Vísir - 16.02.1965, Side 6
1 6_________________________________
frjiiunmiM'iiH 111 w^wr-vifSLeEaaBasgBBgas
Norðurflug —
s
Framhald af bls. 16.
flug upp á síðkastið, en það
er aðallega að sækja sjúklinga
eða slasað fólk út í dreifbýlið
og flytja það til Akureyrar og
stundum til Reykjavíkur. Áætl
unarflug hef ég ekki ennþá
nema til Grímseyjar, en hug
myndin er að taka upp um
fangsmeira áætlunarflug með
Akureyri sem miðstöð.
— Þíi álítur þá að áætlunar
flug til dreifbýlisins geti borg
að sig?
— Ég er sannfærður urn að
til margra staða getur það
borgað sig, ef rétt og skynsam
lega er á málum haldið og hag
kvæmar vélar ’notaðar,
— Hvernig hefur gengið mtð
nýju Beechcraft véiarnar, sem
þú keyptir í Bandaríkjunum í
fyrra?
— Eftir nauðsynlegar breyt-
ingar og lagfæringar var fyrri
vélin tekin í notkun sl. haust.
Hún fékk þá lofthæfnisskír
teini til tveggja mánaða, en
venjan er að gefa slík skfr-
teini ttl 1 árs í senn. Á þessu
tveggja mánaða tímabili reynd
ist vélin prýðilega eins og til
var ætlazt m.a. flutti ég einu
sinni í sömu ferð tvo slasaða
menn í sjúkrakörfum, en það
er ekkj hægt í minni vélinni,
sem aðeins rúmar eina körfu.
í desemberbyrjun féll loft-
hæfnisskírteihið úr gildi og
þrátt fyrir ítrekaðar umsóknir
hefur ekki fengizt framlenging
á því.
— Hvaða ástæðu gefa flug
málayflrvöldin fyrir synjun
imri?
— Þá að ekkert fiugskýli sé
á Akureyrarflugvelli fyrir vél
ina.
— Eru skýli til yfir allan
flugvélakostinn sem gerður er
tSt frá Reykjavík?
— Nei.
— Eru vonir til að byggt
verði flugskýli við Akureyrar
flugvöll á næstunni?
— Já, — Flugmálastjórnin
hefur unnið að þvf, að stórt og
vandað skýli verði byggt á
þessu ári og standa vonir til að
það komist upp fyrir næsta
vetur. Gert er ráð fyrir að
Norðurflug fái þar inni fyrir
alla sfna starfsemi í framtfð-
inni. Og félaginu gert kleift að
veita fullkomnari og betri þjón
ustu við dreifbýlið, og þá fyrst
og fremst við Norður- og Aust
urland.
— Viltu segja mér eitthvað
SKIPAFRÉTTIR
SKlPAÚTGeRÐ RIKISINS j
Ms. Esjo
fer vestur um land í hringferð 18.
þ. m. Vörumóttaka í dag og árdeg-
is á morgun til Patreksfjarðar,
Sveinseyrar, Bíldudals, Þingeyrar,
Flateyrar, Suðureyrar. Isafjarðar,
Siglufjarðar, Akureyrar, Húsavík-
ur og Raufarhafnar. Farseðlar seld
'T á mið ikudag
AAs. Herdubreið
fer austur um land í hringferð 20.
b.m. Vörumóttaka í dag og á morg
up til Djúpavogs, Breiðdalsvíkur,
Stöðvaffjarðar, Mjóafjarðar, Borg-
irfjarðar, Vopnafjarðar, Bakka-
fiarðar, Þórshafnar og Kópaskers
Farseðiar seldir á föstudag.
^ls. Herjólfur
fer á miðvikudag til Vestmanna-
eyja og Homafjarðar. Vörumót-
fska tii Homafjarðar í dag.
um útbúnað B.C. vélanna?
— Þetta em bandarískar vél
ar. eins og áður hefur komið
fram, en Bandaríkjamenn eru
í dag langfremstir í heiminum
í flugvélaiðnaði, svo að jafnvel
Bretar nota nú orðið mestmegn
is amerískar flugvélar, af
minni gerðunum og einnig stór
um þotum. B.C. vélarnar eru
útbúnar með öllum venjulegum
blindflugstækjum, fullkomnum
isvarnartækjum á vængjum og
skrúfum, þær eru hraðfleygar
af svo litlum vélum að vera,
hafa yfir 200 mflna hámarks
hraða á klst., en geta samt not
að ótrúlega stutta velli, eða
næsum alla sjúkravelli á land
inu.. Þær eru á stórum hjólum
og geta því lent á mjúkum sand
völlum. Hreyflar þeirra eru ein
hverjir beztu stjörnuhreyflar
sem völ er á í heiminum í dag.
Af þessari tegund hafa verið
smíðaðar um 10 þúsund vélar
og eru enn í framleiðslu. Það
er aðeins ein tegund farþega
flugvéla, sem getur státað af
meiri framleiðslu, en það er
DC-3, eða Dougiasinn, sem all
ir landsmenn þekkja. Hún var
framleidd svo tugum þúsunda
skipti á stríðsárunum. en ekk
ert síðan.
— Hve lengi reiknar þú með
að B.C. vélarnar endist hjá þér?
— Hugmyndin er að þær end
ist fram undir 1970 og að þá
eignist Norðurflug sína fyrstu
skrúfuþotu og síðar verði allar
vélar félagsins skrúfuþotur
nema kennsluvélar.
— Hvernig hefur svo rekstur
inn gengið hjá þér?
— Prýðilega fyrir utan það,
sem áður er sagt.
— Að lokum ein samvizku
spurning. Ég veit, að þú hefur
stundum flogið hér norðan-
lands þegar engri vél hefur ver
ið fært frá Reykjavík vegna veð
urs. Hvað mundir þú gera við
slíkar aðstæður ef þú væri kall
aður í árfðandi sjúkraflug, en
treystir þér ekkj á minrii vét
inni, t.d. vegna ísingar? Mundir
þú fara á stærri vélinni án þess
að hafa pappírana í lagi?
— Svona spurningu er að
sjálfsögðu nær ógerningur að
svara, en hvað mundir þú sjálf
ur gera, mundir þú ekki bjarga
drukknandi manni af því að
það væri sunnudagur? — S. Bj.
15% tollur —
Framhald af bls. 5.
Hann sagði. að sömu hættur
væru enn nálægar og í nóvem-
ber, er Bretland varð að lána
3000 milljónir dollara hjá erlend
um bönkum til þess að treysta
gengi sterlingspundsins (það lán
var framlengt fyrir skemmstu)
— það þyrfti að auka fram-
leiðslu og útflutning og draga
úr allri eyðslu — kaupa ekki
annað þar og flytja inn en efni
væru til að kaupa fyrir. Banka-
stjórinn lagði sérstaka áherzlu á,
að ef hættunum væri ekki af-
stýrt, væru hin góðu lífskjör,
sem þjóðin á nú við að búa, í
hættu — afleiðingar efnahagsörð
ugleikanna myndu bitna á hverri
einustu fjölskyldu í landinu.
Nýr fóni —
Framhald af bls. 16.
Kanada. Það er f skjaldarmerkj-
um nokkurra ríkja Kanada og f
einu horni gamla fánans.
Kanadastjórn samþykkti þenn
an fána 1 desember í vetur. Nú
hefur Elísabet II., drottning
Kanada, fallizt á hinn nýja fána
og var hann formlega tekinn í
notkun á hádegi í gær.
Veiðí Eyjobóta -
Framhald af bls. 16.
seinni gangan sé nærri eingöngu
hængur, sem þykir gefast mjög
vel í beitu.
Á iaugardaginn fékk Fiskiðj-
an 28 tonn af fiski, 80 tonn á
suijnudaginn og 53 tonn í gær.
Samsvarandi tölur hjá Isfélaginu
eru 21 tonn, 53 tonn og 20 tonn,
og hjá Vinnslustöðinn'i 20 tonn,
49 tonn og 42,5 tonn. Netabát-
arnir fá allt að níu tonna afla.
Þrír bátar hafa tekið upp
þorskanót, en hafa ekki fengið
mikinn afla. Kristbjörg fékk 5,5
lestir, Marz 6,3 og Gulltoppur
5,9 lestir. Mest er þetta ýsa.
Síðastliðna tvo daga hafa ekki
allir bátar farið út. Loðnubát-
arnir fara þó alltaf út. Heimabát
arnir eru nú allir bún'ir að skipta
af síldinni yfir í troli, net eða
nætur og taka þeir flestir nót-
ina. Eru þessi skipti óvenju
snemma og fylgja þau loðnu-
göngunni, sem var um tveim
vikum fyrr á ferðinni en venju-
lega. — Fréttaritari.
Danskeppni —
Framhald af bls. 16.
landamótinu. íslenzku keppend
umir heita Svana Stefáns-
dóttir og Þór Bragason og Krist
ín Magnúsdóttir og Geir Gunn
laugsson. Þau voru raunar held
ur óheppin, því það kom í Ijós
að piltamir voru heldur of gaml
ir til að vera í yngri flokknum,
flokki 11-13 ára og lentu þau
því í flokki 14 og 15 ára.
Meðal áhorfenda sagði Ragn-
ar að hefðu verið tveir gamlir
neniendur sínir, en það voru
þau Friðjón Ástráðsson, skrif-
stofustjóri hjá Eimskip í Höfn
og frú Elín kona hans ásamt
dóttur þeirra. Voru þau allan
tímann í danshöllinni og voru
mjög ánægð með þátt okkar
unga fólks.
Vegir ófærir —
Framh. af bls. 1.
Norðuriandsleið eða Snæfellsnesi
og þar þykir ekki, enn sem komið
er ástæða til að setja takmarkanir
um þungaflutninga. Taldi Hjörleif
ur að viðsjárvert væri fyrir litla
bíia að vera mikið á ferð úti á
landsbyggðinni eins og sakir
standa.
I sumum sneiðingum með strönd
um fram, einkum í Óshlíð, fyrir
Búlandshöfða og Ólafsvfkurenni
væri mjög mikil hætta á aur og
grjóthruni eftir að hlána tók og full
ástæða að gæta þar fyllstu varúðar
Hefur sums staðar á þessum veg
um orðið að ryðja miklu af aur
°g grjóti til að bflar kæmust leiðar
sinnar.
Vfsir fékk þær upplýsingar að
snjór hafi hvergi safnazt að ráði
á vegi milli Reykjavíkur og Akur
eyrar í hríðarkastinu mikla og að
hann hafi út af fyrir sig ekki
teppt samgöngur, enda veðurhæð
in svo mikil að hann skóf alls
staðar af veginum.
Aftur á móti flæddi Dalsá í
Blönduhlíð yfir veginn og fyrir
helgina var þar ekki fært nema
allra stærstu bílum.
Nú hefur áin færzt í farveg sinn
aftur og er ekki farartálmi lengur
Aftur á móti flæddi Bjarnardalsá
í Norðurárdal í Borgarfirði yfir
veginn á nokkrum kafia í gær og
torveldaði umferð lítilla bíla.
Á Austurlandi er nú orðrð fært
um Fljótsdalshérað að mestu leyti
en þar hafa verið miklar fannir á
vegum og teppt umferðina. Sömu-
leiðis er fært um Fagradal til Reyð
VlSIR . Þriðjudagur 16. febrúar 1965.
arfjarðar og Eskifjarðar og jeppa
fært yfir Staðarskarð til Eskifjarð
ar. Annars eru vegir á Austurlandi
enn ekki mjög blautir, enda hlán-
aði þar seinna.
Blomdahl —
Framhald af bls. 1.
og enn merkilegri eru að gerast.
Unga kynslóðin hefur lagt inn
á nýjar brautir og hafið djarfar
tilraunir, sem áreiðanlega eiga
eftir að bera þýðingarmikinn ár-
angur, og um leið hefur hún sótt
fram á þeim leiðum, sem áður
voru ruddar, en lítt kannaðar
sumar hverjar. Ég tel fyllstu
ástæðu t'il að vera bjartsýnn á
framtíð norrænnar tónlistar og
þátt hennar í norrænu menn-
ingarlífi.
— Þegar þér minnizt á til-
raunir, eigið þér þá ef til vill
við hina svokölluðu elektrón-
isku tónlist?
Bæði og. Ég er sannfærður
um að elektrónisk tónlist á eft-
ir að gegna merkilegu hlutverki
varðandi endurnýjun tónlistar-
innar yfirleitt. Því til sönnunar
má ég kannski leyfa mér að
benda á það, að það var eitt
mitt fyrsta verk sem tónlista-
ráðunautur sænska útvarpsins
og sjónvarpsins að hlutast til
um að komið yrði á fót full-
kominni vinnustofu fyrir elekt-
róniska tónlist, þannig að þeim
tónskáldum sem vinna að sköp-
un elektróniskra tónverka verði
þar fengin beztu tæknilegu
vinnuskilyrði. Sú vinnustofa
mun kosta milljónir króna og
verður ekki t'ilbúin fyrr en að
tveim árum liðnum, geri ég ráð
fyrir.
— Eruð þér kunnugur ís-
lenzkri tónlist?
Nei, því miður get ég ekki
sagt það. Að sjálfsögðu þekki ég
eldri tónskáld og verk þeirra,
t. d. Jón Leifs. Og ég hef heyrt
frá því sagt, að ung íslenzk tón-
skáld séu ekki öðrum norræn-
um listbræðrum sínum ódjarfari
við að leggja inn á nýjar braut-
ir, Og hafi þegar náð athyglis-
verðum árangri.
UNESCO —
Framh. af bls. 1.
un hefur ekki enn verið tekin
um styrkveitingu.
Nú þegar handritastofnun-
in fær gott húsnæði og hand-
ritin úr Ámasafni, eins og
líkur benda til, er það mikið
áhugamál, að þar verði hægt
að hafa ljósprentanir af öðr-
um íslenzkum handritum,
sem eru í bókasöfnum um
víða veröld.
Hrakningar —
inn úrvinda af þreytu og rugl-
aður af hræðslu. Hann gat þó í
stórum dráttum skýrt frá ferða-
Iagi þeirra þremenninga. Höfðu
þeir haldið ferð sinni áfram upp
úr Hvanneyrarskál um daginn,
klifrað upp snarbratta hlíðina
og komizt suður á Almenninga.
Þar er engin mannabyggð ná-
lægt og héldu þeir ferð s’inni
áfram, unz þeir komu á Stráka-
veginn nýja. Tóku þá stefnuna
í Fljót, en þegar þeir voru komn
ir 1 Hraunadal neðanverðan yf-
irgaf þessi félaga sína tvo og
hélt austur yfir Siglufjarðar-
skarð I þungri og vondri færð
og komst, eins og áður segir
heim til sín um hálfníuleytið,
þá að þrotum kominn.
Var þá haft samband í gegn-
um talstöð við leitarle'iðangur-
inn og honum gefið til kynna
hvar helzt skyldi leita. Jafn-
framt var mannaður bátur með
auknu leitarliði og sendur vest-
ur um.
En einhvem tíma nætur fundu
leitarmenn drengina tvo, sem
setzt höfðu að á melhól, nálægt
Heljartröð og neðst I Hrauna-
dal. Voru þeir þá uppgefnir orðn
ir, blautir og svangir. Þama sofn
uðu þeir en vöknuðu Við köll
leitarmanna og vóru þá skjálf-
ándi af kulda.
Um líkt leyti og þeir fundust
kom báturinn með ieitarliðið að
vestan og vom drengimir þá
fluttir um borð, ásamt Ieitar-
flokknum, og hlúð að þeim. —
Kom báturinn til Siglufjarðar
kl. 7 í morgun.
Afgreiðsluborð
Hilluborð fyrir áleggsvörur og hitaborð til sölu.
SÍLD OG FISKUR,
Bergstaðastræti 37.
Tækifærisverð
ísskápur, 8,5 cub., sófasett og skrifborð, stórt,
til sölu. Uppl. í síma 20549.
Sendisveinn óskast
þrjá tíma á dag.
PÁS-prent . Mjóstræti 6.
TIL LEIGU
Til leigu ný 4ra herbergja íbúð á góðum stað
í bænum. Leigutilboð sendist augl.deild Vísis
fyrir föstudagskvöld merkt „Góður staður -130“