákveðið
að stórauka fræðslu í barna- og
unglingaskólum um þá hættu,
sem stafar af sígarettureyking-
um.
Á síðasta þingi samþykkti Al-
þingi, að skattleggja sígarettur
Framh á 10. síðu.
30 glæsilegir R ambler
bílar komnir til landsins
Nýhafinn er innflutningur á
bifreið sem nefnist Rambler
Classic og hafa nú þegar verið
fluttar til landsins 30 bifreiðir.
Þessi nýja tegund hefur vakið
mikla athygli hér, enda er um
að ræða bifreið sem farið hefur
sigurför erlendis.
Eins og flestum er kunnugt
eru Rambler-verksmiðjurnar
Hinn nýi Rambler Classic.
bandarískar, en samsetning bif
reiðanna, sem hingað koma, fer
fram í Belgíu og er talin mjög
vönduð. Af þeim bifreiðum sem
hingað hafa komið af 1963 ár-
gerðinni hafa kaupendur þó yf-
irleitt kvartað yfir því að skott-
lok hafi ekki reynzt nægilega
rykþétt og rúður á nokkrum
fyrstu bifreiðum ekki nógu þétt
ar. Aðalframleiðsluverkfræðing-
ur verksmiðjanna í Belgiu hef-
ur þvi dvalizt hér á landi und-
anfarna daga til þess að ráða
bót á þessum göllum á þeim
bifreiðum sem hér voru til stað
ar, svo og að athuga allar að-
stæður með það fyrir augum að
tryggja að hver einastá bifreið
sem flutt er frá Belgíu, sé full-
komlega ryk- og vatnsþétt.
Á fundi sem Jón Loftsson hf,;
hélt með fréttamönnum fyrir
stuttu var verkfræðingurinn við
staddur, ásamt Mr. Max E.
Brand, sem hefur aðsetur í
Belgíu og ferðast á milli um-
boðanna til þess að líta eftir
verkstæðis- og varahlutaþjón-
ustu.
Rambler bifreiðirnar eru nú
í fyrsta sæti hvað magn og ann
að snertir í útflutningi bifreiða
frá Bandaríkjunum. Auk þess er
Rambler söluhæsta bifreiðin i
Suður-Ameríku og hefur verið
í þriðja sæti hvað sölu snertir
innanlands i Bandaríkjunum.
Rambler Classic er meðal
kraftmestu amerísku bifreiða á
markaðnum af 6 cylindra gerð
með 38 hestafla alumínium
blokk og gefa verksmiðjurnar
upp 11-12 lítra eyðslu á 100
km.
Rambler bifreiðin af Classic-
gerð var valin „bifreið ársins"
1963 af Motor Trend Magazine
USA. Verð á bifreiðinni til al-
mennings er um 270 þús., en
verð á samskonar bifreið ef
hún væri flutt frá Bandaríkj-
unum 20-25 þús. kr hærra vegna
þrefalt hærri flutningskostnað-
ar. Innifalið í verðinu er allt
sem í einni bifreið þarf að vera
nema útvarp, sjálfskipting og
vökvastýri, en þessa aukahluti
þarf að panta með nokkrum fyr-
irvara. Loks má geta þess, að
bifreiðin er afgreidd með styrkt-
um gormum og „dempurum".