Vísir - 17.04.1964, Síða 1
Á stærri myndinni sjást gilskomingar og gljúfur, sem myndazt
hafa á norðaustanverðri Surtsey, í námunda við stóra
Á þeirri minni sést Ósvaldur Knudsen virða hraungfginn fyrir
sér. (Ljósm. dr. Sigurður Þórarinsson).
Könnunarferð vísindamanna um SURTSEY
Dragnótin sízt hættulegrí en önnur veiBurfærí
í gær gekk hópur nianna á
land í Surtsey, gekk um eyna
þvera og endilanga og dvaldist
þar talsvert fram eftir degi.
í leiðangrinum voru fjórir
jarðfræðingar, þeir dr. Sigurð-
ur Þórarinsson, Guðmundur
■Kjartansson, dr. Þorleifur Ein-
arsson og Richard Doeil frá
Bandaríkjunum. í förinni voru
ennfremur Hjálmar Bárðarson
skipaskoðunarstjóri og Ósvald-
ur Knudsen kvikmyndatökumað
ur.
— Við'fórum með m.s. Gull-
fossi frá Reykjavík til Vest-
mannaeyja, sagði dr. Sigurður
Þórarinsson í stutty viðtali við
Vísi í morgun. — 1 Vestmanna
eyjum tók Landhelgisgæzlan við
okkur á eitt varðskipanna. Þeg
ar út að Surtsey kom á 11. tím-
anum fyrir hádegi, vorum við
fyrst fluttir frá skipshlið f vél-
báti, en síðasta spölinn fórum
Framh. á bls. 6
Rannsóknir Jóns Jónssonnr fiskifræðings sýna að drag-
t 1
nófaveiðarnar eru ekki skaðlegar fyrir fiskstofninn
Jón Jónsson fiskifræðingur
birtir í síðasta hefti Ægis ýtar-
lega greinargerð um rannsókn-
ir þær, sem fram hafa farið að
undanförnu á áhrifum dragnóta-
veiði á fiskstofninn.
Hann kemst að þeirri niður-
eyn
Bls. 3 Myndsjá um starfs-
fræðsludag á Akur-
4 Samtal við ungt Ijóð
skáld, Böðvar Guð-
mundsson.
7 Önnur grein um safn
lögfræðibóka.
8 Aðstoð Breta við
þróunarlöndin.
9 Föstudagsgrein um
MacArthur.
stöðu, að ekkert það hafi komið
fram í viðbrögðum þorsks og
ýsustofnanna gagnvart dragnóta
veiðinni, er bendi tii, að þeim sé
meiri hætta búin af þessari veiði
aðferð en öðrum veiðum.
— Við verðum að nýta þessa
fiskstofna svo sem þeir framast
þola, segir Jón Jónsson. — Við
höfum ekki ráð á þvf að láta
fiskinn verða ellidauðan, eða
lenda í höndum útlendinga, af
því að við tökum hann ekki sjálf
ir.
Jón Jónsson bendir á það, að
sóknin í fiskstofna okkar er í
dag á engan hátt sambærileg við
það sem var áður en landhelg-
in var færð út og úttendir togar
ar stunduðu veiðar inn að þrem-
ur mílum.
Hann upplýsir samkvæmt
rannsóknum að sáralítið af smá
fiski kemur í dragnótina, enda
er möskvastærð nótarinnar 110
millimetrar, sem er gert einmitt
til þess að vernda ungviðið. Er
aðeins um 1% af aflanum þorsk
ur undir 45 cm. Árið 1960 var
meðallengd þorsksins í dragnót
74 cm. en 86 cm. árið 1961. Ár-
ið 1963 komu 57% dragnótar-
aflans frá hinum sterka árgangi
frá 1960 og var meðallengd 57
cm.
Um ýsuna er það einnig að
segja að svo til ekkert fæst af
henni 1 dragnót undir 40 cm.
Langmest af ýsunni eða rúmlega
90% er yfir 50 cm. Árið 1960
og 1961 byggðust um 75% veið-
innar á hinum sterka . árgangi
frá 1956. Hann var 51 cm. árið
1960 og 54 cm. árið 1961. Árið
1963 voru 47% aflans af árgang
inum frá 1957 og var meðal-
lengd hans um 56 cm.
Þessi samanburður segir Jón
Jónsson að sýni, að dragnótin
sé ekki hættulegri fyrir smá-
Framh. á bls. 6
SMAFLUGID GETUR VER-
IÐ TVÍEGGJAD V0PN
— segir Örn 0. Johnson, framkvæmdastjóri Flugfélagsins
í gær sagði Örn O. Johnson,
frkv.stjóri Flugfélags íslands, frá
starfsemi félagsins nú í sumar, en
hún er talsvert umfangsmeiri nú en
áður, einkum þó hvað tekur til
millilandaflugsins.
Örn sagði frá breytingum innan
starfsliðs FÍ, en þær stærstu eru,
að Birgir Þorgilsson tekur við yfir-
stjórn millilandaflugsins, en Einar
Helgason verður stöðvarstjóri í
Reykjavík. Sagði Örn, að innan-
lands- og millilandaflug yrðu nú
ekki jafn aðskilin og fyrr, og mundi
Birgir þannig sjá um sölustarfsem-
ina og ýmislegt varðandi hana, en
Einar mundi hafa umsjón með far-
þegum og þjónustu við þá.
Örn sagði frá merkri útgáfustarf-
semi FÍ á bæklingum, sem fjalla
um ýmislegt úr íslenzku náttúrulifi,
fuglalíf, hesta, gróður o. s. frv. Eru
þetta litlir bæklingar ritaðir af
fræðimönnum og eru gefnir út á
fjölmörgum tungumálum og dreift
víða um lönd. Birgir Þorgilsson
kvað bæklinga þessa gefna út að
ráði fulltrúa Fí erlendis, sem hafi
séð gagnsemi slíkra bæklinga, og
Framh. á bls. 6