Vísir - 30.10.1963, Page 9
V1S IR . Miðvikudagur 30. október 1963.
9
HerraVanDyke varpað út
MM• í jw.............:,/t-ttt. wnm
Skúrkurinn Shelley var í
gærkvöldi afhjúpaður frammi
fyrir tugþúsundum útvarpshlust
enda, sem biðu í ofvæni við
tæki sfn eftir að heyra endalok
ráðgátunnar miklu um Van
Dyke. Hefur framhaldsleikrit
þetta verið afarvinsælt og fólk
fylgzt með af miklum áhuga.
í gærkvöldi var greinilegt að
aðsókn að kvikmyndahúsum
minnkaði og flærra fólk var á
ferli en oftast er á kvöldin. —
Allt var þetta af völdum Van
Dykes, sem hélt hlustendum
Lék á sama hljóð-
Rögnvaldur kominn heim úr Amerikuför
Eins og frá hefur verið skýrt
í Vísi fór Rögnvaldur Sigurjóns
son píanóleikari i hljómleikaför
til Bandarikjanna og Kanada.
Rögnvaldur er nú fyrir nokkru
kominn heim og átti fréttamað-
ur Vísis við hann tal fyrir
skömmu.
„Upphaf þessarar ferðar",
sagði Rögnvaldur, „var það, að
Richard Bales, yfirmaður tón-
Iistardeildar ríkislistasafnsins í
Washington skrifaði mér og
spurði mig hvort ég gæti orðið
á ferðinni til að halda þar tón-
Ieika. Ég hafði mikinn áhuga
á þessu því að í þessu safni hélt
ég mína fyrstu tónleika erlend-
is árið 1945. En mér fannst of
lítið að fara slíka ferð fyrir að-
eins eina tónleika og sneri mér
þvf til Sigurðar Sigurgeirssonar
formanns Þjóðræknisfélagsins
hér og skrifaði hann fyrir mig
út til Winnipeg og var síðan á-
kveðið að ég héldi tónleika þar,
í Vancouver og Seattle.
Og héðan hélt ég til Winni-
peg þar sem Grettir Jóhannsson
aðalræðismaður tók á móti mér.
Allt var mjög vel undirbúið og
auglýst og hélt ég þar tónleika
hinn 18. sept. Á eftir voru haldn
ar veizlur og allt tilheyrandi og
tóku Vestur-Islendingarnir mér
alveg frábærlega vel f al!a
staði. I Winnipeg var mér sýnd
ur mikill heiður, þar sem ég
var gerður að heiðursborgara.
Þann 23. sept. hélt ég tón-
leika í Vancouver en þar tók á
móti mér og greiddi götur mfn-
ar Snorri R. Gunnarsson, form.
„Strandarinnar". 1 Vancouver,
sem og f Winnipeg og Seattle
var allt mjög vel undirbúið og
mér mjög vel tekið f alla staði.
En eini gallinn sem á var, var
sá að ég var of snemma á ferð,
músfklíf vetrarins var eiginlega
ekki byrjað, menn voru enn
með hugann við baðstrandir og
sólböð.
1 Seattle var ég 25. sept. og
spenntum heima fyrir.
Myndirnar, sem hér fylgja
eru teknar af síðustu upptöku
þáttarins. önnur sýnir þá Har-
ald Bjömsson (McCall) og
Baldvin Halldórsson (Shelley).
Það er verið að „kasta“ Shelley
út úr lestinni ,sem er á fullri
ferð og það er greinilegur ör-
væntingarsvipur á andliti Shell
eys. Minni myndin sýnir „eff-
ekta“-meistarann Flosa Ólafs-
son. Hann heldur á stórri spýtu
og dregur hana eftir borðrönd-
inni. Þetta gerði hann til að
mynda hljóð, sem heyrðist þeg-
ar lestarhurðin var opnuð, þeg
ar Shelley var varpað út.
á tónleikunum þar kom jafn-
framt fram kór Islendinga und-
ir stjórn Tani Jónsson, sem er
form. félags Norðurlandabúa í
Seattle, en hann tók á móti mér
frábærlega vel.
í Washington lék ég svo í rík
islistasafninu (National Art
Gallery) 6. okt, fyrir troðfullu
húsi áheyrenda. Á hverjum
sunnudegi eru haldnir tónleik-
ar f þessu húsi og eru þeir fast-
ur liður í músíklífi Washington-
borgar. Var tónleikunum útvarp
að. I sambandi við það má geta
þess að í Winnipeg lék ég inn á
Rögnvaldur Sigurjónsson.
segulband fyrir útvarpið og var
því útvarpað eftir að ég fór.
1 Washington þótti mér merki
legt að flygillinn, sem ég lék
á nú var sá sami og ég lék á
árið 1945 og var ekki að finna
á honum nokkrar breytingar
eftir öll þessi ár, enda er hann
bezta hljóðfæri sem ég hef
nokkum tíma tekið f.
Ég verð að segja að ég fékk
alls staðar frábærlega góðar
viðtökur og Islendingarnir f
Vesturheimi voru alveg sérlega
alúðlegir við mig. Krítikkin sem
ég fékk var yfirleitt mjög góð.
Rögnvaldur hefur haft með-
ferðis heim gagnrýni úr blöð-
um tveggja borga, Winnipeg og
Washington, en er gagnrýnin
birtist í blöðum hinna tveggja
borganna var hann farinn og
hefur hann enn ekki fengið
hana senda.
1 „The Evening Star“ í Wash
ington segir John Haskins m.a.:
„Rögnvaldur Sigurjónsson er
pfanóleikari, sem hefur sterk
tök á hljómborðinu og kom
það þegar í ljós í fantasfunni
eftir Schubert, sem var fyrsta
viöfangsefnið. Flutningurinn
var trúr f andanum — ef ekki
alltaf bókstafnum — f þessu
hefðbundna verki. Hann var
áhrifaríkur þótt listamaðurinn
varaði sig ei fyllilega á hinum
sérkennilega hljómburði salar-
ins . . . f sónatfnu Leifs Þór-
arinssonar var einkennilegur
skortur á samhengi, eins og tón
skáldinu hafi snúizt hugur f
miðjum klíðum, og þegar verk
inu lauk var spurningu ósvarað.
Höfundurinn er sagður fæddur
árið 1934 og er þvf ef til vill enn
á tilraunaskeiði.
Horfur á samstarfi Nennis og
Kristiiega iýðræðisflokksins
Á landsfundi jafnaðarmanna-
flokksins ítalska, sem kenndur
er við Pietro Nenni, hefur verið
samþykkt heimild honum til
handa um að hefja samkomu-
lagsumleitanir við Kristilega lýð
ræðisflokkinn um aðild að sam-
steypustjórn.
Með þessu er rudd brautin að
samstarfi um myndun stjórnar,
sem þannig nyti samstarfs rót-
tæks flokks, og fjarlægðist hin
íhaldssamari sjónarmið og sam-
starf í þá átt. Heimildin, sem
Nénni fékk, er bundin vissum
skilyrðum. — Það, sem kann að
skipta mestu máli þegar á reyn-
ir, er hversu traustur sá meiri-
hluti reynist, sem nú stendur
að baki Nenni f flokki hans, en
samþykkt heimildarinnar er tal-
in mikill sigur fyrir þessa gömlu
róttæku kempu.
Forsprakki þeirra manna f
flokki Nennis, sem vinveittir eru
kommúnistum, heitir Tullio Vec-
chietti, lýsti yfir í fyrradag, að
hann og aðrir, sem honum fylgja
myndu ekki setja sig upp á móti
samstarfi við Kristilega lýðræð-
isflokkinn, en það mætti ekki
setja það skilyrði, að hafa ekk-
ert samstarf við kommúnista, en
það er einmitt það sem hin f-
haldssamari öfl f Kristilega lýð-
ræðisflokknum vilja, að hundsa
þá algerlega.
Riccardo þombardi forsprakki
nokkurs hluta flokks Nennis,
var svo hreinskilinn að gera eft-
irfarandi játningu:
„Vér berjumst ekki bara fyrir
brauði. Oss þyrstir f völd“. Og
aukin völd vill hann fá — til
aukinnar þjóðnýtingar, en kristi-
legir þjóðernissinnar eru þar á
öndverðum meið. Kommúnistar
gripu orð Lombardi fegins hendi
og L’Unita birti frétt með fyrir-
sögninni: Lombardi á öndverð-
um meið við Nenni.
En Nenni fékk heimildina og
er nú beðið fregna um hvað
frekara gerist.