Vísir - 30.10.1963, Side 11
% % % STJÖRNUSPÁ #
rita: Hrafnkels saga Freys-
goða, 1. (Helgi Hjörvar). b)
Tryggvi Tryggvason og fé-
lagar hans syngja alþýðu-
lög. c) Gunnar Benediktsson
rithöfundur flytur fyrri
hluta erindis um Starkað
Stórverksson. d) Þórður
Tómasson fiytur frásögu-
þátt „Bæjarstæðin þrjú í
Hjörleifshöfða“ eftir Kjart-
an Leif Markússon frá Suð-
ur-Hvammi.
21.45 Islenzkt mál (Dr. Jakob
Benediktsson).
22.10 Lög unga fólksins (Bergur
Guðnason).
23.00 Bridgeþátur (Stefán
Guðjohnsen).
23.25 Dagskrárlok.
Sjónvarpið
Miðvikudagur 30. október.
17.00 I’ve Got A Secret
17.30 Sea Hunt
18.00 Afrts News
18.15 Air Power
18.30 True Adventure
19.00 Communism: Myth V
Reality
19.30 Global Zobel
19.55Afrts News Extra
20.00 Bonanza.
21.00 Hootenanny
21.30 The Joey Bishop Show
22.00 Fight Of The Week
22.55 Afrts Final Edition News
23.00 The Steve Allen Show
Áheit og gjafir
Áheit, Strandakirkja, frá K.G.
kr. 50.00.
Tilkynning
Neskirkja. — Fermingarbörn,
mætið í kirkjunni f dag
30. okt. ki. 5. Sóknarprestur.
Árnað heilla
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Árelíusi Níels-
syni, ungfrú Ragnheiður Ólafs-
dóttir og Sölvi Pálsson. Heimili
þeirra verður að Tjarnarbraut 27.
(Ljósm. Studio Guðmundar).
Ymislegt
Börn,' sem seldu merki Barna-
verndardagsins og ekki náðu að
skila á laugardag skili hið fyrsta
til Sálfræðideildar skóla Tjarnar-
götu 12 eða til Matthíasar Jónas-
sonar Háskólanum.
Bazar
Kvenfélag Laugarnessóknar. —
Kvenfélagið heldur bazar laugar-
daginn 9. nóvember. Félagskonur
og aorir velunnarar félagsins ge:i
svo vel að hafa samband yið:
Ástu Jónsdöttur í síma 32060, Jó-
hönnu Gísladóttur í síma 34171
eða Sigríði Ásmundsdóttur í síma
34544.
Spáin gildir fyrir fimmtudag-
inn 31. okt.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Verkin tala sínu máli um
mannkosti gerandans. Þú ættir
að gera áætlanir, sem miðuðu
að því að tryggja meira öryggi
ur en ríkt hefur til skamms
tíma.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Straumarnir á sviði hinna róm-
antísku mála eru þungir núna
og gætu jafnvel leitt til ein-
hverra leyndra sambanda. Þú
ættir að gæta þess að halda þig
utan við þetta.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júní. Þér kynni að líka vel að
fá heimsókn, sérstaklega ef þú
hefur nýverið tekið til þannig
að allt Ifti vel út hjá þér. Þú
ættir að afla þér vina á vinnu-
stað.
Krabbinn, 22. júni til 23. júlí:
Þú hefur allmikinn áhuga á því,
sem betur má fara í fari þínu og
annarra 1 dag. Það gæti einnig
komið vel heim við atvinnu
þína.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Útkomaft á hlutunum gæti orð-
ið þess valdandi að þér bjóð-
ist fleiri tækifæri til að verja
meiru af tíma þínum til fram-
tíðaráætlana. Hugsaðu allt út
í yztu æsar.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Því meiri athygli, sem þér tekst
að vekja á fyrirætlunum þínum,
þeim mun auðveldara muntu
eiga með að koma þeim í fram-
kvæmd. Sneiddu samt hjá þeim,
sem á móti þér eru.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Það kann að vera fyrir hendi
mjög heppileg leið fyrir nána
félaga til að auka gróðamögu-
leika sfna. Ef þú lumar á ein-
hverri góðri hugmynd, þá kann
tækifærið til að færa sér hana
í nyt að vera skammt undan.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Vilji þinn til að gera vinum og
kunningjum greiða kann að
verða þeginn með þökkum í
dag. Láttu þér eins umhugað
um maka þinn eða náinn félaga.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Þú gætir lagt þig allan
fram til framgangs málefnis,
sem er í samræmi við æðstu
hugsjónir þínar. Það er oft upp-
lýsandi að kafa í leyndardóma
sjálfs lífsins.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Hugsanir þfnar kunna að
vera talsvert á reiki í dag og
annars staðar en við vinnuna
eða þar, sem þær ættu að vera.
Þú ættir að ráðgera þátttöku
í námskeiði eða afla þér góðra
bóka.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Ágóðaskýrslur eða góðar
fréttir ættu að hafa mjög góð
áhrif á geðsmunina og þú gætir
breytt áætlunum þfnum í sam-
ræmi við það. Þú veizt að allt
tekur sinn tfma.
Fiskamir, 20. febr. til 20.
marz: Hafðu samband við þá
sem eru snjallir við að gefa þér
góð ráð varðandi framtiðina.
Það eru margar dýrmætar til-
lögur, sem þeir gætu boðið þér.
Kalli
%
kóng-
urinn
Libertínus konungur í Libertas
kallaði þegna sína til fundar við
sig, og þeir yfirgáfu fúslega skjól
sitt milli trjánna, til þess að
hlaupa inn í hlýja, þurra höllina.
Landar, sagði Libertínus, þegar
allir voru mættir. Það er eitt sem
okkur litla ríki vanhagar um.
Löggjöf, hrópaði Frikki með
vonarglampa f augunum. Kóng-
urinn stirðnaði upp. Vissulega
ekki, sagði hann móðgaður. Nei,
það er hirð. Konungshöll án hirð-
ar er engin raunveruleg konungs-
höll. Þess vegna ætla ég að út-
nefna ykkur þegna mína sem
hirðmenn.
Húrra, hrópaði Kalli glaður, þá
þurfum við þó ekki að hýrast úti
í kuldanum og rigningunni. öll-
um viðstöddum til mikillar undr-
unar, útnefndi kóngurinn stýri-
manninn til hofmeistara.
E, yðar hátign, mótmælti
Frikki. Hef ég ekki alltaf verið
góður hofmeistari? Og hvers
vegna skipið þér þennan einfalda
sjómann í minn stað?
Einfalda? sagði kóngurinn. Já,
það er einmitt rétta lýsingin á
honum. Og það er Iíka einmitt
þess vegna, sem ég skipa hann í
þetta embætti. Hann kemur ekki
til með að vera alltaf að þrasa í
mér, eins og þér, Friðrik. Hann
kemur til með að þegja nema
þegar ég vil að hann tali.
Þorpararnir aka af stað í gegn-
um hina þéttu Lundúnaþoku.
— Hvernig líður vini okkar í
aftursætinu? spyr sá sem ekur.
Hinn lftur aftur og segir hlæj-
andi: — Ef við hefðum slegið
hann aðeins betur út, þá hefðum
við slegið hann út í geiminn. En
Rip er harðjaxl hinn mesti, og
rumskar því fljótlega. Hann hefur
áhuga á að borga fylgdarmönn-
um sínum fyrir ökuferðina, en er
ennþá of máttfarinn til þess að
treysta sér til að slást við þá
báða. Hann tekur því einn skyrtu
hnapp sinn og byrjar að fikta við
sígarettukveikjarann.
FRÆGT FÚUÍ
I V-Þýzkalandi fer nú hljóm
plata með gamanvfsu um tvo
fræga Þjóðverja, ein-s og eldur
' sinu um allt og herur hún
þegar náð óhemju vinsældum
og selst í 100 þús. eintökum.
Vísa þessi var sungin á
kabarett í Bonn og fjallar hún
urn þegar Adenauer lætur af
embætti kanslara og Erhard
tekur við því. Heitir platan
„Lass doch mal den Dicke an“,
eða „Leyfðu nú þeirn feita að
komast að“. —
Hinn þekkti hljómplötuútgef
■" andi Hans R. Beierlain sá
■I strax í hendi sér að vísan
■; myndi ná miklum vinsældum
I; og gaf hana út á hljómplötu,
;■ sem eins og fyrr segir hefur
‘l selzt f 100 þúsund eintökum.
■: Hinum megin á plötunni er
■: hrífandi kveðjuljóð til Adenau
,'| ers: „Good bye alter Hauptling,
:■ good bye“.
í Og sá feiti, Erhardt lætur
■J sér þetta vel lynda.
'v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.1
Blöð og tímarit
Freyr er nýkominn út fjölbreytt
ur að efni. Þar eru Félagstíðindi
stéttarsamb. bænda aðalefni: að-
alfundur sambandsins 1963. —
Margt annað efni er f ritinu, m.
a. um reynsluh/i, sem Búnaðar-
félag íslands hefur samið um við
hjónin á Hulduhólum í Mosfells-
sveit, að hafa um komandi ár.
Mikið er af myndum í heftinu og
frágangur allur ágætur.
B E L L A
Ég hef því miður gleymt öku-
skírteininu mínu heima. Hoppaðn
bara upp f, og þá getum við bara
skroppið eftir því.