Vísir - 30.10.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 30.10.1963, Blaðsíða 16
VISIR I Mlövlkudagur 30. október 19é3 r Arekstur I gærkvöldi munaði iitlu að mannlaus bili rynni I Reykjavíkur- höfn, en hann hafnaði á síðustu stundu á bát, braut bátinn nokkuð og stanzaði þar. Þetta atvik skeði á 10. tímanum í gærkvöldi. Bifreiðin hafði verið Framh á bls. 5. Mikil síldveiði—meðalafli amm^mmammamm^mmmmmm^^mmmmmmmm^mmmtmmmammmmmmammemmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^ 36 báta rúmega 950 tumur Síldveiðamar eru nú í fullum gangi og fjöldi báta að veiðum viö eins góð skilyrði og bezt geta orðið á þessum tíma árs, enda var þetta bezta veiðinóttin til þessa á vertíðinni og sam- bærileg viö það sem bezt er á haustvertíð. AUs fengu 36 skip 34.900 tunnur 50—60 sjóm. VN V af öndverðamesi. Mestur afli á bát var 2200 tn. en meðalafli rúmi. 950 tn. Afli einstakra báta: Þorgeir 650, Hilmir II. 1400, Jón Finnsson 800, Anna 950, Kópur 1400, Gnýfari 550, Valafell 450, Höfrungur 800, Skírnir 1700, Arnfirðingur 1400, Sæfa'n BA 1200, Sigurvon 1100, Hólmanes 900, Lómur 1100, Ás- björn 1800, Hannes Hafstein 2000, Skarðsvík 750, Steinunn gamla 850 Hrafn Sveinbjarnarson 650, Jón Jónsson 800, Sigurpáll 1500, Eldey 1100, Jökull 450, Vigri 1400, Hilm ir 500, Hafþór 800, Stapafell 1100, Auðunn 500, Árni Magnússon 2200 Jón Gunnarsson 350, Ingiber Ólafs son 400, Árni Geir 800, Runólfur 600, Steinunn 450, Arnkell 100, Sól faxi 550. Síldin fsvarin. Fiskmat rfkisins hefur aðvarað útgerðarmenn og framleiðendur með útvarpsauglýsingu um að ís- verja sfldina strax eftir að hún hefur veiðzt og þar til komið er f höfn. Er þetta gert af brýnni nauð syn, þar sem mjög heitt hefur ver- ið f veðri að undanfömu, hlýrra en oft f júlímánuði f sumar, og sigling in af miðunum er enn mjög löng, eða nær 12 tímar. Yfirfiskimatsmenn hafa sfðustu daga orðið varir við að síldin féll um flokka f mati og telja að hér sé um það að ræða að síldin hafi ekki þolað hinn langa flutning í svo hlýju veðri. „Við töldum rétt að aðvara frystihúsaeigendur og útgerðar- menn, því hér er um talsverða hættu að ræða, og vissuiega er um stórar f járhæðir að ræða þegar síldin feilur f mati. Þess vegna brýn um við fyrir hlutaðeigandi aðilum að ísverja afla sinn og það ættu þeir raunar að gera undir öllum kringumstæðum, sagði Bergsteinn Bergsteinsson, fiskmatsstjóri f við- tali við Vísi í morgun. Þriðji beltabillinn bættist f hópinn hjá Flugbjörgunarsveitinni f gærdag. Vamarliðið afhenti sveitinni hann til fullra afnota og geymslu, en Varnarliðið hefur látið Flugbjörgunarsveitina fá mikið af alls konar tækjum til afnota um ótakmarkaðan tfma. Bflar þessir verða staösettir vfða um land, einn er á Norður- landi annar í Reykjavík og sá þriðji verður líklega staðsettur á Hellu, Skógarhólum eða f Vík. SuuiiB um sölu á 54 þásund t. haustsíidur Sfldarútvegsnefnd Lefur tjáð sfldarsaltendum að þeim sé nú óhætt að hefja söltun Suður- landssfldar. Hafa þegar verið gerðir samningar við þrjú ríki um sölu á 54 þús. tunnum af haustsfld. Frekari samningar við ailmörg lönd standa yfir, en þeir hafa dregizt á langinn. Búið er a ðsemja við Pólverja um 40 þús. tunnur af hausaðri og slógdreginni saltsíld, og er það 10 þús. tunnum meira en um var samið við þá á sl. ári. Þá hefur verið samið við banda- rfska kaupendur um 12 þús. tn. af sérverkuðum saltsíldarflök- um og er það einnig aukning frá því sem áður var. Loks hef- ur verið samið við Israel um tvö þús. tn„ en það er 2 þús. tn minna en f fyrra. Til að uppfylla þessa samn- inga þarf, eftir áætlun, 90 þús. tn„ uppmældar úr sjó, til að hráefni sé nægilegt. Síldarútvegsnefnd hefur ieit að eftir samningum við mörg önnur ríki, um kaup á Suður- landssíld ,en horfur eru ekki sem beztar ,enn sem komið er vegna mikils framboðs á salt- síld á þessum mörkuðum. Mi ikið um rjúpu á H olta\ röri íuheiði Hátt á annað þúsund rjúpur hafa verið skotnar á Holtavörðuheiði frá þvf að veiðitímabilið hófst, af skytt um, sem lagt hafa upp frá Forna- hvammi. Samkvæmt upplýsingum frá Gunnari veitingamanni hefur verið mikið um rjúpu á heiðinni, en veður hefur oft hamlað veið- unum. Reykjaheiði í Þingeyjar- sýslu hefur verið talin eitthvert bezta rjúpnaveiðiland hérlendis, en Vísir hefur fengið þær upplýsingar að miklu minna sé þar um rjúpu nú en búizt var við. „Hér virðist vera nóg af rjúpu, en það er veðrið, sem háir okkur,“ sagði Gunnar veitingamaður í Fornahvammi, þegar Vísir ræddi við hann f gærmorgun. Alla s.l. viku var mjög óheppilegt ( veður til rjúpnaveiða, en í gær i fóru frá Fornahvammi 12 menn og skutu þeir frá 12 og upp í 50 rjúp- j ur hver. Mest hefur verið um rjúpu j uppi í Tröllakirkju og Snjófjöllum Kaupfélag Þingeyinga á Húsavík hefur keypt töluvert af rjúpu und- anfarna vetur, enda eru mörg beztu rjúpnaveiðilöndin talin vera i Þing- eyjarsýslum, einkum þó á Reykja- heiði. Nú bregður svo við, að lítið er um rjúpu á Reykjaheiði og kaup- félagið á Húsavík er ekki farið að fá rjúpu enn. Virðist rjúpan því hafa fráhverfzt Þingeyingum. Það heppnaðist allt þennan dag" ff — sagbi Albert Guðmundsson, en hann lék ný- lega með varaliði Racing Club de Paris og skoraði 5 mörk i leiknum! „Þetta var einn af þessum dög- um þegar allt heppnast“, sagði Albert Guðmundsson í stuttu við tali við Vísi f morgun, en hann var gripinn glóðvolgur í París nýlega og lék með Racing Club de Paris, gamla félaginu sínu og skoraði alls 5 sinnum í leikn- um! Að vísu voru tvö markanna dæmd ógild, en Albert lék mjög vel og undruðust áhorfendur hve mikið eimir enn eftir af snilli hans. „Þetta er annars mesta vit- leysa af mér að vera að láta hafa mig í alls konar keppnir. Ég hef ekkert úthald eða æfingu í leikina, leik svo e. t. v. illa og fæ skömm í hattinn og bíð álitshnekki hjá gömlum aðdá- endum. Þessi leikur var þó frá- brugðinn að þessu leyti — allt heppnaðist. Það var annars gaman að leika með varaliði Racing. Þetta eru allt ungir og góðir leikmenn, sem verið er að reyna með aðalliðið í huga. Þessir leikir eru frjálsari en lcik ir aðalliðanna, eins og sjá má af því að framkvæmdastjóri Rac ing bað mig að leika með. Hann sagði að úr því ég lék í Milano í fyrra, gæti ég eins leikið nú og ég lét tilleiðast eft- ir mikla innri baráttu“. Albert kom heim fyrir nokkr- um dögum og snýr sér að við- skiptastörfum sínum, sem eru oröin mjög umfangsmikil. — Stærsta verkefni hans nú er hin nýja tollvörugeymsla, en knatt- spyrnan verður að bíða, en hún freistar alltaf, jafnvel þó menn séu komnir á „elliár“ eins Al- bert segist vera sem knatt- spyrnumaður. ALBERT — myndin tekin á Smiðjustígnum þar sem fyrir- tæki hans er og þar sem segja má að vagga hans sem knatt-' spyrnumanns standi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.