Vísir - 16.02.1965, Side 15
VÍSIR . Þriðjudagur 16. febrúar 1965.
7 "
CECIL ST. LAURENT:
SONUR
\ v KARÓ-
LÍNU
— Auðvitað er ég franskur —
hvílík spuming! Standið ekki
þarna aðgerðarlaus heldur hjálp
ið mér úr þessum líkklæðum.
Ég get ekki einu sinni séð yður.
Og ég get ekki séð yður,
sagði Juan, sem þótti ráðlegast
að bíða með brugðinn brand.
Og loks tókst manninum, að
varpa af sér hinni hvítu skikkju,
sem hann hafi vafið um sig, og
Juan virti fyrir sér, þar sem
hann stóð þar sem skugga þar á,
órakað andlit vinar síns Gué-
neau, en hann gat ekki séð greini
lega vin sinn. Hann hafði þó
þekkt röddina. Juan hljóp
nú fram og föðmuðu þeir hvorn
annan að sér innilega glaðir og
mösuðu hvor í kapp við annan,
en loks fékk Guéneau tækifæri
til að segja honum frá ferðum
sínum:
- Þegar ég kom til Bobr komu
þangað Kósakkar, vopnaðir,
bændur — allir þorpsbúar, jafn
vel presturinn — og ruddust að
mér. Ég lagði á flótta og tókst
að fela mig undir timburhlaða.
Þar lá ég grafkyrr klukkustund-
um saman. Þegar ég loks fór á
kreik réðst hann á mig — sá,
sem húkir þama. Það var annars
óvarlegt af þér , að kveikja upp
eld. Rússar hefðu getað séð það,
og ef þeir hefðu fundið félaga
sinn dauðan geturðu gert þér í
hugarlund, hvað gerzt hefði.
Þá hefðu þeir hafið mikla leit til
þess að koma fram hefndum.
Juan sagði nú vini sínum frá
áætlun Napoleons — en hún fól
í sér, að hætta til lífi hans, til
þess að Rússar fengju skakkar
upplýsingar í hendur um áform
hans. Engin svipbreyting var sjá
anleg á andliti Guéneau meðan
Juan skýrði honum frá þessu.
— Þetta var býsna snjöll hug-
mynd, sagði Guéneau, er Juan
hafði lokið frásögn sinni. Það
skiptir svo litlu um eitt manns-
líf, þegar um örlög heils hers er
að ræða. Ég ásaka hvorki keisar-
ann eða Berthier, en þar sem þú
ert með bréfið, sem hefir hinar
réttu upplýsingar að geyma, get-
um við orðið samferða.
Þeim kom saman um að ríða
til skiptis þar til þeir gætu kom
izt yfir annan hest til. Þeir vom í
góðu skapi og gerðu sér vonir
um, að komast til hers Oudinot
undir kvöld, en þegar þeir komu
á háls nokkum var vegurinn
háll sem gler, en þíðan hafði
ekki náð að bræða snjóinn og ís-
inn svo hátt upp.
Margoft hnutu þeir og hest-
urinn sömuleiðis. Tóku þeir það
ráð að fara stíg, sem lá frá veg-
inum, en slóð var í snjónum á
stígnum. Hugleiddu þeir ekki,
hver áhætta gat verið á ferðum
fyrir þá, þar sem þeir vissu ekki
hver hafði troðið þessa slóð rétt
áður en þeir komu þarna. Vel
gat verið, að þama hefðu Rússar
verið á ferð fáeinum mínútum
áður. Loks komu þeir í rjóður,
þar rauk á nokkrum stöðum, en
svo virtist sem bál hefðu verið
kveikt þar á nokkrum stöðum,
og sáu þeir nú, að þarna mundi
herflokkur hafa verið á ferð.
Þar sem áliðið var dags, á-
kváðu þeir að taka sér hvíld
þama. Útlit var fyrir óveður.
Þeir náðu í sprek og lífguðu eld-
inn og steiktu á teini kjötbita,
sem Juan hafði komizt yfir áð-
ur og lumað á.
Óveðrið skall á skyndilega, en
stóð ekki lengi. Þegar hætti að
hríða, heldu þeir áfram f von
um að komast út úr skóginum.
En þeir fundu enga leið út úr
honum, og þeim fannst að lok-
um þeir vera þama inniluktir og
alls óvíst hversu fara mundi
fyrir þeim, ef þeir kæmust ekki
á rétta leið. Var þeim mikill
kvíði í hug, er þeir tóku sér
næst hvíld. Mæltu þeir fátt og
reyktu af pípum sínum.
Allt í einu heyrðu þeir fóta-
tak og fóm að svipast um, og
skammt frá sér sáu þeir tvær
konur á gangi. Þær voru vel
klæddar, vom f kápum með
skýluklút á höfði. önnur bar
mjólkurbyttu, hin körfu. Allt í
einu heyrðu þeir hundgá og á-
lyktuðu nú, að þeir myndu ekki
vera langt frá sveitabýli. Ræddu
þeir nú horfumar og kom sam-
an um, að þeir vildu heldur eiga
það á hættu, að verða fyrir ó-
þægindum eða öðru verra, held-
ur en hafast við heila nótt til
undir beru lofti.
Gueneau stakk upp á, að þeir
tækju bréfið, sem Juan var með
og brenndu það þar næst. Féllst
Juan á það og gerðu þéir það
eftir að hafa lesið það og fest
sér í minni meginatriði þess. Og
svo héldu þeir áfram — fóm í
humáttina á eftir sveitastelpun-
um tveimur.
Þegar þeir komu auga á hús
nokkurt, sem virtist hafa verið
af vanefnum smíðað, sagði Ju-
an:
- Við verðum að hætta á, að
knýja dyra þarna, sagði Juan,
en það er svo sem ekki víst að
neinn búi þarna.
I sömu svifum opnaði gömul
kona dymar. Þegar hún kom
auga á þá, snerist hún á hæli
og hljóp inn, en þeir gengu hratt
að húsinu, og Gueneau mjakaði
sér inn um lága dyragættina,
meðan Juan batt hest sinn við
23
þakbjálka, sem skagaði fram úr
gaflinum.
Hann varð næstum að skríða
á fjórum fótum, er hann fór inn
á eftir félaga sínum. Herbergið,
sem þeir voru komnir inn í, var
fullt af reyk, enda logaði þama
eldur í hlóðum. Ekki var þama
annað húsgagna en bekkir úr
óhefluðum viði, en dýrafeldir
vom á moldargólfinu.
Þama var gamall, skeggjaður
bóndi og reyndi Gueneau að
spjalla við hann á blendingi úr
frönsku, rússnesku og pólsku.
Gamla konan áræddi nú að
láta sjá framan f sig og stúlk-
urnar tvær, sem þeir höfðu séð
á gangi skömmu áður, en kven-
fólkið hafði falizt bak við stabba
af heyi og hálmi, sem var í her-
berginu.
— Þetta eru ekki Rússar,
sagði Gueneau við Juan, heldur
Pólverjar. Og þeir elska Frakka
eins heitt og þeir hata Rússa.
Litlu síðar hvíldu þeir félagar
á gæmskinnum fyrir framan eld-
stóna. Ungu stúlkumar drógu
stígvélin af fótum þeirra og
gerðu allt sem þær gátu til þess
að þessir dauðþreyttu hermenn
gætu hvílzt vel. Og gamla kon-
an kom með skál með heitu
vatni og þvoði á þeim fæturna,
en þeir Gueneau reyndu það nú,
hve þreytan segir oft til sín
eftir á, því að þeir vom sannast
að segja örmagna.
Morguninn eftir létu þeir fé-
lagar í ljós þakklæti sitt og létt-
ist nú hnakktaska Gueneau því
að hann gaf konunum hvorki
fleiri né færri en níu indverska
klúta úr silki, nokkra gyllta
hnappa og nokkrar rúblur. Gamli
karlinn fékk gullúr og medalíu
frönsku heiðursfylkingarinnar
með hliðarmynd á af keisaran-
um. Og karlinn var svo yfir sig
hrifinn og hrærður, að hann
kyssti peninginn með Napóleoni
á margsinnis. Juan lét ekki sinn
hluta eftir liggja og var jafnvel
örlátari en Gueneau, enda hafði
hann nóg fé. Hann hafði feng-
ið laun sín greidd í Moskvu og
2000 franka úr einkasjóði Papó-
leons. Hann gaf konunni 100
franka í gulli, og hún sagðist
aldrei ætla að kaupa neitt fyrir
þá, heldur geyma þá sem minnis
peninga.
Og þeir neyttu sauðakjötsins,
sem þeim var gefið að borða, af
bezty lyst, enda svangir, en
„ekki hefði ég við slíku ragúi
litið í París“, sagði Gueneau,
sem jafnan átti til að vera dálítið
spaugsamur. Og þetta ágæta
fólk, sem þeir höfðu þama fyrir
hitt, fékk brennivínstár hjá
þeim. Margar vikur voru liðnar
síðan þeir höfðu búið við slíka
vellíðan, hvílzt jafn vel og etið
sig eins vel metta.
Er þeir höfðu kvatt vini sína,
stigu þeir báðir á bak hestinum
og skyldi nú tvímenna. Þeir
höfðu spurzt til vegar til næsta
þorps og sagði fólkið þeim, að
þeir myndu komast þangað á
hálftíma, þótt þeir færu fetið,
en það var skollin á svo sótsvört
þoka, að varla sá handaskil.
— Hver er þar? hrópaði Gu-
eneau allt í einu.
Báðir stigu af baki snarlega
og gripu til vopna sinna.
- Bjargið ykkur, kallaði ein-
hver móður og másandi. - Kós
akkamir!
Tveir menn, sem blésu upp og
niður, komu út úr þokunni. Hófa
tak færðist nær. Margir ríðandi
menn virtust á ferð.
T
A
R
Z
A
N
Ég er búinn að fá minn fyrsta
sjúkling. Tarzan. Hann kom haltr
andi til mín út úr frumskóginum
á þrem fótum. Er hann ekki sæt-
ur? Og við munum fá okkar
AN7 WE'LLHAVE OUfL FIKST OFFICIAL 6UESTS
T0WI6HT, NAOfW! CAPTAIM TSHUUfS ARRlVINð
BEFORE SUN70WM WITH HIS FATHEK,CHIEF UU,
' ^ ANP TEhl SUB-CHIEFS^/-
IWJ0W V0UR FUN WILLYTHANKS.WAOMI, 8UT MV PLANI
succeef! gemeral yeatsl keefs chief uli's COOFEKATIOM.
HAS HISH RESPECT FOE Á IFWE CANM0T TRISES,
YOUEKN0WLE7SEOF S\THEREC» MO FEACE
AFR1CA...ANP AFRICAMS!/ \ IM Ar
4
fyrstu opinberu gesti í kvöld, Na
omi. Tshulu höfuðsmaður kemur
fyrir sólarlag með föður sinn,
Uli höfðingja og tíu undirhöfð-
ingja. Ég er sannfærð um að á-
ætlun þín mun standast. Yeats
hershöfðingi hefur mjög mikið
álit á kunnáttu þinni um Afrfku
og um afríkönsk málefni, segir
Naomi. Þakka þér fyrir Naomi,
en áætlun mín gerir ráð fyrir
samvinnu Uli. Ef við getum ekki
sameinað kynflokkanna, verður
enginn friður í Afríku.
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
STEINU og DÓDÓ
Laugavep 18 3. hæð flyfta)
Simi 24816
Hárgreiðslustofan PERMA
Garðsenda 21, slmi 33968
Hárgreiðsiustofa Ólafar Bjðrns '
dóttur.
HATCNI 6, slmi 15493.
Hárgreiðslustofan
PIROL
Grettisgötu 31 simi 14787.
Hárgreiðslustofa
VESTURBÆJAR
Grenimel 9. - tmi 19218.
Hárgreiðslustofa
AUSTURBÆJAR
fMaria Guðmundsdóttir)
Laugaveg 13, simi 14656.
Nuddstofa á sama stað
Dömuhárgreiðsla við allra hæf,
TJARNARSTOFAN
Tjarnargötu II Vonarstrætls.
megin, simi 14662_____________
I Hárgreiðslustofan Asgarði 22.
I Simi 35610
ÁSTHILDUR KÆRNESTEDU ,
GUÐLEIF SVEINSDÓTTIR ’
SIMI 12614 J
HÁALEITISBRAUT 20 \
VENUS
Grundarstig 2a
Sími 21777.
Hárgreiðslustofan
Sp.vailagötu T2
Sími 18615
,W.
SÆi'CUR
REST-BEZT-koddar. J
Endumýjum gömlu j!
sængurnar, eigum
dún- og fiðurheld ver. J
Seljum æðardúns- og ■!
gæsadúnssængur —
og kodda af ýmsum T
stærðum. ■!
dcn- og í
FIÐURHREINSUNIN «!
Vatnsstig 3 Sími 18740 oj
.Y.V.V.V.V.YAWAV.V