Vísir - 30.10.1963, Blaðsíða 1
VISIR
S3. árg. — Mlðvikudagur 30. október 1963. — 141. tbl.
Stórvirkar vélar keyptar
fyrir 21 milljóa króna
Ríkisstjóm íslands fær 500 þús- / irritaður i fyrradag og er upphæðin Nefna má veghefla, jarðýtur,
und dollara að láni hjá Export- um 21 milljón íslenzkra króna. —
Import bankanum í Washington til Fyrir dollarana kaupa ýmsar stofn-
10 ára, lánssamningurinn var und-1 anir stórvirk tæki og vélar.
krana til hafnarframkvæmda, efni
til rafvæðingar, svo sem straum-
Framh. á bls. 5
Hey keypt tíl að forða
fóðurskorti nyrzt á Ströndum
Viðtal v/ð oddvitarm, sem er staddur \ R.vík
Þessa dagana er verið
að vírbinda rúmlega
1000 hesta af töðu norð-
ur í Svarfaðardal, og á
að senda þetta hey með
einni skipsferð norður
í nyrzta hreppinn í
Strandasýslu, Árnes-
hrepp, en þar er meiri
heyskortur en orðið hef-
ur í áratugi-
Vantar hey fyrir fjórðung fjár
ins, og var þó lógað fleiru fé
I haust, bæði fullorðnu og lömb-
urh, en venja er til. Bjargráða-
sjóður hleypur hér undir bagga,
varðandi þau 106 tonn af heyi,
sem keypt hafa verið í Svarfað-
ardal, en auk þess munu hrepps
búar 1 Ámeshreppi kaupa 25
tonn annars staðar. Alls er talið
að þeir þurfi að kaupa hey og
fóðurbæti fyrir rösklega hálfa
milljón króna. í hreppnum eru
25 býli og svarar þetta til þess
að keypt sé töluvert á annað
kýrfóður af heyi á hverjum bæ.
Gísli Kristjánsson ritstjóri ann
ast forðagæzlu fyrir hönd Bún-
aðarfélags íslands og sér um
heykaupin í Svarfaðardal, en
þar eru nú fulltrúar úr Árnes-
hreppi við heybindinguna.
Gísli sagði Vísi í morgun, að
um land allt væri of lítið af
heyi eftir sumarið, þrátt fyrir
síaukna ræktun og nægan áburð,
og stafaði það ástand frá kuld-
unum i vor og þurrkunum í sum
ar, Síðari sláttur hefði nær al-
gerlega brugðizt víðast hvar. Og
Gísli bætti við: — Hey er í
rauninni hvergi að fá, nema í
Svarfaðardal, þar sem menn
heyjuðu óvenju mikið í sumar.
Aftur á móti heyjuðu menn ó-
venju lítið í Árneshreppi, og
minna en í nokkrum öðrum
hrepp á landinu, svo að vel vill
til að Svarfdælingar geta hjálp-
að fbúum þess hrepps.
ÞAÐ SPRATT ALLS EKKI
VEGNA KULDA.
! framhaldi af viðtalinu við
Gísla Kristjánsson, ræddi blaða-
maður Víis f morgun við Guð-
jón Magnússon, bónda og odd-
vita í Kjörvogi í Árneshrepp1,
en hann er staddur f borginni
í embættiserindum. Hann sagðn
„Það erfiðasta var sprettuleys-
ið, það spratt alls ekki vegna
kuldanna í sumar. Ég man e*ki
eftir jafn köldu sumri a.m.k.
hefir það ekki komið sfðan veð-
urathuganir hófust f Kjörvogi
fyrir 30 árum. Þa ðeru 25 bæir
í Árneshreppi, hreppsbúar u-n
260 að tölu. Við forðagæzlueft-
irlit í haust kom í ljós að vanta
myndi algerlega hey fyrir um
fjórðung fjárstofnsins, eða tölu
vert á annað kýrfóður á bæ til
jafnaðar. Þó fækkuðum við fé
nokkuð í haust vegna yfirvof-
andi fóðurskorts.
Flestir gátu reytt eitthvað af
túnum sínum í fyrra slætti, en
það var minna að vöxtum en
verið hefir áður í manna minn
um, eins og ég sagði áðan. Það
var sólskin upp á hvern dag um
bezta sprettutímann, frá 20.
júnf tií 12. júlf, en það spratt
bara ekki, vegna kuldanpa, og
víða kól tún og bættist við kal-
ið í fyrra, sem var mikið. Það
er því ekki von á góðu næsta
sumar.
Vegna sprettuleysis á túnum
var í sumar horfið óvenjumikíð
að engjaslætti. En þá tókst ekki
betur til en svo að megnið af
útheyinu varð úti í september-
hretinu, og hefir ekki náðst mn
sfðan og mun verða algerlega
ónýtt til fóðurs. Þannig brást sú
von og þess vegna varð að fara
út í þessi miklu heykaup til
þess að koma í veg fyrir að
menn þyrftu að farga bústofni
sínum að meira eða minna leyti.
Þannig fórust Guðjóni f Kjör-
vogi orð f morgun.
,0f litií hey um
Guðjón Magnússon, oddviti í Árneshreppi: „Það spratt alls ekki,
vegna kuldanna í sumar“.
Gífurlegur hörgull á verkamönmm
01 íi ð»ð i dug
BIs. 2 lþróttlr.
I — 3 Fyrsta sfldin.
(Myndsjá).
- 4 Næturlff I Rvlk.
- 7 Bókasfða.
- 8 Barátta SAS.
KJ — 9 Van Dyke varpað út
Unnið til miðnættis í frystihúsunum á hverju kvöldi
Gífurleg vinna er nú í
fiskvinnslustöðvunum í
Reykjavík við síldar-
frystingu og síldarsölt-
un. Háir það húsunum
mjög, hversu erfiðlega
gengur að fá verkamenn
til starfa, en mikill hörg-
ull er nú á verkamönn-
um í öllum greinum at-
vinnulífsins.
Vfsir átti í gær tal við Fisk-
iðjuver Bæjarútgerðar Reykja-
víkur. Var blaðinu tjáð að unnið
hefði verið þar til miðnættis á
hverju kvöldi undanfarið sfðan
síldin fór að berast. Við eigum
von á síld úr tveim bátum í dag,
sagði verkstjórinn. Hannes Haf-
stein kemur með 2200 tunnur og
Arnfirðingur með 1400 tunnur.
Það verður því vinna til mið-
nættis f kvöld eins og undan-
farið en okkur vantar fólk. Það
virðist algerlega ókleift að fá
verkamenn í frystihúsin vegna
þess að þeim bjóðast betri kjör
í byggingariðnaðinum", sagði
verkstjórinn.
Vísir átti einnig tal við verk-
stjóra f ísbirninum, frystihúsi
Ingvars Vilhjálmssonar. Verk-
stjórinn sagði: „Hér er nú unn-
ið til miðnættis á hverju kvöldi,
fyrst og fremst í síldinni, bæði
við frystingu og söltun. Okkur
hefur með herkjum tekizt að ná
í nóg fólk“.
Vfsir frétti, að sömu sögu
væri að segja úr hinum frysti-
húsunum. Það væru miklir erf-
iðleikar á því að fá nóg af verka
mönnum en tekizt nokkurn veg-
inn að fá nægilega mikið af
kvenfólki.
Stöðugar auglýsingar eru f
blöðunum frá atvinnurekendum,
sem auglýsa eftir verkamönn-
um. Er sérstaklega mikið af aug
lýsingum frá atvinnurekendum
í byggingariðnaðinum, enda er
gífurlega mikið um framkvæmd
ir við byggingar. Og allar eru
auglýsingarnar með svipuðu
Framh. á bls. 5.