Vísir - 30.10.1963, Page 6
6
VÍSIR . Miðvikudagur 30. október 1963.
Útför föður míns og tengdaföður
dr. juris BJÖRNS ÞÓRÐARSONAR
fyrrum forsætisráðherra og lögmanns í Reykjavík
verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 1. nóvember
kl. 10,30.
Þórður Bjömsson Guðfinna Guðmundsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
JÓRUNNAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
fyrrverandi kennslukonu.
Fyrir hönd aðstendenda
Sigurbjöm Sigurðsson
ABC
HÁRÞURKAN
með þurrkhettu og
bylgjustút, ásamt
standi,. er glæsileg
fermingargjöf.
Fæst í helztu raf-
tækjaverzlunum.
Umboðsm. G. MARTEINSSON H.F. Sími 15896
Auglýsing eykur viðskipti
Ef þér \áljið selja eða kattpa
eitthvað. Vanti yður húsnaeði,
atvinnu eða fólk til vinnu, er
AUGLÝSING í VÍSI
öruggasti milliliðurinn.
Við veitum yður allar upp-
lýsingar og fyrirgreiðslu. Aug-
lýsingaskrifstofan er i Ingólfs-
stræti 3. Sími 11663. V 1S I R .
Karlmanna-
fatnaði
stolið
í fyrrinótt yar verulegum verC-
mætum í fatnaði stolið við innbrot
í verzlun f Miðbænum.
Brotizt var inn á 2 stöðum, en úr
öðrum þeirra var engu stolið.Höfðu
þjófarnir brotizt inn £ verkstæði, er
fyrirtækið Gluggar h.f. hefur fyrir
gardínuframleiðslu sína í bakhýsi
í Hafnarstræti 3. Úr þessu verk-
stæði er slðan opin leið inn í port
á milii verkstæðisins og bygging-
arinnar við Hafnarstræti þar sem
verzlunin Herraföt er til húsa.
Hafði verið spenntur upp gluggi
úr falsi og að því búnu farið inn
í verzlunina. Þaðan var miklur-
verðmætum stolið af karlmann;
fatnaði, m. a. var stolið þar frakk
einhverju af stökum karlmannajöl;
um, svörtum skinnjakka, fóðruður
peysujakka og amerlskum stutt
frakka.
Loks var stolið 500 krónum
skiptimynt.
Þess skal getið að venjulega p-
unnið frameftir nóttu þarna I þess
ari húsastæðu og slðan hafður þar
næturvörður sem gætir fyrirtækj-
anna það sem eftir er nætur og
þar til starfsfólk kemur á morgn-
ana. En svo undarlega vildi til að
þessa einu nótt fékk næturvörður-
inn frí frá starfi.
Þjófarnir náðust skömmu síðar,
en þá höfðu þeir klæðzt hinum
nýja fatnaði. Höfðu þeir brotið
rúðu I söluturni við Barónsstíg, en
fólk I nærliggjandi húsi heyrði rúðu
brotið og tilkynnti lögreglunni.
i húnjpjófunur^ þá litlu síðar óg
flutti I fangageymsluna.
Þegar þeir mættu hjá rannsókn-
arlögreglunni I gær I nýju fötun-
um sínum kom I ljós að þetta voru
sömu mennirnir og brotizt höfðu
áður um nóttina inn I Herraföt í
Hafnarstræti.
Annar þessara manna var nýkom
inn af Litla-Hrauni þar sem hann
hafði tekið út 14 mánaða refsingu.
íJNáði
, 71
NÝKOMIÐ
GÓLFTEPPI
falleg og ódýr, margar tegundir,
margar stærðir.
GANGADREGLAR
mjög fallegt úrval í mörgum
breiddum og tegundum.
Földum — saumum saman fljótt og vel
eftir óskum.
GEYSER H.F.
Teppa- og dregladeildin.
ubnenýiogBg fibisH .ieöiv , n< sjaýl 8* $
o?. "nmðifidálH.. 'V. .n;r-T'l mtr , . •• ■ . p .
MÁLMFYLLING
Þ.JÓNSSON & CO
BRAUTARHOLTI 3 SÍMI 15362’-19215
tTelzta málið á Alþingi I gær
var frumvarp um breytingu
á áfengislögum, samið að undir-
lagi dómsmálaráðherra, Bjarna
Benediktssonar og reifað af hon-
um I upphafi þingfundar í neðri
deild.
Ráðherrann sagði að frum-
varpið væri samið I dómsmála-
ráðuneytinu, en byggt á tillögum
þeirrar nefndar, sem rannsakaði
atburðina I Þjórsárdal í sumar.
Skýrslu þeirri fylgdu tillögur til
úrbóta, eins og óskað hafði ver-
ið eftir I fyrirmælum menntamála
ráðherra Gylfa Þ. Gíslasonar, er
hann fól nefndinni fyrrgreint
verkefni. Ekki voru allar tillögur
nefndarinnar teknar til greina, en
hinar helztu Iátnar sitja í fyrir-
rúmi. Ýmis aldurstakmörk varð-
andi umgengni unglinga við á-
fengi og vínveitingastaði voru
sett, t. d. mega unglingar innan
18 ára aldurs ekki koma á vín-
veitingastaði, nema I fylgd með
forráðamönnum sínum. Þá má
ekki útvega unglingum undir 21
árs aldri áfengi með nokkru
móti, né mega leigubílstjórar aka
þeim undir áhrifum áfengis,
eins og Þórarinn að frumvarpið
stæði til bóta. Hann taidi hins
vegar að leggja yrði alla áherzl-
nema til heimilis þeirra.
VEGABRÉFASKYLDA
Unglingum verður skylt að
bera sklrteini með nafni, heimilis-
fangi, aldursupplýsingum og
mynd. Verður þessi skylda mið-
uð við tólf til tuttugu og tveggja
ára aldur. En ráðherrann sagði I
ræðu sinni að hagstofustjóri hefði
bent á að gefa mætti út slík skír-
steini fyrir alla íslendinga, og
gætu þau komið sér vel undir
ýmsum kringumstæðum. Þetta er
nú til athugunar hjá stjórnarvöld
um, sagði ráðherrann. Vegna
þessarar athugunar hefur útgáfa
vegabréfa til unglinga dregizt
nokkrar vikur, þar sem ekki þyk-
ir rétt að fara af stað með hana
eina, ef niðurstaðan yrði sú, að
allir fengju slík vegabréf. Yrði
það tvíverknaður.
STRANGARI
REFSINGAR
Samkvæmt frumvarpinu eru
ýmsar refsingar við brotum á á-
fengislöggjöfinni þyngdar, sumar
verulega. Ekki þótti rétt að taka
upp í frumvarpið ákvæði um refs
ingar á unglingum innan 18 ára,
sem neyttu vlns, eins og fyrr-
greind nefnd Iagði til, þar sem
sökin var aðallega talin liggja hjá
þeim er útveguðu áfengið og
bæri því að refsa þeim, sem slíkt
gerðu.
Ráðherrann benti á ýmsa erf-
iðleika sem skapast myndu við
framkvæmd laganna, einkum
þau er snertu aldurstakmörkin.
Taldi hann nauðsynlegt að eftir-
litið yrði eflt.
Þórarinn Þórarinsson (F) gerði
tvær athugasemdir við frumvarp
ið, og bað viðkomandi þing-
nefnd að taka til athugunar. í
fyrsta lagi að ákveðinn hluti af
hagnaði af sölu áfengis rynni til
bindindis- og æskulýðsstarfsemi.
I öðru lagi að bannað yrði með
lögum að veita minnsta afslátt
af áfengi, miðað við almennt út-
söluverð, t. d. til ráðherra, eins
og gert væri.
Geir Gunnarsson (Alþbal.) taldi
una á að komið yrði upp um þá,
sem útvega unglingum áfengi og
veita þeim refsingu. Sagði hann
nauðsynlegt að skylda leigubíl-
stjóra ekki aðeins til þess að aka
ölvuðum unglingum heim, heldur
einnig að gera yfirvöldum við-
vart, svo þau gætu rannsakað
hvaðan unglingum kom áfengið.
Þá gagnrýndi hann skólakerfið,
sem hann sagði að veitti ekki
unglingum nægilega aðstöðu til
tómstundaiðkana.
SLÆMIR
FORELDRAR
Sigurvin Einarsson (F) sagði
marga foreldra hafa þau viðhorf
til áfengisdrykkju að eðlilegt væri
að banna þeim með öllu að koma
með börn sín undir 18 ára aldri á
vínveitingastaði. Taldi hann að
foreldrar gættu ekki eðlilegt hófs
í slíkum efnum, og færu með
börn sín þangað, undir vissum
kringumstæðum. Þá vildi hann
láta banna vínveitingar 1 opin-
berum veizlum.
Umræðum lauk með þessum
orðum Sigurvins, og sneri deildin
sér þá að frumvarpi Einars Ol-
geirsonar um áætlunarráð ríkis-
ins.
Flutti Einar langa ræðu með
frumvarpinu, og taldi augljósa
nauðsyn strangrar áætlunar I
þjóðarbúskapnum. Benti hann á
ýmislegt er hann taldi hafa af-
vega farið, þvl til staðfestingar.
1 efri deild gerði Emil Jónsson,
ráðherra gein fyrir frumvarpi
varðandi innlendar tryggingar,
og Ólafur Björnsson skýrði nefnd
arálit um bráðabirgðabreytingu
og framlengingu nokkurra laga.
Voru ræður beggja stuttar.
Þá er þess að geta, að Sveinn
Guðmundsson (S) forstjóri hefur
tekið sæti sem varaþingmaður í
stað Jóhanns Hafsteln banka-
stjóra, sem er erlendis I opinber-
um erindagjörðumi
Sigurður Bjarnason var I gær
kjörinn formaður utanríkismála-
nefndar Alþingis og Emil Jóns-
son fundarritari.
Unglingar og áfengi — Vegabréf — Afsláttur á áfengi — Varabingmaður