Vísir - 30.10.1963, Qupperneq 10
70
VÍSIR . Miðvikndagur 30. október 1963.
NæturSíf —
Framhald af bls. 4.
ið er svo troðfullt, að það er
engin leið að dansa. Fólkið
stendur bara og heldur hvort í
annað, og virðist vera hið á-
nægðasta með það.
Heim á leið-
Klukkan var að verða eitt, og
hljómsveitin var að leika síð-
asta lagið. Margir heitir, rjóðir
vangar komu saman úti á myrkv
uðu dansgólfinu.
Þar var margt hvíslað, en
hvað það var, er einkamál
hvers og eins. Þar sem ég læt
berast með þrönginni, kemst ég
ekki hjá þvf að heyra setningar
eins og:
— Ætlarðu með honum? Guð
hann er svo púkó. Og hálf-
feimnislegt: Er .., hérna ...
hm .má ég ... er ...
keyra þig heim? Það er búið
að loka barnum, og ekki allir
hressir yfir því. Ungi maðurinn
sem var að þylja yfir okkur
speki hinna forn snillinga,
virðist vera farinn að hafa
meiri áhuga á guðunum og
hrópar hástöfum á Bakkus.
Fyrr en varir stendur maður
svo einn eftir fyrir utan Borg-
ina, allir aðrir eru farnir heim,
og hvergi er líf að sjá. Það er
farið að rigna örlítið, og það
er þægilega svalandi að fá kalda
regndropana í andlitið, eftir
allan hitann, og læti kvöldsins.
Eins og vanalega þegar maður
þarf á að halda eru engir leigu-
bílar sjáanlegir, og því ekki um
annað að ræða en að ganga
heim. Ég labba af stað upp
Laugaveginn og fer mér rólega.
Einstaka teddyboy geysist fram
hjá á „tryllitæki", sem búið er
að taka hljóðkútinn undan, og
á einum stað eru piltur og
stúlka uppi á tröppum að tala
saman. Þau eru auðsjáanlega
ekki sammála um eitthvað, lík-
lega vill hann komast inn með
henni. Allt í einu snýr hann
sér við, og gengur burtu hröð-
um skrefum, auðsjáanlega móðg
aður. Hún stfgur nokkur skref
á eftir honum, en stanzar svo.
Ég brosi til hennar þegar ég
geng fram hjá, og hún brosir
á móti, og fitjar örlftið upp á
nefið. Ég labba áfram. Götu-
Ijósin speglast i votu malbikinu.
Unga stúlkan gengur hægt upp
tröppurnar og raular fyrir
munni sér. Ein hendingin berst
með golunni:
— Vertu sæll minn kæri ...
__________________ ótj.
Alm. bókaféi. —
Framhald af bls 7
Dulræn efni hafa mjög dregið
að sér hug íslenzkra lesenda að
undanförnu. Hjá AB er væntan-
leg f íslenzkri þýðingu bókin
„Det skjulte menneske" eftir
norska prófessorinn Harald
Schjelderup, sem talinn er einn
allra fremsti sálfræðingur
Evrópu. Þýðendur eru þeir
Gylfi Ásmundsson sálfræðingur
og Þór Jakobsson cand. mag.
Síðast en ekki sízt er svo að
geta Skáldverka Gunnars Gunn-
arssonar, tveggja siðustu bind-
anna, en þau voru að koma út
um þesar mundir. Er þar með
lokið 8 binda heildarútgáfu á
ritverkum þessa stórmerka rit-
• höfundar.
Allmargar bækur, auk þeirra,
sem hér hafa verið nefndar, eru
í undirbúningi hjá AB — og
kann svo að fara, að einhverjar
þeirra verði gefnar út fyrir
áramót. Útgáfustarfsemi félags-
ins er annars að því leyti ólík
útgáfu flestra annarra útgáfu-
fyrirtækja, að bækur þess koma
út sem næst jöfnum höndum
allt árið — en ekki svo til
eingöngu fyrir jólin.
Skóldrit —
Frh. af bls. 7:
jánsson cand. mag. færði f fs-
, lepzkan búning. Ritið er prýtt
mörgum myndum.
Ferðabók Jakobs H. Líndals
bónda og jarðfræðings á Lækj-
armóti. Dr. Sigurður Þórarins-
son sér um útgáfuna. Hefur að
geyma fjörlega samdar lýsingar
margra héraða á Norðurlandi
og víðar, einkum frá jarðfræði-
Iegu sjónarmiði.
I flokknum Smábækur Menn-
ingarsjóðs koma að þessu sinni
út þrjár bækur: Frönsk ljóð frá
19. og 20. öld, Jón Óskar ís-
lenzkaði, Císero ög samtíð hans
eftir dr. Jón Gíslason skóla-
stjóra og Vísnakver eftir Krist-
ján Ólason frá Húsavík.
Bílasala Guomundar
Mercedes Benz 190, árg. ’60. Volkswagen ’63, ekinn
4500 km. Dodge Veapon ’42, 11 manna. Fiat Mullipla
’58. Margskonar skipti.
BÍLASALA GUÐMUNDAR,
Bergþórugötu 3 . Símar 19032 og 20070.
— eigendur
Veitum bifreiðaeigendum aðstöðu
til viðgerða á bílum sínum. Einnig
þvott og hreinsun. Bifreiðaþjónust-
an, Súðavogi 9. Sími 37393.
Hreinsum vel og fljótt
Hreinsum allan fatnað — Sækjum — Sendum’
EFNALAUGDM LINDIN H.F., Skúlagötu 51, sími 1825
Hiafnarstræti 18, simi 18820.
Þ.JONSSON &CO?
BRAUTARHOLTI 6 - SÍMI19215'l
VENNA
- - I Vanir
í menn.
i Vönduð
vinna.
v Þægileg.
[ Fljótleg.
Teppa- og
húsgagnahreinsunin
Sími 34696 á daginn
Sími 38211 á kvöldin
og um helgar.
Vélhrein-
gerningar
ÞÆGILEG
KEMISK
VINNA
ÞÖRF. -
Sími 20836
Vélahreingern-
ing og húsgagna-
Vanir og vand-
virkir menn.
Fljótleg og
rifaleg vinna
ÞVEGILLINN.
Sfmi 34052.
^mNöLwm/iFwicj^y
<&
TWrrtuti ?
prentsmiöja & gúmmistimplagerð
Einholti 2 - Slrni 20960
Næturvakt i Reykjavik vikuna
26. okt. til 2. nóv. er i Reykjavík-
urapóteki.
Neyðarlæknir — sirni 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9,15-8, laugardaga
frá kl. 9,15-4. helgidaga frá kl
1-4 e.h. Sfmi 23100
Slysavarðstofan 1 Heilsuverna.
arstöðinni er opin allan sólar-
hringinn, næturlæknir á sama
stað klukkan 18—8. Sími 15030
Holtsapótek. Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7 laugardaga frá
kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4.
Lögreglan, sfmi 11166.
Slökkviliðið og sjúkrabifreiðin,
sími 11100
var
Miðvikudagur 30. október.
Fastir liðir eins og venjulega.
7.00 Morgunútvarp.
13.00 „Við vinnuna". Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum":
„Voðaskotið" eftir Karen
Blixen, II. (Hildur Kalman).
15.00 Síðdegisútvarp.
17.40 Framburðarkennsla í
dönsku og ensku.
18.00 Útvarpssaga barnanna.
20.00 Varnaðarorð: Guðmundur
Marteinsson rafmagnseftir-
litsstjóri varar við hættum
af rafmagni.
20.05 „Kátt er f Bæjaralandi":
Þýzkir listamenn syngja og
Ieika létt lög.
20.20 Kvöldvaka: a) Lestur forn-
ÞRIF. -
Sími 22824. *•
Bl'óðum
flett
Víða liggja vatnsgötur.
Vindur er torrænastur.
Ö1 er annar maður.
Eldur er viðar fúr.
Sæt er syndaást.
Svipul er sjóargjöf.
Létt falla lostverk.
Langur er kóngs morgunn.
(Ljúflingsdilla).
Haustið 1807 tók að bera á
reimleikum að Garpsdal vestra.
Nótt eina var skálahurð brotin,
og litlu síðar bátur niður við sjó,
sem prestur átti; gerðist það um
hábjartan dag og heyrðust höggin
heim að bæ, en engin var sjá-
anlegur í námunda við bátinn.
Skömmu síðar voru brotnar íjór-
ar fjárhússhurðir, einnig í björtu,
en þó keyrði um þverbak, þegar
kom fram í nóvember, því að þá
var brotið þilið frá vefarahúsinu
á baðstofugólfinu, þá þrír gluggar
á baðstofunni, en litlu síðar lék
þar allt á reiðiskjálfi og frammi
f göngum var allt lauslegt á lofti,
hurðir, spýtur og húsgögn, og
flýði þá prestur með fólk sitt til
næsta bæjar f bili. Það þóttust
menn vita, að kvendraugur mundi
að þessum býsnum valdur.
7
•* ... að þvf sé 25 ára afmælis
!■ umskiptingsins svo hátíðlega
•I minnzt, að svo hafi ákveðið hans
!j aðstandendur, að það skuli um
!• Ieið verða erfi hans ...
GOLFTEPPA
og
HÚSGAGNA
HREÍNSUN H.F
SÍMI 3310J
Kaffitár
... nei, elskan mín góða, hún
er nú ekki aldeilis heima, frúin
á efri hæðinni... tók sér far með
flugvél til Parísar, til þess að
kaupa klofhá kuldastígvél á sig
og dótturina, fyrst að fresta varð
fermingarveizlunni þar, og öllu
því tilstandi. .
Strætis-
vagnhnob
Sá er valdi Þjórsárdal
hið þorstamikla heiti,
það leynir sér ekki,
að hann vissi hvað hann söng.
Þjór og slark frá öndverðu
var þar á næsta leiti,
þó að nú sé önnur öld, en þegar
Gaukur bjó í Stöng.
Og munur hvernig atburðunum
haldið er til -haga —
á hans tíð varð allt þess háttar
íslendingasaga ...
Tóbaks
korn
... já, ekki ber á öðru, en að
hann sómi sér sæmilega í blað-
inu, verðlaunadorrinn... já, í
sama blaðinu og fegurðardrottn-
ingin á þeim klofháu ... og hall-
ast bara hreint ekki á, nei-óekkí.
Eina
sneið
... þá er hin svonefnda vetrar-
dagskrá útvarpsins hafin, eftir að
hafa — að sjálfsögðu — verið
boðuð og tilkynnt á viðeigandi
hátt, þar sem meðal annars var
fyrirfram yfirlýst að hún hefði
aldrei verið V :tri en hún yrði nú,
og bar auðvitað nauðsyn til að
taka það fram, því að annars er
hætt við, að það kynni að hafa
farið framhjá einhverjum ... eitt
af frægustu nýmælunum i sam-
bandi við hana er það, að hún
hefur verið lengd nokkuð f báða
enda, þannig að nú fellur enn
meiri hluti hennar en áður á þann
tíma þegar enginn hlustar ... er
þetta allmerkilegt nýmæli og
meira að segja spurning, hvort
forráðamenn útvarpsstarfsemi í (
landinu séu þar ekki loks búnir
að finna hina réttu leið, og að
þeir ættu smám saman að ganga
þar lengra, unz öll dagskrá hef-
ur verið flutt yfir á þann tlma
sólarhringsins ... yrði þá að hafa
það, þó að almenningur kynni
að hafa þyngri drauma en ella,
því að mestu varðar að mönnum
líði þó sómasamlega í vökunni...
'•rKtíjEsaassEa:.1 _ ':sriES3E. - ’iæsaíC:ss2wtBíSSSiaíb.-ii