Vísir - 16.02.1965, Síða 1
vism
- Þriðiudagur 16. febrúar 1965. - 39. tbl
UNESCOstyrkurtil Ijósprent
unar handrita?
Vísir frétti í morgun frá málaráðuneytið hefði sótt um
París, að íslenzka mennta- styrk hjá UNESCO til Ijós-
VECBANN SETT Á NORDURLANDS
VEG OG VÍÐAR í MORGUN
Vegbann er nú skollið á að nýju
og gilda um það sömu reglur og
Vegagerð ríkisins setti á dögunum
þegar þíðviðrið og þungaflutn-
amir fóru sem verst með vegina.
Nú hefur færzt í sama horfið, og
í morgun var sett eftirlit á vegina
á nýjan leik.
Svo sem Vísir hefur áður skýrt
frá eru vegir víða mjög illa farn
ir eftir þíðviðrið framan af þess-
um mánuði. — Og sum-
ir vegir voru í þann veginn að
teppast sökum klakahlaups og for-
aðs. Einna verst var þó Norður-
landsvegurinn leikinn á köflum
og eins vegir á Snæfellsnesi. En
með hríðarkastinu í sl. viku frusu
vegimir snöggvast og þá var bann
inu aflétt.
Nú hefur sótt alveg í sama horf
að nýju. Vegirnir fletjast út og þá
myndast illfær eða ófær klaka
hlaup og nú hefur Vegagerðin tak
markað þungaflutninga um Norð
urlandsveg alla leiðina milli Reykja
víkur og Húsavfkur, áður náðu
mörkin aðeins á milli Reykjavíkur
og Akureyrar. Hér er sú breyting
þó á frá því sem áður var að veg
urinry um Skagafjörð er með öllu
lokaður öðrum bílum en jeppum.
Það eru því einu bílarnir sem hafa
möguleika á að komast frá norð-
anverðu Norðuriandi og hingað
suður. Þessar ráðstafanir varð að
vera með hliðsjón af því hve vegir
I Skagafirði voru illa farnir eftir
bleytuna.
Þungatakmörk hafa einnig verið
sett á vegi á Snæfellsnesi enda eru 1 ir, víða runnið úr þeim og annars
þeir mjög illa famir. • staðar komin £ þá meira og minna
Að því er Hjörleifur Ólafsson slæm hvörf. Þó eru vegir hér á
hjá Vegagerð ríkisins tjáði Vísi £ Suðuriandi eitthvað sterkari en á
morgun era vegir hvarvetna blautl Framh. á bls. 6
myndunar á íslenzkum hand-
ritum í erlendum söfnum og
væri í athugun að veita 10
þús. dollara styrk til þess.
Birgir Thorlacius, ráðuneyt
isstjóri menntamálaráðuneyt
isins, staðfesti í viðtali við
Vísi í morgun, að sótt hefði
verið um styrk til þessa. Um-
sóknin var send í nóvember
til Unesco Participation Pro-
gram, sem er einn af sjóðum
UNESCO. Sótt var um styrk í
tvennu lagi. í fyrsta lagi til
að kosta mann til að kynna
sér varðveizlu fornra hand-
rita og semja lista um öll ís-
lenzk handrit utan íslands. 1
öðru lagi til að kosta ljós-
myndun handrita, sem ekki
er líklegt, að komi til íslands.
Ákveðin fjárupphæð var ekki
nefnd í umsókninni. Ákvörð-
Framh.' á bls. 6
SIGLDIBEINT
Á VITANN
1 nótt klukkan 12,30 strand-
aði brezki togarinn Peter Chen-
ey frá Huli rétt við Oddeyrar-
vitann, sem er staðsettur syðst
og austast á Oddeyri. Togarinn^
var um 200 metra fyrir norðan
venjulega siglingaleið, þegar ó-
happið vildi til.
Að þvi er Þorsteinn Stefáns-
son hafnarvörður á Akureyri
sagði fréttaritara Visis er þetta
með öllu óskiljanlegt, og ekki
annað að sjá en enginn hafi
verið við stýrið, þvi skipið hafi
siglt svo til beint á vitann.
Þegar óhappið vildi til var
allhvasst, en tunglskin og heið-
skírt. Á fjörunni I nótt hallað-
ist skipið mikið og yfirgáfu þá
flestir skipverjar skipið með
fiskibát, sem kom þarna að.
í b'irtingu í morgun kom
Grimsbytogarinn Lancella, sem
er á Akureyri til viðgerðar, vír
út í Peter Cheney og náði hon-
um út á flóðinu laust fyrir klukk
an 10 í morgun.
Botninn á strandstaðnum er
mjúkur og er því ekki talið að
um neinar verulegar skemmdir
geti verið að ræða.
jf
fleÍÍi 1 <
BLAÐIÐ ! DAG
-<í>
m. msmBim * mSi*
Karl Birger Blomdahl, sænska tónskáldið, sem hlaut norrænu tónlistarverðlaunin að þessu
sinni, er hingað kominn til að veita þeim viðtöku, en þau verða, ásamt bókmenntaverðlaun-
unum, afhent í lok fundar Norðurlandaráðsins. Hér á myndinni sést K. B. Blomdahl á tali
við listbróður sinn, Jón Leifs.
Tímabær viðurkenning á tónlistinni
i' m r m r
— Segir Blomdahl i viðtali við Visi um verðlaunaveitingu Norðurlandaráðs
Sænska tónskáldið Karl Birg-
er Blomdahl hlaut norrænu tón-
listarverðlaunin að þessu sinni,
eins og kunnugt er. Kom hann
hingað til lands s.l. sunnudag
til að veita þeim viðtöku, en
þau verða afhent í lok fundar
Norðurlandaráðsins, ásamt bók-
menntaverðlaununum. — Blaðið
átti af því tilefni stutt viðtal
við tónskáldið og spurði hann
meðal annars um álit hans á
þessari verðlaunaveitingu al-
mennt.
Ég tel tónlistarverðlaunin á-
kaflega þýðingarmikil sem slík,
sagði K. B. Blomdahl. Norrænu
bókmenntaverðlaunin eru að
sjálfsögðu þýðingarmikil, en
þáttur bókmenntanna í norrænu
og samnorrænu menningarlífi er
öllum augljós og þess vegna
eðlilegt að allur almenningur
liti á þau sem sjálfsögð. Um
tónlistina gegnir öðru máli; þýð-
ing hennar fyrir samnorræna
menningu er almenningi siður
augljós, og þess vegna eru þessi
verðlaun þörf og timabær viður-
kenning á gildi hennar i þvi
sambandi. Að mínu áliti er þátt-
ur tónlistarinnar hliðstæður
þætti bókmenntanna í sköpun
sameiginleg-a menningarverð-
mæta, Og þó að þáttur hennar
sé óhlutlægari, er hann senni-
lega öllu aðgengilegri, þar sem
hann er ekki háður ólíkum tung-
um.
— Hvað segið þér um nor-
ræna nútímatónlist?
Að svo miklu leyti, sem ég
þekki til er nú mikillgróska í
norrænu tónlistarlifi. Síðan sið-
ari heimsstyrjöldinni lauk, hef-
ur þróun'in þar verið ákaflega
jákvæð; merkilegir hlutir gerzt
Framh. á bls. G
— 7
— 9
3 Þær brasa, baka,
sauma og vefa.
Norðurlandaráðs
fundur.
Vestmannaeyjar —
bær mikilla fram-
kvæmda.
11 Helming tímans í
strætisvagni, helm-
ingurinn í leikfimi
sal KR
i
Dauðaleit að þrem 9 ára drengþm
á Siglufjarðarljöllum í alla nótt
i
. gærkvöldi og nótt var víð-
tæk leit gerð út frá Siglufjarð-
arkai stað að þrem drengjum,
sem fóru heimanað frá sér í
gærdag og ætluðu sér til
skemmtunar upp i Hvanneyrar-
skál, sem er rétt ofan við bæ-
inn.
Þessir ungu drengir voru ailir
jafnaldrar níu ára gamlir, og
lögðu þeir heimanað frá sér um
hádegisleytið.
Um kvöldmatarleytið voru
þeir enn ókomnir heim og eng-
ar frétt’ir af þeim höfðu borizt.
Þá var dimmt orðið fyrir nokkru
en veður annars gott og hlýtt,
um 13 stiga hiti og auk þess
tunglsljós.
Sneru aðstandendur drengj-
anna sér þá til lögreglunnar og
báðu um að hún skipulegði leit.
Lögreglan leitaði aðstoðar skáta
og slysavarnadeildarinnar á
staðnum og innan stundar var
20 manna hópur lagður af stað
með talstöðvar, ljós og hvers
konar annan útbúnað.
Nokkru eftir að leitarflokkur-
inn var lagður af stað kom einn
drengjanna heim til sín, þá orð-
Franih. á bls. 6