Vísir - 22.10.1963, Side 16

Vísir - 22.10.1963, Side 16
Þriðjudagur 22. okt 1963. Ósamið við V.R. ennþó 1 nótt var sainningafundur hjá sáttasemjara í kjaradcilu V.R. og kaupmanna. Stóð fundurinn til kl. 4,30 í morgun. Ekkert samkomu- Iag náðist. í dag mun stjórn og trúnaðarráð V.R. halda fund og ræða, hvort boða skuli vhmu- stöðvun. Sósíalistafíokkurínn lagð- ur niður í næsta mánuði? MIIÍILLA tfðinda er nú að ista innan skamms. í næsta mán vænta úr herbúðum kommún- uðj á að vera flokksstjómar- fundur Sósialistaflokksins og á þá að taka ákvðrðun um það, hvort Sósialistaflokkurinn verði lagður niður og Alþýðubandalag ið látið taka við að öllu leyti eða ekki. Þeir, sem vilja Ieggja Sósialistaflokkinn niður, munu hafa ömggan meirihluta i flokks stjóminni. Á . mörgum undanförnum flokksþingum og flokksstjómar- fundum kommúnista hefur það verið aðaldeilumálið, hvort ekki væri réttast að láta Alþýðu- bandalagið taka við af Sosial- istaflokknum. En eins og kunn- ugt er, þá er Alþýðubandalagið ekki stjórnmálafl. skipulags- lega séð enda þótt það hafi boðið fram fyrir Sosialistaflokk inn við undanfamar kosningar. Alþýðubandalagið er I rauninni aðeins kosningasamtök Sosial- istaflokksins og Málfundafélags jafnaðarmanna. Bjöm og Stór-Guðmundar með Undanfarið hefur þeim öflum í Sosialistaflokknum aukizt fylgi, er vilja gera Alþýðubanda iagið að stjórnmálaflokki og leggja niður Sosialistaflokkinn. Aðalhvatamennirnir að þessari breytingu eru þeir Björn Jóns- son, Stór-Guðmundamir, Guð- mundur J., Guðmundur Vigfús- son og Guðmundur Hjartarson ásamt Lúðvik Jósepssyni, en Lúðvfk hefur þó tvlstigið mjög í málinu. Njóta þeir að sjálf- sögðu stuðnings Hannibals, Finnboga Rúts og Alfreðs úr þingflokknum en þeir eru þvor- ugir í Sosialistaflokknum og Gils Guðmundsson er því einnig eindregið fylgjandi, að Sosial- istaflokkurinn verði lagður nið- Framh. á bls. 5. 40 þúsund króna verðmætm FÓRU Á WEMBLEY Á hádegi I dag fór fullsetin Skymastervél Flugfélags íslands tU London. Það er ferðaskrif- stofan SAGA sem tekur vélina á leigu f þessa ferð, sem er farin i tilefni af hinum mikla knattspyrnuleik ENGLAND— HEIMURINN eða „Rest of the World” eins og liðið er kallað á ensku. Leikurinn fer fram í flóðljós- um á Wembley annað kvöld og er fyrir löngu uppselt á Wemb- ley og hefði verið hægt að selja margfalt fleiri miða. Ferð þessi er ekki síður jóla- innkaupaferð og skemmtiferð fyrir fargegana, enda voru menn með margar innkaupatösk ur og léttar þegar meett var á flugvelli um hálf-tólf leytið í morgun. Myndina tók ljósmyndari Vfs is BG fyrir utan flugstöð Flug- félagsins og sýnir þrjá af þátt- takendum í Wembleyferðinni, þá Magnús Pétursson, knatt- spyrnudómara, „kolIega“ hans Einar Hjartarsson og Einar Dav íðsson fyrrv. sundmann í Ár- manni. Veski stúlkunnar með 40.000^ króna verðmætinu, sem Vísir lýsti eftir f gær, kom í leitirnar í morgun. Nokkru fyrir hádegið I dag kom maður nokkur í lögreglustöðina með veski stúlkunnar ásamt þeim verðmætum sem í þvf voru geymd. Manninum sagðist sjálfum svo frá að hann hefði verið í Klúbbnum umrætt kvöld, þá allmjög drukkinn. Hann kvaðst þó minnast þess að hafa dansað við stúlkuna sem átti veskið. Eftir þetta kvaðst maðurinn lítið muna af því sem gerðist, en þegar hann kom heim til sín um nóttina var veskið af einhverjum ástæðum I fórum hans. í morgun þegar maðurinn las fréttina af þessu í blöðum fór hann með veskið niður á lögreglustöð og afhenti það þar. Farið var með manninn til rann- sóknarlögreglunnar, þar sem átti að taka af honum nánari skýrslu. Aukafundur S.H. hefst í dag Aukafundur S.H. hefst kl. 2 f dag í húsi Slysavarnarfélags Is- lands á Grandagarði. Verður þá lögð fram skýrsla nefndar þeirrar, er skipuð var á síðasta aðalfundi SH til þess að rannsaka afkomu frystihúsanna. Hafa frystihúsin átt við mikla rekstursörðugleika að etja undanfarið og má búast við, að rætt verði á fundi SH f dag og á morgun hvaða leiðir séu tiltækar til þess að bæta aðstöðu frystihúsanna. -á>- TALDiSKOTIÐÁ SiGSAKLAUSAN Norski skipstjórinn Axel Lie Oleson á brezka togaranum Lifeguard, sem varðskipið Óð- inn elti f fyrrinótt, anzaði eng- um ljósmerkjum, flautu né kalli f talstöðinni og sinnti engu þremur lausum skotum. Þegar Óðinn hafði elt togar- ann frá því um miðnætti og fram á morgun, skaut varðskip- ið að honum föstu skoti og þá fór Olesen skipstjóri að kalla f talstöðina. Mótmælti hann því að varðskipið væri að skjóta á sig saklausan úti á Framhaid af bls. 5. A ætlunnrbifreið / hrakn- ingum á Þingmnnnaheiði Áætlunarbifreið frá Vest- fjarðaleið fór frá Reykjavfk á föstudagsmorgun til Patreks- fjarðar og lenti f miklum erfið- leikum á Þingmannaheiði vegna snjóa. Brauzt bifreiðin vestur og kom ekki fyrr en á aðfaranótt^ iaugardags. Daginn eftir var lagt af stað 'kl. 10 um morguninn með 7 farþega, en 4 til viðbótar átti að taka upp á leiðinni. Svo fór að aldrei var lagt á heið- ina en snúið til Patreksfjarðar og komið þangað um kl. 2 um nóttina. Enn var svo reynt að leggja upp á sunnudagsmorg- un, og voru farþegarnir þá vopnaðir skóflum og var ætlun- in að reyna að brjótast yfir heiðina, sem er eina hindrunin Framh. á bls. 5. Sleppt úr gæzluvurðhuldi Hjá sakadómaraembættinu í Reykjavík fékk Vísir þær upp- lýsingar í morgun að áhugaljós- myndara þeim, sem í sumar var kærður fyrir nauðgun á 13 ára unglingstelpu hafi nú verið sleppt úr gæzluvarðhaidi. En í því hefur maðurinn nú setið talsvert á þriðja mánuð. Frá því hefur áður verið skýrt að umræddur áhugaljós- myndari hafi auglýst eftir fyrir- sætum, en í lok júlímánaðar kærði móðir einnar fyrirsæt- unnar, 13 ára stúlku, að mað- urinn hefði nauðgað barninu Strax og kæran barst var mað- urinn handtekinn og rannsókn hafin í málinu. Hann hefur verið í gæzluvarðhaldi og geð- rannsókn síðan og að því er Ólafur Þorláksson sakadómari tjáði Vísi í morgun er læknis- rannsókn nú lokið. Jafnframt hefur sakborningi verið sleppt úr gæzluvarðhaldi eftir að hafa setið I því talsvert á þriðja mánuð. Rannsókn 1 máli manns þessa er enn ekki að fullu lokið, en Ólafur tjáði Vísi að henni myndi nú verða hraðað og mál- ið að því búnu afhent sakadóm- ara ríkisins. Tveir menn slös- uðust / morgun Um kl. 10.30 í morgun meiddust tveir menn sem voru að starfi i porti Vitamálabyggingarinnar við Seljaveg. Annar mannanna Ingvi Kjartansson slasaðist mikið. Þetta vildi til með þeim hætti að unnið var að því að stafla steypustyrktarjámi í portinu. Af einhverjum ástæðum kom slingur á járnbunka I strófu, þannig að hann hrökk úr strófuauganu og lenti á tveimur mönnum og slas- aði báða. Annar mannanna, Ingvi Kjart- ansson slasaðist mikið, m. a. blæddi mikið úr andliti hans og auk þess var óttazt að hann hefði fótbrotnað. Hann var fluttur , Landspítalann að athugun lokinni I slysavarðstofunni. Hinn maðurinn, Þorsteinn Krist- jánsson, meiddist á fæti en ekki alvarlega að talið var.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.