Vísir - 27.08.1963, Blaðsíða 15

Vísir - 27.08.1963, Blaðsíða 15
75 V í SIR . Þriðjudagur 27. ágúpt 1963. B MMi—!■ Peggy Gaddis: Kvenlæknirinn — Já, ungfrú læknir, tautaði hann titrandi röddu — afsakið að ég stoppa yður, en við í vanda, miklum vanda. — Hvað er það, Seth frændi? Gigt í bakinu, stirður í knjáliðum? — Þú hefur þó ekki verið að plægja eða erfiða við annað, sem maður á þínum aldri þolir ekki? Meredith hafði gaman af að stríða honum dálítið, því að karl- inn var býsna drjúgur yfir að stunda enn búskap, en hann hafði engan sér til aðstoðar, nema dálítið hjáraenulegan ungan sonarson sinn, enn ekki á þeim aldri, að hann hefði verið kvaddur í herinn. Og oft lét Seth frændi skína í, að hérna áður fyrr hefði hann haft krafta í kögglum. En Meredith sá fljótt, að eitthvað meira en lítið var að. — Nei, ungfrú læknir, ekkert að mér, en við í vanda — miklum vanda — og okkur verður kennt um — blökkufólkinu alltaf kennt um. — Segðu mér þá allt af létta og umbúðalaust, Seth frædi, sagði hún. Þú veizt að þú getur treyst mér. Hann lyfti nú höfði og hún sá óttann í augum hans. - Þér koma, ungfrú læknir, þér koma með Seth frænda, og sjá — við þurfa hjálp — og þér alltaf vin- ur. — Auðvitað vil ég hjálpa ykkur, Seth frændi... Seth frændi settist aftur í og Meredith sveigði af veginum inn í skóginn, en það var ekki nema svo sem fjórðungur úr mílu að býli Seths frænda, og voru þarna nokk- ur blökkumanna grafhýsi á víð og dreif. Fyrir dyrum útj á flestum býlunum var blökkufólk á ýmsum aldri, en þegar það sá bílinn nálg- ast var sem ótti gripi það, og menn þustu inn. Ónotatilfinning greip Meredith er hún gekk á eftir Seth gamla að kofa hans, sem var hinn stærsti þarna. Það var að byrja að skyggja og það kom ónotalega við hana, að sjá hve fólkið var hrætt, og ósjálf- rátt fannst henni allt draugalegt og ískyggilegt. Seth fór á undan henni inn í kofann. í honum voru aðeins tvö lítil herbergi og eldhúskytra, en það var furðu hreinlegt I kofanum og arinn í stofunni, og pottur með vatni í hékk yfir arninum. Vegg- fóðrið var farið að láta á sjá og var sumstaðar límt yfir skellurnar með tímaritsmyndum. Þrjár eða fjórar blökkukonur voru í herberg- inu og kannaðist Meredith við eina þeirra, sem var ólærð ljósmóðir — og þótti hverri blökkukonu sjálf sagt að kveðja hana til, og kom þar til, að hún var talin kunna fyrir sér, en blökkufólkið er mjög hjá- trúarfullt. En Seth frændi vildi greinilega ekki að hún færi að tefja sig á að 'ræða við konurnar eða spyrja þær, því að hann sagði með ákefð: — Inn hingað, ungfrjí læknir, inn hingað! Hún fór inn í annað herbergi, sem var allmiklu minna en hitt. Ot við sinn hvorn vegginn voru heimatilbúin flet, með hálmmaddr- essum í og fiðursængum. Ábreiðurn ar voru grófar, en hreinar. En það var ekki nema andartak, sem hugur Meredith beindist að þessu. Hún stóð allt í einu sem steini lostin og gat hvorki hreyft sig eða mælt. Hún starði án þess að geta trúað sínum eigin augum, þv£ að í öðru rúminu lá Louella Carling, vangi hennar hulinn korngulu lokkunum. Hún hélt i svip, að stúlkan væri dá- in, en svo sá hún ofurlitla hreyf- ingu á henni, og að enn mundi ein- hvers lífs von, og eigi minni varð undrun hennar, er hún sá, að pilt- ur, fölur sem nár lá í hinu fletinu — Jimmy Wright, pilturinn sem Louella elskaði. Meredith vaknaði skyndilega sem af dái og skoðaði þau og á meðan sagði Seth frændi henni hvað gerst hafði. Einn blökkumanna hafði kom ið að þeim upp I fjallahlíð þar sem þau lágu sár og sem lífvana £ faðm lögum. Kringum þau voru matar- leifar, eins og þau hefðu verið þar £ venjulegri fjallaferð sér til skemmt unar — en hún fengið hryllilegan endi. Við hlið þeirra lá lítil skamm- byssa. Blökkumaðurinn hafði orðið dauðskelkaður, þvi að hann taldi, að hann mundi nú geta átt von á því, að hann hefði myrt þau Ekkert óttaðist veslings blökkufálkið eins mikið og ,Jögin“ — það var svo sannfært um, lögin bitnuðu ávallt á því. Blökkumaðurinn hafði þó hraðað sér á fund Seths frænda og hann fékk aðra £ lið með sér og þegar þeir komust að þvf að lífs- mark var enn með ungmennunum, gerðu þeir skyldu sina, fluttu þau í kofann, og vo‘ru nú milli vonar og ótta um hvað biði þeirra. Blökku fólkið vissj sem var, að hjá þvi varð ekki komist, að tilkynna fund ungmennanna — og taka afleiðing unum. Og svo var það að ráði, því að sést hafði til ferðar Meredith í Afdalinn, að stöðva hana 1 baka- leiðinni og biðja hana um hjálp. Þegar hún hafði lokið athugunum sínum og tók upp áhöld sín til þess að gera það, sem í hennar valdi stóð, skildist henni hvað gerst hafði, - að þessi blessuð börn í óhamingju sinni og uppreisnarhug gegn skilningsleysi foreldranna, höfðu gert með • sér „sjálfsmorðs- sáttmála“, - kosið að deyja heldur en lifa og fá ekki að njótast. Vesa- lings fávísu, óhamingjusömu, upp- reisnargjörnu unglingarnir hugsaði hún, — hví þurfti annað eins og þetta að gerast? Meredith sá, að sárin voru ekki svo hættuleg, að þau hefðu þurft að vera banasár, ef hjálp hefði bor- izt fyrr .— en nú höfðu þau orðið fyrir svo miklum blóðmissi, að hún var í vafa um hvort þau mundu hafa það af. Þau yrðu að fá blóð- gjöf hið fyrsta. Hún skrifaði í skyndi beiðni til lyfsalans í bæn- um, og nokkur orð til Rosalie og bað hana að fara til frú Carling og segja henni sem varlegast hvað gerst hefði - og lét svo sonarson Seths frænda, aka bílnum til Riv- er Gap, og einnig átti hann að koma aftur með ýmislegt sem hana vantaði, úr lækningastofu sinni. Annan sendiboða, vegna ótt- ans við lögin, sendi blökkufólkið til foreldra Jimmy. Blakka Ijósmóðirin reyndist á- gætlega til allrar aðstoðar. Mered ith furðaði sig raunar ekki á því þar sem Mammy Jo, en svo var hún kölluð, hafði veitt blökkufólk- inu ýmsa aðstoð, aðra en þá sem þurfti er barn fæddist. Hún var allt af nálægt og viðbragðsfljót og öllu vön. Og svo vel fórst henni allt úr hendi og svo hjálpleg og hlýðin var hún, að Meredith hugs- aði sem svo ,að betur væri ef all- ar hjúkrunarkonur reyndust eins vel. Loks var því lokið, sem þær gátu gert í bili, og Meredith var rarin að halda, að allt myndi fara vel, ef ekkert yrði til truflunar, en hún kveið fyrir að verða að tala við frú Carling. Það var oft það erf- iðasta, að tala við ættingja þeirra, sem læknarnir voru að reyna að bjarga. Og innan stundar heyrðist að bifreið var ekið að kofanum. Inn í fremra herbergið kom frú Carling askvaðandi, augnaráðið tryllings- legt. _ Barnið mitt, kallaði hún, hvers vegna er barnið mitt á þess- um hræðilega stað? Meretith stöðvaði hana, sagði rólega og samúðarlega: — Það varð slys, frú Carling, en það fer vel, hún nær sér. Frú Carling titraði frá hvirfli til ilja og andartak var sem hún ætl- aði að hníga niður. Meretith mælti alvarlega og hvasslega: - Frú Carling, þér verðið að stappa I yður stálinu og vera ró- legar. — — Rólegar, þegar barnið mitt hefur verið myrt, æpti frú Carling £ æði. Það hljómaði eins og vein, á- sakandi vein, og blökkufólkinu fannst það minna á gust sem fer yfir bylgjandi kornakur og boðar eitthvað illt. Blökkukonurnar hörf- uðu til veggja og andlit hurfu af gluggum. — Vitlaysa, frú Carling, sagði Meredith hvasslega. Það hefir eng- in morðtilraun átt sér stað. Hér er um sár af hennar eigin völdum að ræða. — Hvernig getið þér látið svo hræðilega ásökun yður um munn fara? — Þetta er sannleikur, frú Carl- ing. Skoðun mín á henni leiddi það skýrt £ ljós. — Vitleysa, þetta er skammar- leg lygi ,rógur, ég stefni yður fyrir að halda þessu fram — haldið þér að nokkur maður trúi þvi, að hún Louella, elsku barnið mitt, geri tilraun til sjálfsmorðs — hún, sem á hina glæsilegustu framtíð fyrir sér. — Hún var ekki ein, þegar hún fannst, frú Carling, sagði Meredith rólega. Jimmy Wright fannst líka. D.K.W. ’64 er kominn. Sýningarbíll á staðnum til afgreiðslu strax. — Kynnið yður kosti hinn- ar nýju DKW bifreiðar 1964 frá Mercedes Benz verksmiðjunum. Salan er örugg hjá okkur. BÍLA OG BÚVÉLA SALAN v/Miklatorg Sími 23136 T A R I A N SA.WA, KIGHTFUL CHIEF OF THE TEI5E, COWWANPS SIX MOTO-MOTOS TO STAKI7 AT THE VILLASE TOST FlÍOM WHICH TAKZAKI KESCUE? . _ KJUKSE KIAOAM. '1?ölklT OUT THOSE WHO HELFE7 OPA AKI7 KKAIMA KILL THE KEACEFUL FOCTORS AKIF WURSES!" TARZAKl TELLS SAKIA. HIS OLF MOTO-MOTO FEIEkJF. DltL Elliott CíM?0 9-14-6177 SO-THESE AKE THE MEM AKIg WOMEM , WHOSE CRIME I7ISGRACES MOTO-MOTOSÍ LETALLOTHERS LOOK AT THEM WITH PISGUST-AKI7 SMME! Sex villimönnum var skipað að þorpsins. Svó að þetta eru menn- Kraimu til þess að óvirða Moto- reiðilega. taka sér stöðu við píslastaur irnir og konurnar sem hjálpuðu Moto aettbálkinn, segir Tarzan m3aaaE3E3annDt3DaananE3n [ Hárgreiðslustofan t HÁTÚNI 6, sími 15493. > Hárgreiðslustofan ISÖLEV * Sólvallagötu 72. ÍSimi 14853. [ Hárgreiðslustofan IPIEOLA ' Grettisgötu 31, sími 14787. > Hárgreiðslustofa •VESTURBÆJAR [Grenimel 9, simi 19218, » Hárgreiðslustofa • AUSTURBÆJAR [ (María Guðmundsdóttir) i Laugaveg 13, símj 14656. ' Nuddstofa ð sama stað. | Hárgreiðslu- og snyrtistofa ' STEINU og DÓDÓ iLaugaveg 18 3. hæð flyfta). [ Sími 24616. Hárgreiðslustofan Hverfisgötu 37, (homi Klappar- stigs og Hverfisgötu). Gjörið' svo vel og gangið inn. Engar. sérstakar pantanir, úrgreiðslur. P E R M A, Garðsenda 21, simi J 33968 — Hárgreiðslu og snyrti- ( stofa. Dömu, hárgreiðsia vlð allra hæfi | TJARNARSTOFAN, Tjarnargötu 10, Vonarstrætis- Háaleitisbraut 20 Sími 12614 WAAAAAAA/V/VA/WWVVS/V»w Bílakjör Nýir bílar, Commer Cope St. BIFREIÐALEIGAN, Bergþórugötu 12 Simar 13660. 14475 og 36598 * ðdýrcar þykkar drengjopeysur HAGKAUP Miklatorgi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.